Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Bútækni
- Sértækar greinar
- Rekstur - Stjórnun
- Tölvunotkun við bústörf
- Traktor - gagnasafn
Tilvísanir
Leiðbeiningar
Rannsóknir
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
 
Póstur á vefstjóra

Yfirlit búvélaprófana árið 1986

GUNDERSTED – mykjudreifari

Skýrsla nr. 551

Gerð: Gundersted, type 4000 l. Framleiðandi: Maskinfabriken Kimadan, Danmörku. Innflytjandi: Boði s.f. Hafnarfirði.

 

YFIRLIT

Gundersted mykjudreifarinn var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins seinni hluta ársins 1985 og notaður alls um 100 klst.

Dreifarinn er ætlaður til flutnings og dreifingar á þunnum búfjáráburði. helstu hlutar hans eru stáltankur, burðarhjól og spaðadæla. Dráttarbeisli hans má tengja bæði í dráttarkrók eða fast beisli á dráttarvél. Jafnleiki dreifingar reyndist nokkuð háður þykkt mykjunnar. Væri þurrefnisinnihald hennar minna en 8% varð dreifingin viðunandi góð en við um 11% þurrefni kemur mykjan úr dreifirörinu í einni samfelldri bunu. Til þess að lækka þurrefnismagnið niður í fyrrgreint mark (8-9%) þarf auk þvagsins 5-6 tonn af vatni á ári fyrir hvern grip í fjósi. Afköst við útakstur eru mjög háð þykkt mykjunnar og flutningsvegalengd, en eru oft á bilinu 6-12 tonn á klst. af þynntri mykju. Vinna með dreifaranum gengur í flestum tilvikum greiðlega fyrir sig og stjórnbúnaður er auðveldur í notkun. Ætla verður 40-50 kW (55-68 hö) dráttarvél fyrir hann. Á prófunartímanum komu ekki fram neinar bilanir eða óeðlilegt slit og í heild virðist dreifarinn vera nægilega traustbyggður.


GUNDERSTED – mykjudæla

Skýrsla nr. 552

Gerð: Gundersted type 5". Framleiðandi: maskinfabriken Kimadan, Danmörku. Innflytjandi: Boði s.f., Hafnarfirði.

 

YFIRLIT

Gundersted mykjudælan var prófuð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið og haustið 1985 og notuð alls um 108 klst.

Dælan er miðflóttaafldæla knúin frá aflúrtaki dráttarvélar. Hún er ætluð til dælingar á þunnri mykju hvort heldur er í flutningatæki eða til blöndunar í haughúsum. Hún reyndist vel við flutning á þunnfljótandi mykju úr haughúsi í dreifar. Best hentar að nota dæluna í brunnhús á áburðarkjallara undir gripahúsi. Með dælunni má dæla upp úr allt að 3 m djúpum geymslum. Afköst hennar eru verulega háð þykkt mykjunnar. Flutningsgeta hennar reyndist vera allt að 5000 lítrar á mín við lágt þurrefnisinnihald mykjunnar. Aflþörf dælunnar við dælingu mældist mest um 24 kW (33 hö). Dælan hentar vel til að hræra upp í áburðargeymslum. Álagsöryggi stöðvar dæluna ef fastir aðskotahlutir komast í inntaksop hennar og valda þeir því yfirleitt ekki skemmdum. Í lok reynslutímans kom í ljós að spaðar á dæluhjóli höfðu bognað lítilsháttar undan álaginu. Ekki komu fram aðrar bilanir eða óeðlilegt slit á prófunartímanum.


