Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Um háskólann
Nám
- Háskólanám
    - Meistaranám
- Starfsmenntanám
    - Fjarnám
- Endurmenntun
- Kynningarefni
- Umsóknir
Hagnýtar uppl.
Nemendur
Uppl. Stefanía
Rannsóknir
Bókasafn
Útgáfa
Tölvumál
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
 
Póstur á vefstjóra

Fjarnám á Starfsmenntabrautum Landbúnaðarháskóla Íslands

    ALMENNT UM FJARNÁM Á BÚFRÆÐIBRAUT
    1. Inngangur
    Hér verður kynnt fyrirkomulag fjarnáms í búfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands. Gerð verður stuttlega grein fyrir skipulagi námsins, vali námsáfanga, framkvæmd verklegra hluta námsins, fyrirkomulagi prófa, kostnaði og öðru sem máli skiptir.
    Fjarnám í búfræðum miðast einkum við fólk sem er við búskap og því reynt að skipuleggja samverustundir með það í huga.
    Alla jafna eru ekki teknir yngri nemendur en 25 ára í fjarnámið. Hafi umsækjandi, auk þess, umtalsverða reynslu af búskap og stundi hann sem atvinnu, meðan nám varir, eru ekki gerðar neinar fornámskröfur.

    2. Skipulag fjarnámsins
    Fjarnámið býður upp á nokkra valkosti en miðar fyrst og fremst við þá sem stefna að búfræðiprófi.
    Fjarnámið er byggt upp á svipaðan hátt og hefðbundið búfræðinám. Nemendur innritast á sama hátt í skólann en velja sjálfir umfang námsins, hverju sinni í samráði við starfsfólk skólans.
    Eftirfarandi kostir eru í boði fyrir fjarnema:
      Ø Skipuleggja fjarnámið til búfræðiprófs (alls 84 einingar) og skipta því á hóflega langan tíma
      Ø Velja ákveðnar námsgreinar, án þess að það leiði til búfræðiprófs.
      Þessi kostur er góður sem endur- og símenntun fyrir búfræðinga og fyrir þá sem áhuga hafa á einstökum hlutum búfræðinnar

    Mikilvægt er að allt mat á fyrra námi, skipulag og áætlun um námsframvindu sé gerð þegar í upphafi. Betra er að breyta áætlunum eftir því sem á námið líður en að fara af stað með óljós markmið og fyrirætlanir.
    Þeir sem velja að ljúka búfræðiprófi í fjarnámi fá að sjálfsögðu metið fyrra nám á sama hátt og nemendur í hefðbundnu námi. Því er mikilvægt að skólinn fái sem gleggstar upplýsingar um fyrra nám hvers nemenda. Ósk um mat á fyrra námi þarf að koma frá nemandanum.
    Samskipti nemenda og skóla eru í megindráttum um Internetið (veraldarvefinn). Því er mikilvægt að allir séu vel kunnugir slíkum samskiptum.
    Verklegir hlutar búfræðinámsins eru kenndir á námskeiðum, sem haldin eru eftir þörfum. Reynt verður að stytta eins og mögulegt er, fjarveru nemenda frá vinnustað/búum sínum. Nánara skipulag þessa þáttar námsins er kynnt við upphaf hvers áfanga. Sjá má helstu áhersluþætti verklegra þátta í áfangalýsingunum hér aftar.

    2.1 Skipulagning námsdvalar
    Fjarnemar sem óska að ljúka búfræðiprófi þurfa að byrja snemma á námsferlinum að safna ákveðnum upplýsingum sem tilheyra NDL-áföngum (sjá áfangalýsingar). Þessi hluti hefðbundna námsins fer fram á sérstökum kennslubúum. Fjarnemar sem hafa aldur til og mikla reynslu af búskap, taka þessa áfanga að lang mestu leyti við sitt eigið bú. Hve langan tíma þessi hluti tekur fjarnema er einstaklingsbundið og ræðst af mörgum þáttum. Sjá nánar í áfangalýsingum (2. önn).

