|
|
Um háskólann
Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) tók til starfa 1 janúar 2005. Rektor er dr. Ágúst Sigurðsson.
Skólinn er vísindaleg fræðslu- og rannsóknastofnun á háskólastigi auk þess sem þar er boðið upp á starfsmenntanám í búfræði og garðyrkjutengdum greinum auk endurmenntunar. | |
Þrjár deildir eru við skólann: Auðlindadeild, Umhverfisdeild, og
Starfs- og endurmenntunardeild.
Námsleiðir
 | Háskólanám
Nám til BS prófs á fjórum námsbrautum: búvísindum, náttúru- og umhverfisfræði, skógfræði/landgræðslu og umhverfisskipulagi (fornám að landslagsarkítektúr). Einnig er boðið upp á mastersnám og doktorsnám.
Starfsmenntanám
Fimm námsleiðir eru á framhaldsskólastigi: Blómaskreytingar, búfræði, garðyrkjuframleiðsla, skógur/umhverfi og skrúðgarðyrkja.
Fjarnám
Á fimm starfsmenntabrautum LbhÍ er boðið upp á fjarnám: búfræðibraut, garð- og skógarplöntubraut, skógræktarbraut, umhverfisfræðibraut og ylræktarbraut.
Endurmenntun
Auk þessa starfrækir skólinn endurmenntunardeild þar sem boðið er upp á fjölda námskeiða árlega. |
Aðalaðsetur Landbúnaðarháskólans er á Hvanneyri í Borgarfirði en skólinn er einnig með starfsemi á eftirtöldum stöðum: Keldnaholti í Reykjavík, Reykjum í Ölfusi, Möðruvöllum í Hörgárdal, Hesti í Borgarfirði og Stóra - Ármóti í Árnessýslu. Ennig er skólinn þátttakandi í Efnagreiningum á Keldnaholti og Matvælarannsóknum Keldnaholti.
|
|
|