Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Bútækni
- Sértækar greinar
- Rekstur - Stjórnun
- Tölvunotkun við bústörf
- Traktor - gagnasafn
Tilvísanir
Leiðbeiningar
Rannsóknir
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
 
Póstur á vefstjóra

Yfirlit búvélaprófana árið 1995

KVERNELAND - plógur

Skýrsla nr. 655

Gerð: Kverneland AB. Framleiðandi: Kverneland A/S, Kverneland, Noregi. Innflytjandi: Ingvar Helgason hf., Reykjavík.

YFIRLIT

Kverneland AB plógurinn var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins haustið 1994. Hann var einkum notaður við plægingar á grænfóðurspildum og við endurræktun túna alls á um 6 ha. Við skýrslugerð er að auki stuðst við prófunarskýrslu frá "Statens maskinprovningar" í Svíþjóð um plóg af sömu gerð (meddelande 3090) en í þeirri prófun var hann notaður á um 50 ha lands. Þaðan eru fengin gögn um slitþol og ýmsar mæliniðurstöður sem ekki þótti ástæða til að endurtaka hér þó svo að jarðvegur hér sé víða verulega frábrugðinn. Plógurinn er þrískeri, tengdur á þrítengi dráttarvélar og vegur um 745 kg. Hann er með stillanlega strengbreidd frá um 300 mm (12") í um 490 mm (20"), og útsláttaröryggi fyrir hvern skera. Við allar algengar aðstæður er hægt að fá góða vinnslu á landinu og láta hjólhnífa og ristla vinna eðlilega. Stillimöguleikar tækisins eru ekki takmarkandi þáttur í þeim efnum. Ætla má að afköst séu á bilinu 0,5-1,0 ha/klst. og algeng afköst eru um 0,7 ha/klst. Út frá rannsóknum á dráttarátaki við plægingar á jarðvegi hérlendis má ráða að lágmarksþyngd á dráttarvél þurfi að vera um 2,9-4,1 tonn, ef um aldrifsvél er að ræða, til að fullnýta afkastagetu plógsins. Allar stillingar á plógnum eru fremur handhægar og mikilvægt að notandinn hafi um þær skýrar upplýsingar til að vinnubrögð verði vönduð. Plógurinn er í heild sterklegur að allri byggingu, frágangur vandaður, og umrædd gerð virðist henta vel aðstæðum hér á landi. Við prófanirnar var hann notaður við plægingu sem svarar til nokkurra ára notkunar á meðal býli án nokkurra bilana eða endurnýjunar á slitflötum.


ALFA-LAVAL - mykjudæla

Skýrsla nr. 656

Gerð: Alfa Laval TP 360 VS. Framleiðandi: Alfa-Laval Nyköping, Svíþjóð. Innflytjandi: Globus Vélaver hf. Reykjavík.

YFIRLIT

Alfa-Laval mykjudælan kom til prófunar í október mánuði 1994. Dælan var notuð alls í 96 klst einkum til blöndunar í geymslum en einnig til áfyllingar í tanka um 645 tonn. Dælan er miðflóttaaflsdæla tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin frá aflúttaki. Hún vegur 600 kg. Hún er ætluð til dælingar á þynntum búfjáráburði hvort heldur er í flutningatæki eða til blöndunar í áburðargeymslum. Dælan er byggð til að vinna í hallandi stöðu sem er breytileg en getur farið niður í 19 miðað við venjulega lengd yfirtengis. Hallanum má breyta bæði með vökvatjakki á dælunni, þremur stillingum á mótum burðargrindar og dælurörs, færslu yfirtengis og hæð á burðargrind. Þessar stillingar gefa breytilega möguleika á dælingu um lúgur á áburðargeymslum án þess að þurfi sérstaka dælubrunna. Það má í mörgum tilvikum koma henni að við losun úr fjárhúsum. Afköst hennar eru verulega háð þykkt áburðarins en voru allt að 4760 l á mín. við mjög lágt þurrefnisinnihald áburðarins og litla lyftihæð. Við algenga þykkt áburðar, um 8% þurrefni, voru afköst dælunnar oft um 2500 l/mín. Aflþörf dælunnar er breytileg eftir snúningshraða og mótstöðu. Hún mældist að jafnaði um 21 kW (28,5 hö) miðað við 540 sn./mín. á tengidrifi. Álagsöryggi stöðvar dæluna ef fastir aðskotahlutir komast í inntaksop hennar og valda þeir því ekki skemmdum. Í dæluhúsinu er búnaður til að saxa hey sem kann að berast að dælunni. Í lok reynslutímans bognaði hluti af burðargrindinni. Skipt var um hann með endurbættum hluta frá verksmiðju. Að öðru leyti var ekki hægt að merkja óeðlilegt slit á dælunni í lok reynslutímans. Hún er tiltölulega auðveld í meðförum og virðist traustbyggð.