    2.2 Próf
    Próf eru að öllu leyti sambærileg í fjarnámi og hefðbundnu námi (sjá kennsluskrá LBHÍ). Verkefni og ritgerðir eru þó oft stærri hlutar lokaeinkunnar. Fjarnemar eiga þess oftast kost að taka próf í heimahéraði, þeir standa sjálfir straum af kostnaði sem prófunum fylgja og finna sér próftökustað í samráði við fjarnámsstjóra. Öllum fjarnemum býðst að taka próf á Hvanneyri, án próftökugjalds. Fjarnemar eru beðnir að kynna sér kafla um próf og próftöku í búfræðinámi (sjá www.lbhi.is).

    2.2 Kröfur um tölvukost
    Til að taka þátt í fjarnáminu verður nemandinn að hafa aðgang að tölvu með tengingu við Internetið. Nauðsynlegt er að eftirfarandi búnaður sé til staðar.

        Vélbúnaður:
        Tölva minnst Pentium-300MHz með 64 Mb (stýrikerfi: Win98/ME/2000/XP) eða sambærileg Machintosh tölva með uppsettann Firefox vefskoðara
        Tengibúnaður við Internet, minnsti hraði 28.8 Kbps
        Mjög æskilegt að hafa aðgang að prentara.

        Hugbúnaður:
        Windows XP (lágmark 2000)
        Ritvinsluforrit og Töflureiknir (ekki eldra en Word/Excel 2000)
        Internet Explorer 6,0 (ekki eldra)
        Tölvupóstforrit. Nemendur eru hvattir til að nota örugga póstþjóna, ekki gjaldfrjálsan aðgang að ótryggum þjónum, slíkt býður upp á vandamál svo sem vírussmitun.
        Vírusvarnarforrit er nauðsynlegt að hafa

    3. Undirbúningskröfur
    Gert er ráð fyrir að fjarnemar uppfylli sömu undirbúningsskilyrði og þeir sem eru í reglubundnu námi. Allir, sem eru starfandi við búskap, verða þó innritaðir óháð bóklegum undirbúningi.
    Gert er ráð fyrir að nemendur hafi nokkra þjálfun í tölvunotkun og séu m.a. kunnugir ritvinnslu- og töflureikniforritum og vanir að nota tölvupóst og vafra.

    4. Kostnaður
    Við innritun greiðist grunngjald og síðan fast gjald fyrir hverja einingu í námi þannig (skólaárið 2006/2007):
    • Innritunargjald kr. 27.000,- greiðist fyrir skólaárið (óháð hvort nám er stundað bæði fyrir og eftir áramót)
    • Fyrir hverja einingu greiðast kr. 2.700,-
    • Útskrifaðir búfræðingar frá Hvanneyri (Bændaskóla, LBH og LbhÍ) geta tekið áfanga í fjarnámi og greiða þá bara einingagjald (2.700 kr fyrir hverja einingu)
    Auk þessa kemur til námsgagna- og dvalarkostnaður sem er ákaflega mismunandi eftir því hvaða áfanga nemendi tekur hverju sinni. Prófkostnað greiðir fjarnemi sem ekki tekur sín próf á Hvanneyri.

    5. - Innritun - Upphaf náms
    Eyðublöð til umsóknar um þátttöku í fjarnámi, fást hjá skólanum. Umsóknir skal senda til skólans. Utanáskriftin er:
    Kennsluskrifstofa LBHÍ, Hvanneyri, 311 BORGARNES
    Haft verður samband við þá sem innritast í fjárnámið, svo unnt sé að ganga frá skipulagi fyrir hvern og einn.
    Vegna mikillar eftirspurnar og takmarkaðs fjölda nemenda í hvern áfanga á önn, hefur sú stefna verið mörkuð að fólk sem starfar við landbúnað og uppfyllir aldurstakmörk, gengur fyrir í námið.
    Miðað er við að ALLIR fjarnemar komi að Hvanneyri í byrjun hverrar annar til kynningar á skipulagi námsins. Þá er einnig reynt að koma fyrir á sama tíma, kennslu í einstökum þáttum sem örðugt er að fjarkenna.
    Það er von okkar að meðfylgjandi gögn veiti væntanlegum fjarnemum nauð­synlegar upplýsingar.
    Viljir þú fræðast frekar um málið, væri okkur ánægja ef þú hefðir samband,

    Edda Þorvaldsdóttir, umsjónarm. fjarnáms
    rafpóstur: edda@lbhi.is
    sími: 433 5000

    Til baka - efst á síðu

     
  1. NÁMSÁFANGAR

    Skipulag búfræðibrautar

    Listi yfir áfanga sem kenndir eru á búfræðibraut LBHÍ – Nánari upplýsingar er að finna í áfangalýsingum
    fyrir hvern áfanga.

