|
|
Háskólaþorpið Hvanneyri
aðstaða og upplýsingar fyrir skólaárið 2006 – 2007
Smella á mynd til að stækka..
Innritunargjöld
Innritunargjöld fyrir skólaárið 2006 – 2007 eru:
• Háskólanám kr. 45.000
• Starfsmenntanám kr: 27.000
Hætti nemandi við skólavist eftir að innritunargjöld eru greidd en áður en skóli hefst, endurgreiðist 75% þeirra.
Húsnæði nemenda
 | Árið 1989 var stofnað hlutafélag um rekstur nemendagarða og hefur síðan verið staðið að mikilli uppbyggingu og aukningu húsnæðis fyrir nemendur.
Sjá nánar umsóknir hér.
Sjá myndir úr nemendagörðum hér |
Nemendum bændadeildar bjóðast herbergi á heimavist. Leiga fyrir eins manns herbergi er kr: 16.000 á mánuði. Aðstaða til þvotta og mötuneyti eru til staðar. Nemendur á heimavist greiða 5.000 kr í upphafi skólaárs, sem tryggingagjald vegna lykla og skila á herbergi. Þessi upphæð er endurgreidd við skólalok þegar lyklum og húsnæði er skilað og búið að taka það út.
Ferðakostnaður
Nemendur greiða útlagðan kostnað vegna náms- og kynnisferða sem tengjast einstökum námsgreinum.
Annar kostnaður
Hægt er að kaupa prent- og ljósritunarkvóta hjá gjaldkera skólans. Ýmis pappírskostnaður og annar efniskostnaður er vegna sameiginlegra verkefna og gagna sem tengjast kennslunni. Þessi kostnaður er innheimtur í lok hverrar annar.
Hesthús á Hvanneyri
Á Hvanneyri geta nemendur fengið leigða aðstöðu fyrir hross í hesthúsi skólans. Um er að ræða tveggja hesta stíur með sandbotni, aðgengi að stóru útigerði, hringtamningagerði og stóru tamningagerði. Plássið fyrir hvern hest kostar kr.14.000,- m.vsk. veturinn 2007/2008 og var innifalið fóður og fóðrun, steinefnagjöf auk aðgengis að undirburði.
Hagaganga
Á Hvanneyri og á bænum Hesti geta nemendur og staðarbúar fengið aðstöðu fyrir hross í hagagöngu. Yfir beitartímann kostar hagaganga kr. 2.000,- m.vsk. pr. mánuð fyrir hvern hest en kr. 4.000,- m.vsk. pr. mánuð þegar fóðrað er yfir háveturinn.
Tölvumál
 | Landbúnaðarháskóli Íslands rekur öfluga tölvu- og upplýsingaþjónustu sem jafnast á við það besta sem gerist í háskólaumhverfi nútímans. Nemendur með fartölvur hafa aðgang að þráðlausri internet tengingu, auk þess sem þeir fá netfang og aðstöðu til vistunar á gögnum. Nemendur hafa þar að auki aðgang að tölvuveri á Hvanneyri, Reykjum og á Keldnaholti. Nemendur njóta einnig afsláttarkjara skólans við kaup á vírusvarnar-hugbúnaði. Nánari upplýsingar hér,,
|
Bókasafn
Bókasafn skólans er starfrækt á Hvanneyri í Borgarfirði, Reykjum í Ölfusi og á Keldnaholti í Reykjavík. Það veitir alla almenna þjónustu s.s. útlán, millisafnalán, upplýsingaþjónustu og aðstoð við heimildaleit. Allir nemendur skólans fá við upphaf náms kynningu á þjónustu bókasafnsins og kennslu í notkun gagnagrunna á geisladiskum og heimildaleit í erlendum gagnabönkum.
Skólafélag
Skólafélag nemenda við skólann var stofnað 2005. Markmið félagsins er að hafa umsjón með félagsstörfum innan skólans og gæta hagsmuna nemenda. Það hefur samskipti við önnur félög og hreyfingar námsmanna sem taka til háskóla- og framhaldsskólastigs. Innan félagsins eru starfandi ýmsir klúbbar, s.s búfjárræktarklúbbur, dansklúbbur, hestamannafélagið Grani, ljósmyndaklúbbur o.fl. Klúbbarnir hafa staðið fyrir fjölbreyttum uppákomum, t.d. eru farnar skoðunar- og kynnisferðir og haldnir fyrirlestrar um ýmis málefni landbúnaðarins. Sjá nánar á vefsíðu félagsins, www.slbh.is
Leik-og grunnskólar
Á Hvanneyri er leikskóli og grunnskóli fyrir börn í 1. – 5. bekk. Eldri nemendum er ekið í Grunnskóla Borgarfjarðar, Kleppjárnsreykjaskóla í Reykholtsdal sem er í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá Hvanneyri.