DUUN - mykjudæla

Skýrsla nr. 657

Gerð: DUUN SKP 50D. Framleiðandi: DUUN - Smia a/s Noregi. Innflytjandi: Bújöfur hf. Reykjavík.

YFIRLIT

DUUN SKP 50D mykjudælan kom til prófunar í október mánuði 1994. Dælan var notuð alls í 78 klst, bæði við blöndun í áburðargeymslum og til dælingar á um 306 tonnum í flutningatanka. Dælan er miðflóttaaflsdæla tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin frá aflúttaki. Hún vegur 830 kg og er ætluð til dælingar á þynntum búfjáráburði hvort heldur er í flutningatæki eða til blöndunar í áburðargeymslum. Dælan er byggð til að vinna bæði lóðrétt og í hallandi stöðu sem er breytileg en getur farið niður í 18 miðað venjulega lengd yfirtengis. Hallanum má breyta bæði með vökvatjakki á burðarramma dælunnar, færslu yfirtengis og hæð á burðargrind. Þá er á dælunni vökvatjakkur til að færa dæluna til á burðarrammanum. Þessir stillimöguleikar gefa svigrúm til dælingu um lúgur á áburðargeymslum án þess að hafa sérstaka dælubrunna. Það má í mörgum tilvikum koma henni að við losun úr grynnri geymslum í fjárhúsum. Afköst hennar eru verulega háð þykkt áburðarins en voru allt um 3000 l á mín. við mjög lágt þurrefnisinnihald áburðarins og litla lyftihæð. Við algenga þykkt, um 8% þurrefni, voru afköst dælunnar oft um 1800 l/mín. Aflþörf dælunnar er breytileg eftir snúningshraða og mótstöðu og mældist að jafnaði um 9 kW (12,3 hö) miðað við 540 sn./mín. á tengidrifi en mest um 17 kW. Álagsöryggi stöðvar dæluna ef fastir aðskotahlutir komast í inntaksop hennar og valda þeir því ekki skemmdum. Í dæluhúsinu er búnaður til að saxa hey sem kann að berast að dælunni. Ekki var hægt að merkja óeðlilegt slit á dælunni í lok reynslutímans og engar bilanir komu fram. Allur neðri hluti dælunnar er úr ryðfríu efni. Miðað við þyngd dælunnar er hún tiltölulega auðveld í meðförum og virðist traustbyggð að allri gerð.


REIME - mykjudæla

Skýrsla nr. 658

Gerð: Reime. Framleiðandi: Reime, a.s. Nærbö, Noregi. Innflytjandi: Ingvar Helgason hf., Reykjavík.

YFIRLIT

Reime mykjudælan kom til prófunar í desembermánuði 1994. Dælan var notuð alls í 125 klst, bæði við blöndun í áburðargeymslum og til dælingar á um 560 tonnum í flutningatanka. Dælan er miðflóttaaflsdæla tengd á þrítengi dráttarvéla og knúin frá aflúttaki. Hún vegur um 470 kg. Hún er ætluð til dælingar á þynntum búfjáráburði hvort heldur er í flutningatæki eða til blöndunar í áburðargeymslum. Halla dælunnar má breyta frá nær láréttri stöðu í vinnu upp í nær lóðrétta stöðu. Þá má einnig breyta hæð hennar á burðarramma. Það gefur ýmsa möguleika á dælingu um lúgur á áburðargeymslum án þess að hafa sérstaka dælubrunna. Þá má víða koma henni að við losun úr fjárhúsum. Afköst hennar eru verulega háð þykkt áburðarins. Þau voru allt að 5100 l/mín. við mjög lágt þurrefnisinnihald áburðarins. Við algenga þykkt, 5-6% þurrefni, voru afköst dælunnar 3800 l/mín. Aflþörf dælunnar mældust mest um 31,6 kW (43 hö) í vatni. Vartengsl stöðvar dæluna ef fastir aðskotahlutir komast í inntaksop hennar. Þeir valda því ekki skemmdum. Í lok reynslutímans gaf sig pakkdós á efra drifhúsi án sjáanlegra ástæðna. Að öðru leyti var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á dælunni í lok reynslutímans. Hún er fremur léttbyggð, virðist traustlega smíðuð og er tiltölulega auðveld í meðförum.