    1.
    ár
    2.
    ár
    Nr. áfanga
    H
    V
    H
    V
    1. ár1. önneiningar á önnSk/val
    BFR 103Búfjárrækt 3sk
    BST 102Bókhald 12sk
    BÚT 103Búvélafræði 13sk
    EFN 113Almenn efnafræði3sk
    JRT 123Jarðvegur og nytjajurtir3sk
    MLS 102Málmsuða2sk
    TÖL 102Upplýsingasamfélagið2sk
    Valáfangar2val
    Skólasókn sk
    20
    2. önn
    BFR 112Hirðing og aðbúnaður búfjár2sk
    BST 112Bókhald 22sk
    BÚT 212Fóðurverkun2sk
    LND 102Umhverfisfræði2sk
    JRT 123Áburðarfræði og plöntuvernd3sk
    Skólasókn sk
    2. önn (ath. texta og skýringar hér aftar)
    NDL 101Ástundun1sk
    NDL 112Námsdvöl 12sk
    NDL 122Námsdvöl 22sk
    NDL 133Starfshæfni og þekking3sk
    19
    3. önn (ath. texta og skýringar hér aftar)
    NDL 203Dagbók3sk
    NDL 215Verkefni (tengist námsgreinum úr fyrra námi)5sk
    NDL 222Plöntusafn2sk
    3. önn
    BST 202Bústjórn 12sk
    LBF 103Líffæra-, lífeðlis- og fóðurfræði3sk
    LBF 202Erfða- og kynbótafræði2sk
    Valáfangar - Þar af 3 einingar í bundnu vali6val
    Skólasókn sk
    23
    4 önn
    BST 213Bústjórn 2 3sk
    BÚT 212Búvélafræði 22Sk
    FEL 101Félags- og stoðkerfi landbúnaðarins 1sk
    LND 202Beitarfræði og landbætur2sk
    LND 332Nytjaskógrækt2sk
    Valáfangar - Þar af 3 einingar í bundnu vali9val
    19
    MÆT 402Skólasókn2sk
    ÍÞR 201Líkams- og heilsurækt I1
    Alls84

    Í fjarnámi er röð áfanga ekki mjög njörvuð. Í áfangalýsingum hér á eftir er getið um undanfara þar sem það á við og miðað við að fjarnemar hagi námi sínu í samræmi við þær leiðbeiningar.
    Bundið val er annars vegar Nautgriparækt (1 og 2) og hins vegar Sauðfjárrækt (1 og 2). Heimilt er að velja þá áfanga sem almennt val. Taki nemandi Nautgriparækt sem bundið val, getur hann tekið Sauðfjárrækt sem óbundið val – og öfugt.


    Valáfangar í fjarnámi á búfræðibraut
    Nr. áfangaValáfangar í fjarnámi
    Einingar
    BFR 182Annað búfé
    2
    LND 162Hlunnindi og nýsköpun
    2
    BFR 413Nautgriparækt 1 (bundið val)
    3
    BFR 423Sauðfjárrækt 1 (bundið val)
    3
    BFR 452Ullariðn
    2
    BFR 462Kanínurækt
    2
    JRT 412Lífrænn landbúnaður
    2
    BFR 513Nautgriparækt 2 (bundið val)
    3
    BFR 523Sauðfjárrækt 2 (bundið val)
    3
    BFR 632Hrossarækt fyrir fjarnema
    2
    BST 522Búrekstraráætlanir
    2
    JRT 522Rótarávextir og nýjar fóðurjurtir
    2
    JRT 532Grænmeti og ber
    2
    JRT 542Endurræktun túna og einærar fóðurjurtir
    2
    LND 512Landnýting og náttúruvernd
    2

    Séráfangar vegna námsdvalar á eigin búi
    - sjá kafla um undanþágur frá námsdvöl
    NDL 202Dagbók á eigin búi
    2
    NDL 213Verkefni fjarnema
    3
    NDL 423Búrekstrarkönnun
    3

    Fjarnemar þurfa að ljúka ákveðnum hluta náms síns sem valáföngum – ekki eru strangar reglur um fjölda valeininga á hverri önn.
    Skólinn áskilur sér rétt til að kenna ekki valáfanga nema ákveðinn lágmarksfjöldi nemenda velji viðkomandi áfanga.
    Fjarnemar og staðbundnir nemendur telja saman inn í marga valáfanga, þannig eru meiri líkur á að valáfangar verði kenndir í fjarnámi.

