Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Um háskólann
Nám
Hagnýtar uppl.
Nemendur
Rannsóknir
- Búfé
- Bútækni
- Jarðrækt
- Sameindaerfðafræði
- Skógrækt og landgr.
Bókasafn
Útgáfa
Tölvumál
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
 
Póstur á vefstjóra

Rannsóknir


Samkvæmt lögum er hlutverk rannsóknasviðs Landbúnaðarháskóla Íslands:

„að afla og miðla þekkingu um fjölþætt hlutverk landbúnaðar sem byggist á íslenskri náttúru og menningararfleifð. Meðal verkefna sviðsins eru rannsóknir er lúta að meðferð, ræktun og nýtingu lands, búfjár og ferskvatnsdýra til framleiðslu matvæla og annarrar atvinnu- og verðmætasköpunar, sem og rannsóknir er lúta að sjálfbærri og fjölþættri landnýtingu og umhverfismótun.“

Rannsóknir eru stundaðar á öllum starfs- og tilraunastöðvum háskólans, auk þess sem unnið er í samstarfi við bændur og landeigendur um allt land. Rannsóknaverkefni hjá Landbúnaðarháskólanum eru fjölmörg. Sum þeirra ná aðeins yfir skamman tíma en önnur eru þess eðlis að þau taka ár og jafnvel áratugi.

Hér verður leitast við að gefa yfirlit um þær rannsóknir sem eru í gangi, hverju sinni við Landbúnaðarháskóla Íslands.