Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Um háskólann
Nám
Hagnýtar uppl.
Nemendur
Rannsóknir
Bókasafn
Útgáfa
Tölvumál
- Umgengisreglur
- Aðstoð
- Bókanir-Keldnaholt
- Vefpóstur
- Merki (Logo) LBHÍ
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
 
Póstur á vefstjóra

Almennar reglur um notkun tölvubúnaðar og aðgang að netkerfi Landbúnaðarháskóla Íslands


Tölvu og netbúnaður í eigu eða umsjá Landbúnaðarháskóla Íslands er eingöngu ætlaður til eflingar námi, kennslu, rannsóknum, samskipta og öðrum þáttum er samræmast hlutverki og markmiðum Landbúnaðarháskólans

Reglur sem háskólaráð eða umsjónamaður tölvukerfa setur gildir fyrir alla starfsmenn og nemendur Landbúnaðarháskólans. Notendum er skylt að kynna sér reglurnar ásamt reglum um notkun RH-nets.

Tölvubúnað, tölvunet, gögn og aðra þjónustu sem veitt er hjá Landbúnaðarháskólanum ber að nota siðlega og löglega. Hver einstakur notandi ber ábyrgð á sinni notkun.

Eingöngu má nota þann tölvubúnað sem viðkomandi hefur leyfi til. Notandi skal auðkenna sig rétt í öllum samskiptum á neti skólans.

Notandi skal gera það sem í hans valdi stendur, til að tryggja öryggi tölvubúnaðar Landbúnaðarháskólans . Virða ber friðhelgi annarra notenda og fara í einu og öllu eftir höfundaréttarákvæðum hugbúnaðar, forrita og gagna sem notuð eru. Virða ber reglur einstakra neta og upplýsingaveitna.

Óheimilt er að reyna að tengjast tölvubúnaði Landbúnaðarháskólans eða annarra aðila, sem tenging fæst til um netkerfi skólans, með því að gefa upp notandanafn sem viðkomandi hefur ekki rétt til að nota. Óheimilt er að reyna að komast yfir notandanafn hjá öðrum notendum, innan skólans eða utan. Óheimilt er að veita öðrum aðgang að notandanafni sínu.

Óheimilt er að reyna að komast yfir gögn eða hugbúnað í eigu annarra, nema skýrt leyfi sé fyrir hendi. Óheimilt er að breyta eða reyna að breyta hugbúnaði eða gögnum hjá öðrum notendum eða hafa á annan hátt áhrif á notkunarmöguleika annarra notenda.

Óheimilt er að breyta, færa til eða fjarlægja vélbúnað, hugbúnað eða gögn sem eru í eigu skólans nema með skýru leyfi tölvumanna eða yfirstjórnar.

Óheimilt er að afrita hugbúnað eða gögn sem ekki eru í eigu viðkomandi notanda nema með skýru leyfi eiganda.

Óheimilt er að nota tölvubúnað eða gögn Landbúnaðarháskólans í viðskiptalegum tilgangi, án sérstaks leyfis.


Brot á reglum

Verði vart við brot á notkunarreglum tölvukerfis Landbúnaðarháskólans áskilur umsjónamaður tölvukerfa sér rétt til að loka aðgangi viðkomandi að tölvukerfinu og senda rekstrarstjóra upplýsingar um meinta misnotkun til úrskurðar.

 


 Leit á vef

Fyrir nemendur

Aðgangur að netkerfi
Aðstoð við tölvumál
Ljósritun
Tölvuver
Prentun - prentkvóti
Vefpóstur
Vistun gagna
Vírusvarnir