    Til baka - efst á síðu

     

  2. NÁMSSKIPULAG

    Áfangalýsingar

    Áfangalýsingum er raðað eftir önnum. Fram kemur númer og heiti áfanga og hvort um skyldu- eða valáfanga er að ræða. Þá er getið um kennara/ábyrgðaraðila og kennsluefni þar sem það er vel afmarkað (sé víða leitað fanga eða mikið af tilvísunum í greinar og ljósrit er upptalningu sleppt). Lýsing áfangans tekur yfir megináherslur og er nánar útfærð í kennsluáætlun sem nemendur fá í upphafi hverrar annar.

    Athugið: Athugasemdir sem eiga sérstaklega við fjarnámið, er að finna fremst í áfangalýsingunum. Þar er m.a. getið um ef ákveðnir þættir áfanga, krefjast heimsókna að Hvanneyri. "Lokið áður" er hugsað sem ábending til fjarnema um hvaða áföngum þarf að vera lokið áður en viðkomandi áfangi er tekinn (hugsanlegt er þó að taka slíka áfanga samhliða).

    1. ÖNN

    BFR 103 Búfjárrækt Skylduáfangi

    Mæta þarf í verklega hluta áfangans til að ljúka honum
    Kennari: Sverrir Heiðar, B.S., sverrir@lbhi.is
    Kennsluefni: Búfjárrækt; Runólfur Sigursveinsson, Sverrir Heiðar
            Mjaltir og Mjólkurgæði; BÍ 1997.
    Markmið: Að gefa nemendum yfirlit yfir helstu atriði í almennri búfjárrækt hvað varðar fóðrun, hirðingu, afurðir og markaðsstöðu.
    Lýsing: Fjallað er um grundvallaratriði í fóðurfræði og helstu fóðurefni kynnt. Gefið er yfirlit um meltingarstarfsemi jórturdýra og einmaga dýra. Kynntar eru helstu fóðurtegundir og notagildi þeirra. Tekin er fyrir ræktun, fóðrun og hirðing nautgripa, sauðfjár og hrossa. Helstu búfjársjúkdómar eru kynntir. Sérstök áhersla er lögð á fóðurútreikninga.
    Fjallað er um mjaltir og lífeðlisfræðilega þætti tengda þeim, uppbyggingu og starfsemi júgursins. Farið er yfir gerð og starfsemi mjaltavélarinnar og tæknileg atriði þar að lútandi skoðuð og samspil þeirra við hina líffræðilegu þætti athuguð. Hluti áfangans eru verklegar æfingar á skólabúi Landbúnaðarháskólans.

    BST 102 Bókhald 1 Skylduáfangi
    Kennari: Stefanía Nindel B.S., stefania@lbhi.is
    Kennsluefni: Tómas Bergsson, 1994. Bókfærsla 1.-A. Idnú.
    Markmið: Að nemendur kynnist grundvallaratriðum bókhalds og öðlist færni í að vinna með bókhaldsgögn.
    Lýsing: Farið er í grundvallaratriði tvöfalds bókhalds og lokun bókhalds. Unnin allmörg verkefni við að færa dagbók eftir fylgiskjölum og við uppgjör með reikningsjöfnuði. Kynnt uppsetning rekstrar- og efnahagsreiknings, samspil þeirra, ásamt helstu hugtökum reikningshalds.

