Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Um háskólann
Nám
Hagnýtar uppl.
Nemendur
Uppl. Stefanía
Rannsóknir
Bókasafn
Útgáfa
Tölvumál
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
In English
 
Póstur á vefstjóra

Sláturlambalíkan á vef LbhÍ

Á útmánuðum 2007 fóru fram námskeið á vegum LbhÍ undir heitinu “Aukin verðmæti sláturlamba” á alls 6 stöðum á landinu og voru þátttakendur nálægt 70 talsins. Á þessum námskeiðum var notað reiknilíkan af sláturlambaframleiðslu sem m.a. tekur tillit til áhrifa fallþunga á flokkun dilka, áhrifa sláturtíma á verðlagningu kjötsins og margra fleiri þátta er lúta að því að hámarka verðmæti dilkakjötsframleiðslunnar á hverju búi. Líkanið hefur nú verið endurbætt á þann hátt að nota má raunveruleg gögn um flokkun lambanna skv. EUROP-mati með því að ná í slík gögn úr vef-Fjárvís. Bæði Fjárvís og líkanið hafa verið löguð að þessum möguleika. Til að nota líkanið verða menn að kunna undirstöðuatriði í Excel en annars hefur verið reynt að gera það sem auðveldast í notkun þó að margt megi vafalaust bæta. Allar ábendingar um það eru velkomnar á póstfangið jois@lbhi.is
Leiðbeiningar fylgja líkaninu sem er að finna hér