LELY - heyþyrla

Skýrsla nr. 659

Gerð: Lely Lotus 600. Framleiðandi: Lely Industries NV, Hollandi. Innflytjandi: Atlas hf. Reykjavík.

YFIRLIT

Heyþyrlan Lely Lotus 600 var reynd af Rannsóknastofnun landbúnaðarins Bútæknideild, sumarið 1995 og notuð alls í 61 klst.

Heyþyrlan er tengd á þrítengi dráttarvélar og drifin frá aflúttaki hennar. Hún vegur 816 kg. Í flutningsstöðu er ytri stjörnunum lyft upp í lóðrétta stöðu með vökvatjökkum. Hæfni heyþyrlunnar til heysnúnings reyndist góð og ójöfnum lands fylgir hún vel. Vinnslubreidd vélarinnar er allt að 6,0 m og afköst við heysnúning reyndust að jafnaði 4,8 ha/klst. en mest um 6,2 ha/klst. Heymúgum dreifir vélin í 6-7 m breiðan samfelldan flekk. Vélinni fylgja múgspjöld til að raka í tvo múga í hverri ferð og er þá jafnframt dregið úr snúningshraða stjarna. Í grófu heyi þar sem uppskera er veruleg má fá þokkalega múgun en á smágerðu heyi og við minni uppskeru eru rakstrargæðin ekki fullnægjandi. Á fljótlegan hátt má setja niður hliðarspjald til að hindra hliðarkast heysins t.d. meðfram skurðbökkum og girðingum en ekki er búnaður til að kasta heyinu inn á spildur. Liðir í beislisbúnaði vélarinnar auðvelda vinnu með henni í beygjum en þeir læsast sjáfkrafa þegar vélinni er lyft. Aflþörf heyþyrlunnar á tengidrifi mældist mest um 22 kW (30 hö). Til að aka megi af öryggi með vélina í flutningsstöðu þarf lágmarksstærð (þyngd) dráttarvélar að vera u.þ.b. 45-50 kW (60-68 hö) með viðeigandi þyngingum til að uppfylla kröfur um þungahlutföll dráttarvéla. Heyþyrlan er traustbyggð og á reynslutímanum varð engra bilana vart.


LELY - sláttuvél

Skýrsla nr. 660

Gerð: Lely Optimo 240 C. Framleiðandi: Lely industries NV, Hollandi. Innflytjandi: Atlas hf., Reykjavík.

YFIRLIT

Sláttuvélin Lely Optimo 240 C með knosara var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1995. Hún var notuð alls í um 62 klst.

Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og gengur sláttubúnaðurinn út hægra megin frá dráttarvél og er lyft upp í flutningsstöðu lóðrétt hægra megin aftan til við hana. Þyngd sláttuvélarinnar er 710 kg. Sláttuvélin reyndist að jafnaði slá hreint og jafnt. Stubblengd í sláttufari var að meðaltali 55 mm og fráviksstuðull 31% við ökuhraða á bilinu 6,0-16,7 km/klst. Hægt er að stilla sláttunánd bæði með meiðum undir skífubakka og með lengd yfirtengis. Sláttubúnaður vélarinnar fylgdi vel ójöfnum landsins þrátt fyrir mikla vinnslubreidd. Vinnslubreidd sláttuvélarinnar er 2,40 m. Knosarinn er tengdur á burðargrind vélarinnar og má taka hann af sláttuvélinni. Velja má um 4 mismunandi knosunarstig og tvo snúningshraða á knosara.