    BÚT 103 Búvélafræði 1 Skylduáfangi

    Mæta þarf í verklega hluta áfangans til að ljúka honum
    Kennari: Haukur Þórðarson, haukur@lbhi.is og
    Jóhannes Ellertsson, vélvirki, joi@lbhi.is
    Kennslugögn: Rafn Sigurðsson. 2002. Öryggismál vinnustaða, Manniche, J, og Rasmussen, B. 1997 Traktor- og Motorlære. 3. útg., Vinnueftirlit Ríkisins. Frumnámskeið. Annað efni sem dreift verður og bent á samhliða kennslu.
    Markmið: Að nemendur þekki helstu reglur sem lúta að vinnuvélanotkun og fái æfingu í að stjórna vélum og tækjum sem notuð eru við landbúnað. Nemendur skulu að áfanga loknum hæfir til að sækja um réttindi skv. “Vinnuvélanámskeiði fyrir dráttavélar og minni jarðvinnuvélar” (til Vinnueftirlits ríkisins).
    Lýsing: Dráttarvélin er kynnt til bústarfa og annarra starfa, svo og þær vélar er falla undir flokk I hjá Vinnueftirliti ríkisins. Einnig er fjallað um lög og reglugerðir er varða vinnuvélar almennt. Sérstaklega er dráttarvélin kynnt og innviðir hennar svo sem aflvél, orkunýting, drif, vökvabúnaður, tengingar, aðbúnaður ekils og stöðugleiki. Þá eru verklegar æfingar og sýnikennsla er varða dráttarvélar. Í öryggisfræðinni eru kynnt lög um öryggi og hollustuhætti á vinnustöðum. Fjallað m.a um vinnustaði, hávaðamengun, loftmengun, meðferð hættulegra efna, hreyfifræði, atvinnusjúkdóma, orsakir vinnuslysa, brunavarnir og skyndihjálp. Námsgreinin gefur bókleg réttindi og próftökurétt hjá Vinnueftirliti m.a. á dráttarvélar og minni jarðvinnuvélar allt að 6 tonnum samkvæmt reglum um réttindi til að stjórna vinnuvélum.

    EFN 113 Almenn efnafræði Skylduáfangi
    Kennari: Eyjólfur Örnólfsson B.S., eyjo@lbhi.is
    Kennsluefni: Jóhann Sigurjónsson. 1995. Efnafræði I. Rvík, Iðnú.
    Markmið: Að nemendur kunni skil á þeim þáttum efnafræði sem nauðsynlegir eru sem undirstaða fyrir áburðar-, jarðvegs- líffræði og fleiri námsgreinar sem kenndar eru í búfræðinámi.
    Lýsing: Nemandinn á að loknum þessum áfanga að hafa öðlast nokkurn skilning á frumatriðum efnafræðinnar, byggingu frumeinda (atóma) og upp­byggingu lotukerfisins. Þá á nemandinn að skilja og geta beitt helstu grunn­hugtökum greinarinnar og kunna skil á efnatengjum, efnahvörfum og efnasam­böndum. Lögð er áhersla á að nemandinn geti reiknað út mólstyrk lausna og efnainnihald einstakra frumefna í efnasamböndum, t.d. köfnunarefnisinnihald í kjarna. Sérstök áhersla er lögð á að kynna grunnhugtök í lífrænni efnafræði.

    JRT 123 Jarðvegur og nytjajurtir Skylduáfangi
    Kennarar: Árni Brynjar Bragason, B.S., arni@lbhi.is og
    Stefanía Nindel B.S., stefania@lbhi.is
    Kennsluefni: Þorsteinn Guðmundsson. 1994. Jarðvegsfræði. Rvík, BÍ.
    Ríkharð Brynjólfsson. 2000. Nytjajurtir
    Markmið: Að nemandi kunni skil á þeim þáttum jarð- og jarðvegsfræði sem lúta að landbúnaði. Einnig að nemandi þekki helstu nytjaplöntur og kunni skil á byggingu þeirra, helstu vaxtarþáttum og nýtingarmöguleikum hérlendis.
    Lýsing: Áfanginn skiptist í eina einingu í jarðvegsfræði og tvær í nytjajurtum.
    Fjallað verður um berggrunn Íslands og jarðveg, gerð hans og eiginleika. Einkennum góðs ræktunarjarðvegs gerð skil. Farið í framkvæmd og áhrif framræslu, jarðvinnslu og kölkunar jarðvegs.
    Í nytjajurtum er farið í ræktun og nýtingu plantna í íslenskum landbúnaði. Áhersla er lögð á vaxtaþætti, líffræði og flokkunarkerfi plantna, grasrækt og nýtingu grasa í túni, belgjurtir, grænfóður og korn. Einnig er fjallað um sáðskipti. Rætt er um frærækt, jurtakynbætur og tegundaval m.t.t. markmiðs ræktunar. Þá er gefið stutt yfirlit yfir markmið og aðferðir við landbætur í útjörð og helstu tegundir sem notaðar eru til landgræðslu kynntar.

