Leiðbeiningar um leit í Metrabók
Gögn bókasafnsins eru skráð í tölvukerfið Metrabók.
Leita má í skránni af Internetinu og athuga þannig hvaða efni er til á safninu.
Fyrir miðju er reitur þar sem leitarorð er skrifað. Leita má að:
- nafni höfundar (erlent ættarnafn, íslenskt skírnarnafn)
- titli (heiti bókar)
- efnisorði (orði sem lýsir því viðfangsefni sem leitað er að)
Sé leitað að ákveðinni bók er sleginn inn í leitarreitinn titill hennar eða höfundur.
Sé leitað að gögnum um ákveðið efni er best að slá inn efnisorð.
*Síðan er smellt á LEITA, og leitar þá tölvan að öllum færslum í skránni.

Upp kemur listi yfir færslur sem koma til greina. Til að sjá hvar bók er staðsett í safninu er smellt á viðkomandi línu. Ítarupplýsingar um bókina birtast í reit fyrir neðan og aftast í textanum kemur staðsetningin innan [hornklofa]. Efst til vinstri er flettireitur til að velja leitaraðferð eftir því hvað á við. Sjálfgefið er Allt en þá leitar tölvan hvar sem er í skránni. Nauðsynlegt getur verið að þrengja leitina, t.d. ef margar færslur koma upp við fyrstu leit. Hægt er að leita eingöngu að höfundum, titlum eða efnisorðum. |