DNG – hitavakt

Skýrsla nr. 553

Framleiðandi: DNG, Akureyri

 

YFIRLIT

DNG hitavakt frá DNG á Akureyri var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1985. Hitavaktin er ætluð til fjarmælinga á hita í heystæðum, en einnig má nota hana til annarra hitamælinga tengdum búrekstri. Aðalhlutar tækisins eru mælikassi og hitanemar allt að 15 talsins, sem eru tengdir kassanum með venjulegum rafleiðslum. Hitavaktinni fylgir móttakari sem tengdur er í venjulega innstungu á rafkerfi búsins. Móttakarinn gefur frá sér hljóðmerki ef hitastigið fer út fyrir svið sem notandinn getur stillt á mælikassanum. Tækið er tengt 220 volta rafstraum og sýnir með ljósstöfum hitastigið í hverjum hitanema fyrir sig. Hitanemunum er komið fyrir í heystæðu um leið og hirðing fer fram og verða þeir ekki fjarlægðir þaðan fyrr en heyið er leyst upp, oftast við gjafir að vetri. Mælitækið sýnir hitastigið í heyinu á afmörkuðum stöðum en fjöldi hitanema er þó tæpast nægur til að gefa öruggt yfirlit yfir hitafarið í stórum hlöðum. Við þurrheysgerð án súgþurrkunar er notagildi mælitækisins einkum sem aðvörunarbúnaður. Þar sem einungis er blásið hita úr heyjunum má með þessari mælitækni fylgjast með að heyhitinn fari ekki upp fyrir tiltekin mörk. Við góða súgþurrkun með fasttengdum blásara kemur þessi mælitækni einkum að gagni eftir að reglulegum blæstri er hætt, til að kanna hvort einhvers staðar eigi sér stað hitamyndun.

Við votheysgerð geta hitamælingar haft gildi m.t.t. hirðingarhraða og frágangi á stæðu eftir hirðingu. Í gripahúsum þar sem þörf er á nákvæmri stjórnun hitastigs er hægt að nota tækið sem aðvörunarbúnað ef loftræstingin fer úr skorðum.

Mælitækið reyndist traust og öruggt í notkun og nákvæmni hitanemanna, sem notaðir voru, reyndist fullnægjandi við venjulegar hitamælingar í búrekstri.


OLEO-MAC - heyhnífur

Skýrsla nr. 554

Gerð: Oleo-Mac heyhnífur. Framleiðandi: Oleo-Mac, Bagnolo in Piano, Ítalíu. Innflytjandi: Glóbus h.f., Reykjavík.

 

YFIRLIT

Oleo-Mac heyhnífurinn var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins veturinn 1985-1986. Heyskerinn hentar vel til heyskurðar bæði á votheyi og þurrheyi. Hann er knúinn með einfasa rafstraum með 1400 W mótor. Skurðhraðinn er um 1,7 m/mín við votheysskurð en allt að 2,7 m/mín í þurrheyi. Skurðdýptin er 40-50 cm. Rafmagnsnotkun er að jafnaði 4-7 amper. Vinnustaða við notkun á tækinu er fremur góð og tiltölulega auðvelt að stjórna því. Í þéttu votheyi þarf að ýta tækinu niður með nokkrum þunga og sömuleiðis þarf þá nokkurt átak til að lyfta því upp úr skurðfari. Heyskurðurinn verður yfirleitt hreinn og hægt að skera alveg út að veggjum og öðrum hindrunum. Ekki virðist sérstök slysahætta bundin við notkun tækisins ef notkunarreglum er fylgt. Vinna við viðhald á tækinu er lítil og ekki þarf sérsmíðaðan búnað til að hvetja skurðbúnaðinn. Engar meiriháttar bilanir urðu á reynslutímanum, en hlíf er umlykur drifbúnað er of veikbyggð. Straumrofi í handfangi fór úr lagi en í heild virðist tækið nægilega traustbyggt.


NC – mykjudæla

Skýrsla nr. 555

Gerð: NC MKII. Framleiðandi: NC Agricultural Engineering Co. LTD., N-Írlandi. Innflytjandi: Búvélar h.f., Reykjavík.

 

YFIRLIT

NC mykjudælan var prófuð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið og haustið 1986 og notuð alls um 60 klst.