    MLS 102 Málmsuða Skylduáfangi

    Fjarnemar taka áfangann sem nokkura daga námskeið
    Kennari: Jóhannes Ellertsson, vélvirki, joi@lbhi.is
    Markmið: Að nemendur kynnist logskurði og log- og rafsuðu og verð færir um að bjarga sér með einfalda járnsmíðavinnu.
    Lýsing: Gerð grein fyrir notkun acetylen-gass og súrefnis til málmsuðu og logskurðar. Farið yfir flokkun og stöðlun á húðun rafsuðuvíra. Kynnt súrefnis- og gashylki og meðferð þeirra. Allir hlutar logsuðutækja og notkunarsvið kynntir. Gerðir rafsuðuvéla kynntar, eiginleikar þeirra og notkunarsvið. Öryggisþættir varðandi log- og rafsuðu kynntir. Verklegar æfingar: lárétt og lóðrétt logsuða og logskurður. Lóðun með kopar- og silfurslaglóði.

    TÖL 102 Upplýsingasamfélagið Skylduáfangi
    Kennari: Sverrir Heiðar, B.S., sverrir@lbhi.is
    Kennsluefni: Ingibjörg Axelsdóttir og Þórunn Blöndal. 2003. Handbók um ritun og frágang. Rvík, Iðunn. Einnig handbækur um ýmis notendaforrit. Lög og reglur er lúta að landbúnaði.
    Markmið: Að nemandinn verði fær um að nýta sér tölvutæknina til framsetningar efnis og kunni að afla sér upplýsinga með sem fjölbreytilegustum hætti. Að nemandinn geti tjáð sig í ræðu og riti og þekki lög og reglur sem lúta að atvinnugreininni.
    Lýsing: Fjallað er um og lög og reglur sem landbúnað varða. Nemendur eru þjálfaðir í að koma fyrir sig orðum í ræðu og riti. Þeir fá þjálfun í notkun ritvinnslu, töflureikna, kynningarforrita, tölvupóstforrita, og annara forrita sem að gagni mega koma við framsetningu efnis og í náminu almennt. Upplýsingaöflun þjálfuð bæði með heimildaleit á bókasafni og með aðstoð tölvutækninnar.

    BFR 182 Annað búfé Valáfangi
    Kennari: Edda Þorvaldsdóttir, B.S., edda@lbhi.is
    Kennsluefni: Nemendur fá ljósrit og samantekið efni frá kennara. Bók Jóns Torfasonar Melrakki útg. 2002 er stuðningsrit í áfanganum.
    Markmið: Að nemandinn þekki lífsferil, hirðingu, fóðrun og afurðir svína, alifugla, loðdýra, geita o.fl. búpenings sem til greina kemur að rækta við hérlendar aðstæður.
    Lýsing: Fjallað er um svínarækt í landinu fyrr og nú, aðbúnað, hirðingu og nytjar. Líffræði fugla tekin til umfjöllunar og hænsnarækt, anda-, kalkúna- og gæsaeldi skoðað m.t.t. afurða og umönnunar fyrr og nú. Loðdýrarækt gerð nokkur skil, aðallega minka-, refa- og kanínurækt. Geitfjárrækt kynnt, saga hennar skoðuð og framtíðarhorfur hérlendis. Aðeins verður komið inn á strútaræktun, býflugnarækt og annan óhefðbundinn búsmala sem lítt eða ekkert hefur verið ræktaður hérlendis, þó hugmyndir hafi vaknað þar um.