Ætla verður að minnsta kosti 46 kW (63 hö) dráttarvél fyrir sláttuvélina til að fullnýta afkastagetu hennar. Vélin er tiltölulega lipur í stjórnun en þyngd hennar getur í flutningi raskað þungahlutföllum meðalstórra og minni dráttarvéla. Hnífaslit á reynslutímanum var innan eðlilegra marka. Hlífðardúkar vélarinnar eru vel úr garði gerðir. Frákast knosarans er stillanlegt. Dagleg umhirða er fljótleg. Í lok reynslutímans var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar meiri háttar bilanir komu fram á reynslutímanum. Sláttuvélin virðist vera traustbyggð og vönduð að allri gerð.


BELLON - sláttuvél

Skýrsla nr. 661

Gerð: Bellon D5L. Framleiðandi: Bellon, Cadoneghe, Ítalíu. Innflytjandi: Vélar og þjónusta hf., Reykjavík.

YFIRLIT

Sláttuvélin Bellon D5L var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1995. Hún var notuð alls í 50 klst.

Sláttuvélin er tengd á þrítengi dráttarvélar og lyft í flutningsstöðu lóðrétt hægra megin aftan við dráttarvél. Hún vegur 390 kg. Sláttuvélin reyndist að jafnaði slá hreint og jafnt, og við mælingar var stubbhæð í sláttufari að meðaltali 43 mm og fráviksstuðull 32% við ökuhraða á bilinu 6,0-16,7 km/klst. Sláttunánd er stillt með lengd yfirtengis. Sláttubúnaður vélarinnar fylgdi vel ójöfnum landsins. Vinnslubreidd vélarinnar er 2,04 m.

Ætla verður að lágmarki 38 kW (52 hö) dráttarvél fyrir sláttuvélina til að fullnýta afkastagetu hennar. Vélin er tiltölulega lipur í vinnu og þyngd hennar ætti ekki að raska þungahlutföllum meðalstórra dráttarvéla í flutningi. Hnífaslit á reynslutímanum var innan eðlilegra marka. Hlífðardúkar vélarinnar eru vel úr garði gerðir. Dagleg umhirða er fljótleg. Í lok reynslutímans var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar meiri háttar bilanir komu fram á reynslutímanum. Sláttuvélin virðist vera traustbyggð og vönduð að allri gerð.


TAARUP - sláttuvél

Skýrsla nr. 662

Gerð: Taarup 226. Framleiðandi: Taarup, Kerteminde, Danmörku. Innflytjandi: Ingvar Helgason hf., Reykjavík.

YFIRLIT

Sláttuvélin Taarup 226 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1995. Hún var notuð alls í 50 klst.

Sláttuvélin er tengd á þrítengi dráttarvélar og lyft í flutningsstöðu lóðrétt hægra megin aftan við dráttarvél. Hún vegur 445 kg. Sláttuvélin reyndist að jafnaði slá hreint og jafnt og var stubbhæð í sláttufari að meðaltali 55 mm og fráviksstuðull 30% við ökuhraða á bilinu 6,0-16,7 km/klst. Sláttunánd er stillt með lengd yfirtengis. Sláttubúnaður vélarinnar fylgdi vel ójöfnum landsins. Vinnslubreidd vélarinnar er 2,38 m. Ætla verður að lágmarki 42 kW (57 hö) dráttarvél fyrir sláttuvélina til að fullnýta afkastagetu hennar. Vélin lætur tiltölulega vel að stjórn og þyngd hennar ætti ekki að raska þungahlutföllum meðalstórra dráttarvéla í flutningi. Enginn hnífur brotnaði á reynslutímanum. Hlífðardúkar vélarinnar eru léttir og hættir til að leggjast undan vindi. Dagleg umhirða er fljótleg. Í lok reynslutímans var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar meiri háttar bilanir komu fram á reynslutímanum. Vélin virðist vera traustbyggð og vönduð að allri gerð.


KRONE - rúllubindivél

Skýrsla nr. 663

Gerð: Krone 10-16. Framleiðandi: Maschinenfabriken Bernard Krone GmbH, Þýskalandi. Innflytjandi: Vélar og þjónusta hf. Reykjavík.

