Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Plöntueftirlit
Innflutningur
Útflutningur
Kartöfluútsæði
Sjúkdómar
Viðarumbúðir
Forsaga
Tenglar

 

 

 
 

Viðarumbúðir og útflutningur


Það er algengt að gerðar séu kröfur til timburs við innflutning til að draga úr líkum þess að með því berist plöntuskaðvaldar. Hins vegar hafa menn lengi litið fram hjá þeim viði sem notaður er til að bera, styðja við og verja alls kyns vörur í flutningi þeirra á áfangastað þótt sá viður sé engan veginn hættulaus. Mest er hættan þegar nýr og ferskur viður er notaður í umbúðir og skaðvaldar sem voru í trjánum á vaxtarstaðnum berast áfram með viðnum. Árið 1996 fannst í fyrsta sinn bjalla nokkur af ætt trjábukka (Cerambycidae) á trjám í New York í Bandaríkjunum. Ber hún enska heitið „Asian longhorned beetle“ (Anoplophora glabripennis) og veldur skaða á ýmsum tegundum harðviðartrjáa. Telja Bandaríkjamenn að meindýr þetta hafi borist með viðarumbúðum frá Asíu. Einnig má nefna sem dæmi furuþráðorminn (Bursaphelenchus xylophilus) sem finnst í N-Ameríku, Japan, Kína og víðar í Asíu en hefur ekki enn náð fótfestu í Evrópu og gæti hæglega borist með viðarumbúðum.

Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) gaf í mars 2002 út leiðbeinandi reglur um viðarumbúðir (ISPM 15) sem eiga að stuðla að því að draga úr hættunni á að með þeim berist skaðvaldar, Guidelines for regulating wood packaging material in international trade-International standards for phytosanitary measures nr. 15. Þar er mælt með að trjáviðurinn sé hitaður eða svældur með metýlbrómíði og síðan merktur á ákveðinn hátt til að staðfesta að tilskilin meðhöndlun hafi átt sér stað. Plöntueftirlitsaðilum í hverju landi er falið að annast vottun á fyrirtækjum sem smíða og meðhöndla tréumbúðir fyrir útflutning. Eins og er lítur út fyrir að þessi alþjóðlegi staðall verði almennt gildandi í alþjóðaviðskiptum. Undanskilinn er ýmis konar unninn viður sem til er orðinn við límingu, hitun eða pressun eins og krossviður og spónarplötur. Einnig eru undanskildar viðarafurðir eins og sag, tréhálmur, hefilspænir og kurl undir 6 mm á þykkt.

Kínverjar settu reglur um viðarumbúðir er tóku gildi haustið 2002, Kanadamenn í janúar 2004 og Ástralir 1. september 2004. Reglur Evrópusambandsins tóku gildi 1. mars 2005 og frá og með 16. september 2005 munu Bandaríkin, Kanada og Mexíkó framfylgja mjög ákveðið sínum reglum um viðarumbúðir. Flest ríki virðast ætla að taka upp ISPM 15 staðalinn, þ.e.a.s. gerð er krafa um að umbúðirnar séu rétt merktar til staðfestingar á því að umbúðirnar sjálfar eða sá viður sem notaður var til framleiðslu þeirra hafi verið hitaður nægjanlega til að hitinn í innsta kjarna nái 56°C og haldist þannig í 30 mínútur. Kínverjar einir gera þá kröfu til viðbótar að með hverri sendingu fylgi plöntuheilbrigðisvottorð (phytosanitary certificate) með viðarumbúðunum. Frá 1. janúar 2006 taka gildi nýjar reglur í Kína. Þá verður ISPM 15 staðallinn tekinn upp og fallið frá kröfu um heilbrigðisvottorð. Þá nægir að brettin séu rétt merkt en hins vegar er krafa um að séu viðarumbúðir í sendingunni skuli tilkynna fyrirfram til réttra eftirlitsaðila að viðarumbúðir séu til staðar og óska eftir skoðun. Sé það ekki gert er hætt við að refsað sé fyrir.

Til að tryggja að íslenskir útflytjendur geti uppfyllt þær kröfur sem innflutningslöndin gera til viðarumbúða og að útflutningsvörur okkar komist þannig vandræðalaust á áfangastað setti landbúnaðarráðuneytið þ. 6. apríl 2004 reglugerð um viðarumbúðir, reglugerð nr. 343 um viðarumbúðir vara við útflutning. Þar er plöntueftirliti Rannsóknastofnunar landbúnaðarins (nú Landbúnaðarháskóla Íslands, og frá 1. janúar 2006 Landbúnaðarstofnunar ) falið að annast vottun fyrirtækja til hitunar á viðarumbúðum eða viði til umbúðagerðar. Plöntueftirlitinu er einnig falið að hafa eftirlit með að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt.

Fyrirtæki sem óska eftir að hljóta vottun til hitunar á viði eða viðarumbúðum skulu sækja um það til Plöntueftirlits Landbúnaðarstofnunar á umsóknareyðublaði sem ná má í hér á heimasíðunni. Við vottun er fyrirtækinu úthlutað númeri og það fær heimild til að merkja umbúðirnar með hinu alþjóðlega viðurkennda merki. Á heimasíðunni verður einnig listi yfir þau fyrirtæki er vottun hafa hlotið.

Fyrirtæki sem flytur út vörur og notar vottunarskyldar viðarumbúðir skal gæta þess að nota einungis rétt merktar umbúðir.

Noti menn umbúðir við útflutning frá Íslandi sem meðhöndlaðar hafa verið og merktar í einhverju öðru landi skal útflytjandi tryggja sér að yfirvöld í því landi sem flytja á vörur til geri ekki athugasemdir við þær umbúðir. Ef hins vegar er ætlast til að plöntueftirlitið hér á landi gefi út heilbrigðisvottorð með þessum umbúðum er það krafa plöntueftirlitsins að umbúðunum fylgi heilbrigðisvottorð (phytosanitary certificate) við innflutning umbúðanna hingað til lands þar sem plöntueftirlit viðkomandi lands vottar að tilskilin meðhöndlun hafi átt sér stað og getur plöntueftirlitið hér þá gefið út svokallað endurútflutningsvottorð (reexport) með umbúðunum þar sem vottorðið frá upprunalandinu fylgir með sem fylgiskjal.

Sjá reglugerð nr. 343/2004

Sjá Umsókn um vottun

Sjá umsóknareyðublað fyrir heilbrigðisvottorð Umsókn heilbrigðisvottorð.

Sjá hér: Listi yfir vottuð fyrirtæki

Tenglar:

ISPM 15 staðallinn

Reglur Kanada

Sjá reglur: Bandaríkin

Sjá Evrópusambandið (Commission directive 2004/102/EC sjá nr. 6(‘2) í viðauka)

Sjá nýjar reglur í Kína frá 1. janúar 2006

AQSIQ Notice No.11

AQSIQ Notice No. 32


 
 

Flýtikrækjur

landbunadur.is
Rit LbhÍ
Vefpóstur LbhÍ

Viðarumbúðir