Dælan er miðflóttaaflsdæla knúin frá aflúrtaki dráttarvélar. Hún er ætluð til dælingar á þunnri mykju hvort heldur er í flutningatæki eða til blöndunar í haughúsum. Hún reyndist vel viðflutning á þunnfljótandi mykju úr haughúsi í dreifara. Best hentar að nota dæluna í brunnhúsi á áburðarkjallara undir gripahúsi. Með dælunni má dæla upp úr allt að 3 m djúpum geymslum. Afköst hennar eru verulega háð þykkt mykjunnar. Flutningsgeta hennar reyndist vera rúmir 5000 lítrar á mín við lágt þurrefnisinnihald mykjunnar. Aflþörf dælunnar við dælingu mældist mest um 27 kW (37 hö). Dælan hentar vel til að hræra upp í áburðargeymslum. Álagsöryggi stöðvar dæluna ef fastir aðskotahlutir komast í inntaksop hennar og valda þeir því yfirleitt ekki skemmdum. Á neðri brún dæluspaða er bitegg sem sker hálm eða hey sem kann að berast að dælunni. Á dælunni er burðargrind tengd lyftuörmum dráttarvélar og vökvastimpill til að lyfta henni upp úr dæluþró. Dælan reyndist traustbyggð og ekki komu fram bilanir eða óeðlilegt slit á prófunartímanum.


MENGELE – heyhleðsluvagn

Skýrsla nr. 556

Gerð: Mengele LA"360 Super Quadro. Framleiðandi: Karl Mengele & Söhne Mschinefabrik, V-Þýskalandi. Innflytjandi: Boði s.f. Hafnarfirði.

 

YFIRLIT

Mengele LA"360 Super Quadro heyhleðsluvagninn var prófaður af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1986 og notaður alls 105 klst.

Vagninn er ætlaður til hirðingar á heyi og grænfóðri. Rúmmál vagnsins er um 19,6 m3 og hann vegur tómur um 3,7 tonn. Sópvindan vísar fram og er lyft með vökvaátaki frá dráttarvél. Hleðslutími við þurrheyshirðingu var að jafnaði 3,1 mín/tonn og við vothey 1,6 mín/tonn. Hlassþungi var að jafnaði 3,1 tonn af votheyi og 1,9 tonn af þurrheyi. Hægt er að hafa allt að 33 hnífa í tveim röðum í hleðslustokk vagnsins og er þá bil á milli þeirra um 38 mm. Sé öllum hnífunum beitt verður söxun heysins veruleg, en hún stuðlar að betri verkun við votheysgerð. Vagninn er búinn losunarbúnaði að aftanverðu og getur hann losað beint niður eða til hliðanna. Mestu afköst við losun eru um 5,0 mín á hlass, en þau fara annars eftir því hver afkastageta þess búnaðar er, sem tekur við heyinu úr vagninum. Ætla verður 45-55 kW (61-75 hö) dráttarvél fyrir vagninn eigi að nýta afkastagetu hans til fulls. Á reynslutímanum brotnuðu 4 hnífar. Engar bilanir komu fram og í heild reyndist vagninn traustbyggður.


OTMA – hjólmúgavél

Skýrsla nr. 557

Gerð: OTMA RP 110-SB. Framleiðandi: OTMA SpA, Trestina (PG), Ítalíu. Innflytjandi: Orkutækni h.f. Reykjavík.

 

YFIRLIT

Hjólmúgavélin OTMA RP 110-SB var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1986 og notuð alls um 14 klst.