YFIRLIT

Krone 10-16 er rúllubindivél með breytilegri stærð baggahólfs, þ.e.a.s. fastkjarnavél. Hún var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1995. Við beina prófun vélarinnar voru bundnir 576 rúllubaggar en auk þess var fylgst með vélinni í notkun við bindingu á um 4000 böggum.

Bindivélin er dragtengd, knúin frá vinnudrifi dráttarvélar. Hún vegur 2316 kg. Vélin tekur hey og grænfóður á öllum þurrkstigum upp úr múgum eða sláttuskárum og vefur í þétta, sívalningslaga bagga. Þeir eru 1,2 m breiðir og með breytilegt þvermál á bilinu 0,9-1,6 m. Rúmmál þeirra er á bilinu 0,76-2,41 m3. Þyngd bagga af sömu stærð er breytileg, einkum eftir þurrkstigi. Af nýlega slegnu grasi má reikna með u.þ.b. 700 kg böggum, en um 480 kg af forþurrkuðu heyi (50-60% þe.) miðað við að þvermál bagganna sé 1,2 m. Þetta svarar til þess að rúmþyngdin sé um 110 og 195 kg þe./m3. Afköst má ætla að hámarki 40 bagga/klst. sem er allt að 10,6 tonn af þurrefni á klst. við bindingu á forþurrkuðu heyi. Aðeins bar á festum við sópvindu við vissar aðstæður. Til að nýta afkasta- og þjöppunargetu vélarinnar verður að ætla henni 45-55 kW dráttarvél (61-75 hö). Vélin virðist traustlega smíðuð, notkun og hirðing tiltölulega einföld, og engar meiri háttar bilanir urðu á reynslutímanum.


SILOMAC - rúllupökkunarvél (viðbótarprófun)

Skýrsla nr. 664

Gerð: Silomac 991 B. Framleiðandi: Kilmaine, co. Mayo, Írlandi. Innflytjandi: Vélar og þjónusta hf., Reykjavík.

YFIRLIT

Silomac 991B rúllupökkunarvélin var fyrst prófuð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1993. Var hún þá notuð alls um 25 klst. við pökkun á 390 böggum. Prófunartíminn var venju fremur skammur vegna þess hve seint vélin kom til prófunar en fylgst var með notkun vélarinnar eftir að formlegri prófun lauk. Vélin var samt reynd bæði á fyrri og seinni slætti en ekki við grænfóðurbagga. Sumarið 1995 var ákveðið að gera ýtarlegri prófanir einkum er snertu afköst við pökkun og sér í lagi með 75 cm breiðri filmurúllu. Í eftirfarandi skýrslu er fyrst og fremst gerð grein fyrir athugunum varðandi pökkun en að öðru leyti er vísað til skýrslu Bútæknideildar

Skýrsla nr. 640 um Silomac pökkunarvél.

Pökkunarvélin er ætluð til að hjúpa rúlluböggum af öllum algengum stærðum inn í plastfilmu. Hún er dragtengd, knúin af vökvakerfi dráttarvélar og vegur um 1775 kg. Vökvastýrður armur lyftir böggum upp á pökkunarborð. Við pökkun er bagganum snúið og velt um leið. Má stjórna þéttleika vafninga með því að breyta veltuhraðanum. Strekkibúnaðurinn er bæði fyrir 50 og 75 cm breiðar plastfilmur. Þegar bagginn er fullpakkaður er pallinum snúið í sturtustöðu og bagganum velt aftur að fallpalli. Með pallinum má láta baggann falla hægt niður á jörðu. Er fallhraðinn stillanlegur með stilliloka undir vélinni að framanverðu. Vélin er með vökvastýrðum skurðarbúnaði fyrir plastfilmuna. Afköst vélarinnar eru breytileg eftir aðstæðum, vafningafjölda og baggastærð en í þeim mælingum sem gerðar voru, voru þau um 47 baggar á klst., og brúttó afköst um 40 baggar á klst. Ætla má að 30 kW (41 hö) sé lágmarksstærð dráttarvéla fyrir pökkunarvélina. Við fjórfalda pökkun er filmunotkun um 0,9-1,0 kg á bagga (þvermál 1,2 m) eða sem svarar um 70 m af óstrekktri filmu.Filmunotkun er háð filmustrekkingu og baggastærð. Vélin er á nægilega belgmiklum hjólbörðum til að bera hana við allar algengar aðstæður. Fallpallurinn á vélinni ver plasthjúpinn gegn skemmdum þegar bagginn veltur af vélinni og er það verulegur kostur. Pökkunarborðið er vel opið gagnvart heyslæðingi úr böggunum þannig að hann veldur sjaldan töfum. Í lok reynslutímans sem var fremur skammur var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar bilanir komu fram. Vélin er í alla staði að sjá traustlega smíðuð og dagleg hirðing einföld.


