|
|
Kartöfluútsæði
Um kartöfluútsæði
Reglur þær er gilda um ræktun og sölu á kartöfluútsæði eru að finna í reglugerð landbúnaðarráðuneytisins um kartöfluútsæði nr. 401 frá 1. júní 1999 (sjá reglugerð). Samkvæmt henni hefur Útsæðisnefnd umsjón með framkvæmd reglugerðarinnar en Rannsóknastofnum landbúnaðarins (RALA) annast eftirlit með heilbrigði útsæðis og sér um framleiðslu á upphafsstofnum stofnræktar.
Útsæðisnefnd skipa: Ólafur Geir Vagnsson, Búnaðarsambandi Eyjafjarðar, formaður, Sigurgeir Ólafsson, Plöntueftirliti RALA, ritari og Kristján Gestsson, Forsæti, Villingaholtshreppi, meðstjórnandi.
Segja má að um þrenns konar útsæði sé að ræða í sölu (sjá Skipulag útsæðismála):
1. Stofnútsæði (sjá Skipulag stofnræktar)
2. Útsæði frá útsæðisleyfishafa til almennrar dreifingar (sjá lista yfir Ræktendur)
3. Annað útsæði sem fer beint milli tveggja ræktenda
Ræktun
- Ef vissir hættulegir skaðvaldar (s.s. hringrot, hnúðormur o.fl.) finnast í ræktunarlandi eða uppskeru hjá ræktanda er honum óheimilt að láta af hendi til annarra kartöflur til niðursetningar.
- Ræktandi sem ætlar að afhenda útsæði til sölu og dreifingar á almennum markaði, þ.e.a.s. í gegnum sölu- og dreifingarfyrirtæki til stærri hóps ræktenda, þarf til þess sérstakt leyfi frá landbúnaðarráðuneytinu. Skilyrði fyrir útsæðisleyfi eru: Reglubundin endurnýjun með kaupum á stofnútsæði, árleg sýnataka vegna hringrotsleitar og jarðvegsrannsókn á minnst 4 ára fresti vegna hnúðormaleitar.
- Ef áðurnefndir skaðvaldar finnast ekki er ræktanda heimilt að afhenda öðrum ræktanda útsæði án sérstaks leyfis.
Sala og dreifing
Til að annast sölu og dreifingu kartöfluútsæðis á almennum markaði þarf leyfi landbúnaðarráðuneytisins. Gildir það eingöngu um fyrirtæki sem taka útsæði beint frá ræktendum. Verslanir sem taka við útsæði frá slíkum viðurkenndum dreifingaraðilum og selja áfram til ræktenda í órofnum umbúðum þurfa ekki til þess leyfi en ber að virða ákvæði 24. gr. reglugerðarinnar sem segir:
"Við dreifingu á kartöfluútsæði skal þess gætt að það komist ekki í snertingu við matarkartöflur eða þá hluti (s.s. pökkunarvélar, bretti, lyftara o.fl.), sem notaðir hafa verið við dreifingu á matarkartöflum, nema því aðeins að sótthreinsun hafi áður farið fram. Í smásölu skal útsæðið haft aðskilið frá matarkartöflum og skal tilgreina á tryggilegan hátt að um kartöfluútsæði sé að ræða."
Megintilgangur með leyfum til sölu og dreifingar á útsæði er að tryggja að einungis sé dreift útsæði frá ræktendum með útsæðisleyfi (sjá Sölu- og dreifingaraðilar). |
|
|