Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Um háskólann
Nám
Hagnýtar uppl.
Nemendur
Uppl. Stefanía
Rannsóknir
Bókasafn
Útgáfa
Tölvumál
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
In English
 
Póstur á vefstjóra
Martin Haworth frá Bretlandi verður gestur á morgunverðarfundi BÍ og aðalfyrirlesari.
Martin Haworth frá Bretlandi verður gestur á morgunverðarfundi BÍ og aðalfyrirlesari.

Bændasamtök Íslands | 10/30/2007
Hvað kostar maturinn minn á morgun?
Bændasamtök Íslands halda morgunverðarfund í Sunnusal Hótel Sögu þriðjudaginn 6. nóvember nk. frá kl. 8:15 til 10:00. Yfirskriftin er "Hvað kostar maturinn minn á morgun?" en ræðumaður verður Martin Haworth, yfirmaður stefnumótunar ensku bændasamtakanna National Farmers’ Union (NFU). Hann fjallar um þróun landbúnaðar og búvöruverðs í heiminum. Hver er líkleg þróun til framtíðar? Mun eftirspurnin halda verði uppi? Hvaða áhrif eru líkleg af hlýnun andrúmsloftsins og aðgerðum til að sporna gegn henni? Haworth mun ræða um afleiðingar þurrka í Ástralíu, aukna eftirspurn í Asíu, framleiðslu á lífeldsneyti úr korni og vaxandi umhverfisvitund neytenda. Spurt verður hvaða áhrif þessir þættir hafa á framleiðslu landbúnaðarafurða í Norðvestur-Evrópu og hvar íslenskir bændur standa í umróti framtíðarinnar.

Martin Haworth var í nokkur ár áhrifamikill embættismaður ESB í Brussel áður en hann réðst til NFU árið 1980. Haworth hefur gengt mörgum ábyrgðarmiklum störfum hjá NFU og annast nú stefnumótun samtakanna. Hann hefur mikla þekkingu á landbúnaðarframleiðslu og sölu afurða á evrópskum neytendamarkaði.

Pallborðsumræður
Martin Haworth, yfirmaður stefnumótunar NFU.
Salvör Jónsdóttir, skipulagsfræðingur, ráðgjafarfyrirtækinu Alta.
Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu.
Daði Már Kristófersson, sérfræðingur BÍ í hagfræði.

Fundurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á þessum málefnum. Fundarstjóri verður Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Aðgangur er ókeypis og veitingar verða í boði bænda.



Til baka