Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Um háskólann
Nám
Hagnýtar uppl.
- Bóksala LBHÍ
- Kennslufyrirkomulag
Nemendur
Rannsóknir
Bókasafn
Útgáfa
Tölvumál
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
 
Póstur á vefstjóra

Kennslufyrirkomulag
Kennsluárið skiptist í haust- og vorönn (heimilt er að skipta hvorri önn í smærri einingar með prófum á milli). Á hvorri önn er kennt í 15 vikur og próf standa yfir í tvær vikur í lok hverrar annar. Utan reglulegra kennsluanna er heimilt að skipuleggja starfsnám nemenda svo og sumarnámskeið eftir því sem þurfa þykir og fram kemur í námsskrám.
 
Kennsla fer fram með fyrirlestrum, verkefnatímum, dæmatímum, starfsnámi og námsferðum samkvæmt fyrirfram gerðum kennsluáætlunum. Kennsluhætti og námsmati námsgreinar skal lýst í kennsluáætlun sem gerð er í samráði við kennslustjóra og lögð fram í upphafi viðkomandi kennslutímabils. Tímasókn er frjáls. Þó má skilyrða tímasókn einstakra námshluta í kennsluáætlun. Heimilt er að bjóða fram kennslu á norðurlandamálum og ensku enda sé þess getið í kennsluáætlun viðkomandi áfanga.
 
Áfangakerfi og námseiningar (ECTS)
Samræmt númerakerfi er yfir áfanga í háskólanámi. Samkvæmt því er hver áfangi auðkenndur með 6 tölustöfum, samsett úr eftirfarandi einingum:
1.
Fyrstu tveir tölustafirnir merkja á hvaða önn áfanginn er kenndur.
2.
Næstu tveir tölustafir eru raðnúmer áfangans. Grunnáfangar hafa númer frá 01-19. Áfangar sem eru samkenndir á tveimur brautum hafa númer 20-39. Áfangar sem tilheyra einni braut 40-79. Valáfangar hafa númer á bilinu 80-99.
3.
Síðustu tveir tölustafirnir segja til um hversu margar einingar eru að baki hverjum áfanga, en hver eining samsvarar einnar viku vinnu. Áfangi sem gefur tvær einingar hefur númerið .02, fimm eininga áfangi hefur númerið .05 o.s.frv.
Dæmi: Númer áfangans  „Sambýli lands og þjóðar“ er 01.25.04, sem gefur til kynna að áfanginn er kenndur í landnýtingu og búvísindum, þetta er grunn-áfangi og gefur 4 einingar.
Hver eining í áfangakerfi Landbúnaðarháskólans samsvarar tveimur ECTS einingum.
 

 


 Leit á vef

Úr dagbók


Flýtikrækjur

landbunadur.is
Rit LbhÍ
Umsóknir
Stúdentaráð LbhÍ
Vefpóstur LbhÍ