    LND 162 Hlunnindi og nýsköpun Valáfangi
    Kennari: NN
    Kennsluefni: Nemendur fá ljósrit og samantekið efni frá kennara
    Markmið: Að nemandi þekki til hlunninda á Íslandi og nýtingar þeirra. Einnig að nemandi öðlist færni í að vinna með nýjar hugmyndir frá upphafi til markaðssetningar.
    Lýsing: Fjallað er um hlunnindi í víðum skilningi, með megináherslur á þau hlunnindi sem oft fylgja bújörðum. Skoðaðir eru möguleikar á nýtingu slíkra hlunninda og rædd umhirða og viðhald sem fylgir nýtingu þeirra.
    Í nýsköpunarhlutanum er fjallað um hugmyndaleit, val hugmynda, gerð áætlana sem til þurfa að koma svo hugmynd verði að veruleika (svo sem viðskipta-, framkvæmda-, stofnkostnaðar-, markaðs-, framleiðslu- og fjárhagsáætlana). Kynningarmál og sölumennska í sambandi við nýsköpun tekin til umfjöllunar.
    Nýsköpnunarsjóður, Framleiðnisjóður landbúnaðarins og fleiri styrktaraðilar sem leita má liðsinnis hjá í tengslum við atvinnuskapandi hugmyndir, kynntir.
    Nemendur vinna áætlanir út frá eigin hugmyndum.

    2.ÖNN

    BFR 112 Hirðing og aðbúnaður búfjár Skylduáfangi

    Lokið áður: Búfjárrækt
    Mæta þarf í verklega hluta áfangans til að ljúka honum
    Kennari: Helgi Björn Ólafsson B.S., helgibj@lbhi.is
    Kennsluefni: Ljósrit og ýmis gögn og reglugerðir sem kennari vísar á.
    Markmið: Að nemandi sé fær um almenna hirðingu algengustu búfjártegunda og kunni skil á lögum og reglum er varða búfjárhald.
    Lýsing: Fjallað um hirðingu og aðbúnað helstu búfjártegunda. Kynnt lög og reglugerðir er lúta að búfjárhaldi. Vikið að atferli og hegðunarmunstri búfjár. Fjallað um kröfur til búpeningshúsa og annars aðbúnaðar í búfjárrækt. Gerð grein fyrir þeim þáttum er máli skipta við almenna hirðingu og umgengni við búpening. Verklegar æfingar í útihúsum og víðar.

    112 Bókhald 2 Skylduáfangi

    Lokið áður: Bókhald 1
    Kennari: Stefanía Nindel B.S., stefania@lbhi.is
    Kennsluefni: Tómas Bergsson, 1995. Bókfærsla 1.-B. Iðnú.
    Markmið: Að nemandi sem tekið hefur Bókhald 1 öðlist meiri færni í bókhaldi, geti sett upp tölvubókhald og nýtt sér bókhaldsforrit. Að nemandi kynnist gerð skattframtals og kunni skil á lögum er að því lúta.
    Lýsing: Áframhaldandi bókfærsla. Við bætast millifærslur, launabókhald, birgða­reikningur o.fl. Farið er í uppsetningu tölvubókhalds og nemendur kynnast bókhaldsforritinu dkBúbót. Nemendum er ætlað að vinna allnokkur verkefni í færslu bókhalds og uppsetn­ingu ársreikninga í dkBúbót. Farið verður í skattskil, s.s. lög um tekju- og eigna­skatt, launaframtal, reiknað endurgjald og landbúnaðarframtal með öllu tilheyrandi.

    BÚT 212 Fóðurverkun Skylduáfangi

    Lokið áður: Búfjárrækt, Jarðvegur og nytjajurtir og Áburðarfr. og plöntuv.
    Kennari: Sverrir Heiðar, B.S., sverrir@lbhi.is
    Kennsluefni: Bjarni Guðmundsson. 2002. Heyverkun. Ljósrit og ýmis gögn.
    Markmið: Að nemandi öðlast þekkingu á þeim þáttum sem ráða mestu um fóðurgildi og verkun fóðurjurta til vetrarforða og öðlist skilning á því hvernig nýta má áhrifaþættina til þess að afla og verka fóður sem er viðunandi að magni og gæðum.
    Lýsing: Fjallað er um heygæði og heyát, gæðastjórnun við heyöflun, efnatap við verkun og geymslu, hollustu heysins, meðferð þess á velli, votheysgerð, verkun heys í plasti og súgþurrkun. Þá er að nokkru fjallað um verkun annarra fóðurjurta en grasa.