Leikskólinn Andabær er á Hvanneyri og rekinn af Borgarfjarðarsveit. Skólinn starfar í þremur deildum og vistar 41 barn frá 18. mánaða til 6 ára aldurs. Heimilt er að sækja um vistun þegar barnið hefur náð sex mánaða aldri. Einkunnarorð leikskólans eru “Leikur – gleði – vinátta” og má segja að þau gangi eins og rauður þráður í gegnum allt leikskólastarfið. Markmiðið er að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á leikinn.
 |
| Í Andabæ er mikið lagt upp úr skapandi vinnu við leik og störf barnanna. Sú uppeldisstefna sem leikskólinn aðhyllist er sótt í smiðju John Dewey, kennara og heimspekings. Eitt af einkunnarorðum Deweys er að læra af reynslunni (learning by doing) þar sem sköpunargleði og frumkvæði barnsins er í brennidepli. |
|
Árið 2005 fékk Andabær, Grænfánann afhentan og varð þar með umhverfisvænn leikskóli. Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni sem hefur það markmið að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Hafinn er undirbúningur byggingu nýs leikskóla á Hvanneyri en núverandi húsnæði Andabæjar er of lítið. Nýi leikskólinn verður tilbúinn um mitt ár 2008.
Leikskólastjóri Andabæjar er Valdís Magnúsdóttir.
Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 437 0120. Netfangið er andabaer@borgarfjordur.is
Ath. nauðsynlegt er að sækja um vistun barns um leið og sótt er um nám við LbhÍ. Ekki seinna en 15.júní.°
Grunnskóli Borgarfjarðar
Andakílsskóli. Skólinn er lítill grunnskóli fyrir 1. – 5. bekk. Skólaárið 2005 – 2006 voru þar 42 nemendur. Skólinn hefur nýtt smæð sína sem styrk og lagt áherslu á útinám, tengsl við nærumhverfi og fjölbreytta og skapandi kennsluhætti. Nemendur og kennarar hafa tekið þátt í Comeniusarsamstarfi og fengið ýmsa styrki til skólaþróunarverkefna. Þá hefur skólinn haft Grænfánann síðan 2002 og tekið þátt í verkefninu ,,Lesið í skóginn með skólum” . Nánari upplýsingar: s: 437 0009, veffang: www.andakill.is – deildastjóri er Elísabet Haraldsdóttir, tölvupóstfang: elsa@andakill.is
Mikilvægt er að sækja um skólavist fyrir börn í 1.- 5. bekk um leið og sótt er um nám við LbhÍ.
Kleppjárnsreykjaskóli er í Reykholtsdal. Nemendur eru frá 1. – 10. bekk. Eins og Andakílsskóli hefur skólinn tekið þátt í verkefninu “Lesið í skóginn með skólum” og nýtt sér nærumhverfi til að vinna með sagnahefðina. Skólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar er Guðlaugur Óskarsson, s: 435 1171 – 435 1173 kleppjarnsreykir.ismennt.is. tölvupóstfang: kljr@ismennt.is
Mikilvægt er að sækja um skólavist fyrir börn í 6. – 10. bekk um leið og sótt er um nám við LbhÍ.
Önnur þjónusta á staðnum
 | Búvélasafnið er í eigu Landbúnaðarháskóla Íslands. Búvélasafnið er eina safn sinnar tegundar hérlendis í opinberri eigu. Nánari upplýsingar um Búvélasafnið eru veittar síma 433 5070 og 433 50000. Ábyrgðarmaður þess er Bjarni Guðmundsson - heimasími 437 0068, netfang: laekjartun@vesturland.is. Nánari upplýsingar á www.buvelasafn.is
|
Ullarselið á Hvanneyri er verslun með vandað handverk, ullarvörur úr íslenskri ull og gæðahandverk úr íslensku hráefni er markmið hópsins sem heldur úti Ullarselinu. Ullarselið er opið á sumrin alla daga frá kl. 12.00-18.00. Á veturna er opið á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum frá kl 13:00 - 18:00. Einnig er opnað fyrir hópum ef óskað er og tök eru á. Nánari upplýsingar á www.ull.is.
Kertaljósið rekur smávöruverslun og pöbb í gömlu hestaréttinni, kaffiteríu í Ásgarði og er jafnframt með Hreppslaug á sínum snærum. Nánari upplýsingar á www.kerti.is
Nánari upplýsingar
Útgáfu- og kynningastjóri er Áskell Þórisson. Netfang: askell@lbhi.is S: 843 5307
|
|
|