RECO - rúllupökkunarvél

Skýrsla nr. 665

Gerð: RECO Autowrappa Mk III. Framleiðandi: Rustons Engineering Co. Ltd., Englandi. Innflytjandi: Búvélar hf., Reykjavík.

YFIRLIT

RECO Autowrappa rúllupökkunarvélin var prófuð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1995. Var hún notuð alls við pökkun á 1113 böggum. Vélin var reynd bæði á fyrri og seinni slætti, og auk þess við grænfóðurbagga.

Pökkunarvélin er ætluð til að pakka rúlluböggum af öllum algengum stærðum inn í plastfilmu. Vélina er hægt að tengja beint aftan í dráttarvél. Einnig er hægt að tengja hana aftan í rúllubindivél, og er þá rúllað og pakkað samtímis með einni dráttarvél. Vélin er dragtengd, knúin frá vökvakerfi dráttarvélar. Hún vegur um 1190 kg. Vélin tekur baggana upp af jafnsléttu upp á pökkunarkefli sem snúast og velta bagganum við pökkun. Armur gengur umhverfis baggann með filmurúllu ásamt strekkibúnaði og vefur plastinu um baggann. Strekkibúnaðurinn er einungis fyrir 50 cm breiða plastfilmu. Þegar bagginn er fullpakkaður stöðvast armurinn í ákveðinni stöðu, og er bagganum velt aftur af vélinni. Vélin er algerlega sjálfvirk, en hægt er að grípa inn í verkferilinn og handstýra honum ef þarf. Stjórnbúnaði er komið fyrir í dráttarvél.

Afköst vélarinnar eru mjög mikil. Þau eru þó breytileg eftir aðstæðum, vafningafjölda og baggastærð. Í þeim mælingum sem gerðar voru, reyndust nettóafköst vera að meðaltali 44 baggar á klst. þegar pakkað var með vélina tengda beint við dráttarvél, og 32 baggar á klst. þegar pakkað var með vélina tengda aftan í rúllubindivél. Í mælingunum var alltaf pakkað sexfalt. Ætla má að 25 kW (34 hö) sé lágmarksstærð dráttarvéla fyrir pökkunarvélina þegar hún er notuð beint aftan í dráttarvél, en varla dugar minna en 70-75 kW (95-102 hö) ef tengja á vélina aftan í rúllubindivél. Við sexfalda pökkun er filmunotkun um 1,3-1,5 kg á bagga (þvermál 1,2 m) þannig að 25 kg plastrúlla dugir á u.þ.b. 17-19 bagga. Vélin er á nægilega belgmiklum hjólbörðum til að bera hana við allar algengar aðstæður. Heyslæðingur úr böggunum festist lítið í vélinni og veldur sjaldan töfum. Í lok reynslutímans var filmustrekkjarinn farinn að láta talsvert á sjá. Umbúnaður og festingar fyrir hann eru varla nógu traustar. Að öðru leyti var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar meiri háttar bilanir komu fram á reynslutímanum. Vélin er traustlega smíðuð, notkun og dagleg hirðing er einföld en vélin er þó tæknilega nokkuð flókin.


TAARUP - stjörnumúgavél

Skýrsla nr. 666

Gerð: Taarup, Kverneland 752. Framleiðandi: Maskinfabriken Taarup, Kerteminde, Danmörku. Innflytjandi: Ingvar Helgason hf. Reykjavík.