OTMA RP er hjólmúgavél sem er tengd á þrítengi dráttarvélar og vegur um 550 kg. Vélin er samsett af tveimur rakstrareiningum sem festar eru á einn burðarramma. Vélin reyndist raka viðunandi vel en einnig má nota hana til að rifja hey líkt og flestar gerðir hjólmúgavéla. Magn dreifa í rakstrarfari reyndist að jafnaði á bilinu 1,1-2,0 hb/ha við eðlilegan ökuhraða. Vélin fylgir nokkuð vel ójöfnum á yfirborði landsins. Unnt er að raka frá skurðbökkum og girðingum, en dráttarvélin treður heyflekkinn eins og algengt er með lyftutengdum múgavélum. Vélin rakar frá báðum hliðum og skilar heyinu í einn múga aftur frá miðju dráttarvélar. Við mikla uppskeru er vélin gjörn á að draga heyið í flygsur og skila ójöfnum múgum. Einnig eru múgar hlykkjóttir þar sem vélin er stíftengd dráttarvél. Vinnslubreidd vélarinnar er allt að 7,0 m. Ökuhraði er hæfilegur 9-13 km/klst við algengar aðstæður og voru afköst að jafnaði 7,0-7,4 ha/klst. Múgavélin er erfið í tengingu við dráttarvél og vissir örðugleikar að nota hana í heilu lagi á litlum og óreglulegum spildum. Auðvelt er að taka vélina í sundur og nota hvorn rakstrarhluta fyrir sig. Hvor hluti vélarinnar er þá með vinnslubreidd allt að 3,3 m. Engar bilanir komu fram á reynslutímanum.


MARAGON – heyhleðsluvagn

Skýrsla nr. 558

Gerð: Maragon Faster 40. Framleiðandi: Eugenio Marangon & Figilo SpA, Ítalíu. Innflytjandi: Orkutækni h.f., Reykjavík.

 

YFIRLIT

Maragon Faster 40 heyhleðsluvagninn var prófaður af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1986 og notaður alls 80 klst. Vagninn er ætlaður til flutninga á heyi og grænfóðri. Sópvindan vísar aftur og er lyft með vökvaátaki frá dráttarvél. Hleðslubúnaðurinn vann óaðfinnanlega. Hleðslutími við þurrheyshirðingu var að jafnaði 5,6 mín/tonn og votheyshirðingu 2,1 mín/tonn. Hlassþungi var að jafnaði 2,7 tonn af votheyi en 1,7 tonn af þurrheyi. Koma má fyrir 11 hnífum í vagninum í tveimur röðum og er bil milli þeirra þá um 140 mm. Til að söxun á votheyi verði umtalsverð eru hnífarnir of fáir. Þeir létta hins vegar alla meðferð á heyinu og stuðla að betri þjöppun í votheysgeymslu. Losun vagnsins tekur minnst um 2,3 mín auk þess sem nokkurn tíma tekur að bakka að losunarstað og opna og loka afturgrind. Ætla verður minnst 40 kW (54 hö) dráttarvél fyrir vagninn eigi að fullnýta rými hans og afköst. Hann er á fjórum belgmiklum hjólbörðum og sporar því tiltölulega lítið á gljúpum jarðvegi. Á reynslutímanum bilaði keðjulás í drifkeðju botnfæribands auk þess sem fjórir tindar í sópvindu bognuðu. Annars reyndist vagninn traustbyggður og engar meiri háttar bilanir komu fram.


BOXJET – þvottatæki

Skýrsla nr. 559

Gerð: Turbo 8-70. Framleiðandi: Interpump Spa. Ítalíu. Innflytjandi: Orkutækni h.f., Reykjavík.

 

YFIRLIT

Boxjet þvottatækið var reynt af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1986. Tækið er framleitt fyrir almennan markað, en hentar vel til hreingerninga á búvélum og í búrekstrarbyggingum. Það er knúið af rafmótor og er háþrýstidælan sambyggð honum. Dælan er þriggja strokka stimpildæla sem gefur þrýsting allt að 6,7 MPa (1 MPa=10,2 bar) en hann má stilla þreplaust niður í um 1,1 MPa. Straumnotkun tækisins er breytileg eftir þrýstingi frá um 6,0 A í 9,5 A, og sömuleiðis vatnsnotkun frá 3,1 l/mín í 7,4 l/mín. Slagkraftur frá ýrisstút er mjög háður fjarlægt frá yfirborði. Í 50 mm fjarlægð með stillingu á mesta þrýsting er krafturinn um 550 kPa (1 kPa=10,2 g/m2) sem dreifist á um 25 mm2 flöt. Breyta má dreifigeislanum með stillingu á ýrisstút og svo þrýstingi á þvottaflöt með því að færa ýrisstút fjær. Á þvottatækinu er búnaður til að blanda hreinsiefnum í vatnið og virtist hlutfall þeirra oftast vera um 20%. Tækið er einfalt og lipurt í notkun og vinnur vel en hentar best til staðbundinna verkefna þar eð undir því er ekki hjólagrind. Á reysnlutímanum bilaði slanga frá dælu að handfangi á ýrisstút og sprunga kom í handfangið. Engar bilanir komu fram á mótor eða dælu og í heild virðist tækið traustbyggt.


