Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Um háskólann
Nám
Hagnýtar uppl.
Nemendur
Uppl. Stefanía
Rannsóknir
Bókasafn
Útgáfa
Tölvumál
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
In English
 
Póstur á vefstjóra

Landbúnaðarháskóli Íslands | 09/28/2005
Grænni skógar á Vesturlandi

Fulltrúar Landbúnaðarháskóla Íslands, Skógræktar ríkisins, Landgræðslu ríkisins, Vesturlandsskóga og Félags skógarbænda á Vesturlandi undirrituðu nýverið samning um heildstæða skógræktar- og landgræðslufræðslu fyrir skógarbændur á Vesturlandi næstu þrjú árin í verkefninu Grænni skógar.

Með samningunum eru Grænni skógar komnir í alla landsfjórðunga og þar með er búið að loka hringnum í kringum landið. Í dag eru um 100 skógarbændur þátttakendur í Grænni skógum en búið er að útskrifa tvo hópa, frá Suðurlandi og Norðurlandi. 

Markmið Grænni skóga er að gera þátttakendur betur í stakk búna til að taka virkan þátt í mótun og framkvæmd skógræktar og landgræðslu á bújörðum með það að markmiði að auka land- og búsetugæði, verðgildi og fjölþætt notagildi jarða í umsjón skógarbænda. Náminu er ætlað að nýtast þeim sem stunda eða  hyggjast stunda skógrækt og landgræðslu, einkum skógarbændum og þeim sem þjónusta landshlutabundin skógræktarverkefni.

Landbúnaðarháskólinn sér um framkvæmd námskeiðanna og rekstur í samvinnu við fimm manna verkefnisstjórn sem skipuð er einum fulltrúa frá hverjum samstarfsaðila. 

Meðfylgjandi mynd var tekin við undirritunina en á henni eru, talið frá vinstri, Ágúst Sigurðsson, rektor, Skúli Alexandersson, formaður stjórnar Vesturlandskóga, Þórunn Pétursdóttir, héraðsfulltrú Landgræðslunnar á Hvanneyri, Birgir Hauksson, skógarvörður Skógræktarinnar á Vesturlandi og Hulda Guðmundsdóttir, formaður Félags skógarbænda á Vesturlandi.

Verkefnisstjóri Grænni skóga er Magnús Hlynur Hreiðarsson, starfsmaður Landbúnaðarháskólans með aðsetur á Reykjum í Ölfusi.



Til baka