YFIRLIT

Taarup-Kverneland 752 stjörnumúgavélin var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1995 og notuð alls í 44 klst.

Stjörnumúgavélin er tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin frá aflúttaki. Hún vegur um 710 kg. Múgavélin reyndist raka vel og skilja eftir litla dreif við algengar aðstæður. Gera má ráð fyrir að dreifarmagn í rakstrarfari sé að jafnaði 70-80 kg þe./ha við ökuhraðann 4,6-10,9 km/klst., en við bestu aðstæður um 40-50 kg þe./ha. Við erfið skilyrði er dreifarmagnið oft um 140 -150 kg þe./ha. Þrátt fyrir mikla vinnslubreidd reyndist vélin fylgja vel ójöfnum á yfirborði landsins. Hún getur rakað frá girðingum og skurðbökkum. Liður í beisli vélarinnar gefur svigrúm til að vinna með vélinni í beygjum. Rakstrarfar vélarinnar er allt að 3,5 m að breidd. Hæfilegur ökuhraði var oftast um 8-12 km/klst. og afköst að jafnaði um 2,8 ha/klst. Vélin rýrir framþunga meðalstórra dráttarvéla verulega og getur þurft að þyngja þær til að uppfylla ákvæði um þungahlutföll á dráttarvélum. Múgavélin er lipur í tengingu og notkun. Festingar á rakstrarörmum vélarinnar eru ekki nægilega traustar. Nokkrar skemmdir urðu á vélinni af þeim ástæðum. Að öðru leyti er vélin traustlega byggð, aðrar bilanir komu ekki fram og ekki var unnt að merkja óeðlilegt slit á henni í lok reynslutímans.


KRONE - rúllubindivél

Skýrsla nr. 667

Gerð: Krone 130 S. Framleiðandi: Maschinenfabriken Bernard Krone Gmbh., Þýskalandi. Innflytjandi: Vélar og þjónusta hf., Reykjavík.

YFIRLIT

Krone 130 S er rúllubindivél með hnífabúnaði og fastri stærð baggahólfs, þ.e.a.s. lauskjarnavél. Hún var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1995. Við prófun vélarinnar voru bundnir 673 baggar.

Bindivélin er dragtengd, knúin frá vinnudrifi dráttarvélar. Hún vegur 2300 kg. Hún tekur hey og grænfóður á öllum þurrkstigum upp úr görðum eða sláttumúgum og vefur í þétta, sívalningslaga bagga. Þeir eru 1,2 m breiðir og um 1,29 m í þvermál, þannig að rúmmál þeirra er um 1,57 m3. Þyngd bagga er breytileg, einkum eftir þurrkstigi, oft um 650 kg af nýlega slegnu heyi (20-25% þe.) og um 470 kg af forþurrkuðu heyi (50-60% þe.). Þetta svarar til þess að rúmþyngdin sé um 95 og 165 kg þe./m3. Afköst má ætla um 30 bagga á klst., sem þýðir allt að 7,2 tonn af þurrefni á klst. við bindingu á vel forþurrkuðu heyi. Í vélinni eru hnífar sem skera heyið við mötun. Vélin er lipur í notkun og vinnur vel við venjulegar aðstæður.Í mjög blautu grænfóðri (14% þe.) voru erfiðleikar á að nota hana, vegna þess hversu oft hún stíflaðist. Aflþörf vélarinnar með skurðbúnaði er um 40 kW (54 hö) ef miðað er við að rúmþyngd heysins verði um 165 kg þe./m3. Ef nýta á afkasta- og þjöppunargetu vélarinnar til fulls verður því að ætla henni 55-60 kW dráttarvél (75-82 hö). Á reynslutímanum bognuðu festingar landhjóla á sópvindu, og nokkuð bar á að tindar í sópvindu vildu brotna. Aðrar bilanir komu ekki fram, og vélin virðist að öðru leyti traustbyggð og vönduð.


 

 Leit á vef
 

Búvélaprófanir

Yfirlit búvélaprófana 1968-1979

Yfirlit búvélaprófana 1968-1979

1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2003 2004 2005

 

Flýtikrækjur

landbunadur.is
Rit LbhÍ
Vefpóstur LbhÍ