NIEMEYER – sláttuþyrla

Skýrsla nr. 560

Gerð: RO 170-H. Framleiðandi: H. Niemeyer Söhne Gmbh & Co., Þýskalandi. Innflytjandi: Hamar h.f. Reykjavík.

 

YFIRLIT

Sláttuþyrla Niemeyer RO 170-H var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1986 og notuð alls um 105 klst.

Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og er lyft upp með vökvaátaki í flutningsstöðu. Þyngd hennar er um 372 kg. Sláttuþyrlan reyndist slá jafnt og var stubblengd í sláttufari við ökuhraðann 5,5-7,1 km/klst um 70% innan 20-50 mm markanna. Stilla má sláttufjarlægð með stillisveifum sem eru ofan á vélinni. Á illa sléttu landi bar á því að sláttuhnífarnir særðu grasrót en við algengar aðstæður fylgdi vélin vel ójöfnum landsins. Vinnslubreidd sláttuþyrlunnar er allt að 1,60 m og mældust afköst að jafnaði 1,0-1,4 ha/klst við venjulegar aðstæður og ökuhraðann 8-12 km/klst. Ætla verðum um 27-37 kW (37-50 hö) dráttarvél fyrir sláttuþyrluna. Ein hnífafesting bognaði þegar sláttubúnaður varð fyrir jarðföstum steini. Hnífaslit voru eðlileg. Engar bilanir komu fram á reynslutímanum.


DEUTZ-FAHR - múgavél

Skýrsla nr. 561

Gerð: Deutz-Fahr TS 3.35. Framleiðandi: Deutz-Fahr KHD, V-Þýskalandi. Innflytjandi: Þór h.f. Reykjavík.

 

YFIRLIT

Múgavélin Deutz-Fahr TS 3.35 var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1986 og notuð alls um 98 klst.

Múgavélin er tengd á þrítengi dráttarvélar og knúin frá aflúrtaki. Þyngd vélarinnar er um 356 kg. Hún setur heyið í beina, jafna og sundurlausa múga. Magn dreifa í rakstrarfari mældist að jafnaði á bilinu 40-100 kg þurrefni á hektara (0,5-1,25 hb/ha) við eðlilegan ökuhraða. Dreifarmagn verður þó nokkru meira ef tún eru rásótt eða hey niðurbarið og blautt. Vélin fylgir að jafnaði fremur vel ójöfnum á yfirborði landsins. Hún er gjörn á að taka með sér steinvölur sem kunna að vera í túnum og setja í heymúgann. Við múgun ekur dráttarvélin í heyflekknum en þó er unnt að raka frá skurðbökkum og girðingum. Í vindstrekkingi rýrna rakstrargæðin nokkuð einkum ef múgað er í vindátt. Breidd rakstrarfars vélarinnar er allt að 2,5 m. Ökuhraði við múgun reyndist hæfilegur 8-11 km/klst og voru afköst að jafnaði um 1,8-2,3 ha/klst. Múgavélin er sterklega byggð, og fremur lipur við tengingu og í notkun. Engar bilanir komu fram á reynslutímanum.


 

 Leit á vef
 

Búvélaprófanir

Yfirlit búvélaprófana 1968-1979

Yfirlit búvélaprófana 1968-1979

1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2003 2004 2005

 

Flýtikrækjur

landbunadur.is
Rit LbhÍ
Vefpóstur LbhÍ