    JRT 133 Áburðarfræði og plöntuvernd Skylduáfangi

    Lokið áður: Jarðvegur og nytjajurtir
    Kennari: Árni Brynjar Bragason, B.S., arni@lbhi.is og
    Edda Þorvaldsdóttir, B.S., edda@lbhi.is
    Kennsluefni: Magnús Óskarsson. 1994 Áburðarfræði, Rvík, BÍ.
    Magnús Óskarsson. 1994. Plöntuvernd
    Edda Þorvaldsdóttir - Yfirlit yfir plöntulyf...(handbók)
    Markmið: Að nemandi hafi þekkingu til að meta áburðarþarfir og velja áburðartegundir og -magn sem hentar hverju sinni. Að nemandi kunni skil á meindýrum og illgresi sem til er hérlendis og geti af þekkingu varist tjóni af þessum völdum í almennri ræktun.
    Lýsing: Áfanginn skiptist í tvær einingar í áburðarfræði og eina í plöntuvernd.
    Í áburðarfræðinni er fjallað um næringarefni plantna, bindingu þeirra og losun úr jarðvegi - upptöku og nýtingu í plöntunni. Getið um helstu tegundir tilbúins áburðar, sem notaðar eru í landbúnaði utan gróðurhúsa og litið á framboð hjá einstökum áburðarsölum. Rætt um búfjáráburð og eiginleika hans. Gerð grein fyrir meðferð, nýtingu og áhrifum áburðar - bæði búfjáráburðar og tilbúins áburðar. Nemendur vinna áburðaráætlun fyrir eitt býli og kynnt eru tölvuforrit til hjálpar við hana. Áætlanagerð er þjálfuð enn frekar í tengslum við skylduverkefni sem unnið er í námdvöl.
    Í plöntuvernd eru teknir til umfjöllunar helstu skaðvaldar við ræktun nytjaplantna, bæði dýr og jurtir. Farið í meðferð eiturefna - kynnt þau efni sem helst eru notuð til gróðurverndar og gróðureyðingar og gerð grein fyrir öðrum aðgerðum sem að gagni mega koma. Helstu þáttum er varðar ræktun grænmetis og rótarávaxta gerð skil.

    LND 102 Umhverfisfræði Skylduáfangi
    Kennari: Ragnhildur Sigurðardóttir, M.Sc., ragnhildurs@lbhi.is
    Kennsluefni: Sjöberg og Thunberg. 1996 Umhverfisbókin. Rvík, MM. Ásamt fleiri gögnum.
    Markmið: Að nemandi þekki hugtök visfræðinnar og geti af þekkingu tekist á við margvísleg umhverfismál, ekki síst í tengslum við landbúnað.
    Lýsing: Kynnt eru grunnatriði vistfræði. Gefið yfirlit yfir stöðu umhverfismála í dag; almennt á jörðinni, á Íslandi og í íslenskum landbúnaði. Nemendur eru fræddir um helstu hættur í umhverfismálum og hvernig megi bregðast við þeim. Farið er yfir helstu umhverfisáhrif af völdum landbúnaðar. Sérstök áhersla er lögð á menningarlandslag og skipulagsmál.
    Fjallað er um hagsmunaárekstra sem geta orðið milli þeirra sem nýta vilja landið og fá nemendur þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum við lausn slíkra mála. Í áfanganum er stutt kynning á mati á umhverfisáhrifum og heimspeki náttúruverndar.



    NDL 101, 112, 122, 133, Námsdvöl Skylduáfangar
    Mismunandi er eftir aldri og reynslu, hvernig fjarnemar taka námsdvöl. Hér koma fyrst lýsingar á hefðbundinni námsdvöl. Þar aftan við er að finna ýmis frávik sem eiga við um fjarnema.
    Kennari: Sigtryggur Björnsson B.S., sigtryggur@lbhi.is
    Markmið: Að nemandi öðlist aukna þekkingu á búrekstri og afli sér skilnings á landbúnaði, sem nauðsynlegur er til að geta stundað arðsaman búskap.
    Lýsing: Hluti búfræðinámsins er námsdvöl á kennslubúi, fjarri heimabyggð. Nemandi á að taka þátt í öllum störfum, sem unnin eru á búinu eins og hver annar heimilismaður. Honum er ætlað að skila eðlilegu dagsverki, sem skiptist í starfsþjálfun og bóklegt nám. Nemandanum skal gefinn kostur á að vinna sjálfstætt að bústörfum eftir því sem reynsla hans leyfir. Námsdvöl hefst í aprílmánuði og er 13 vikur eða 91 dagur, þar af eru 12 frídagar. Nemandinn skal vera búinn að taka a.m.k. 6 frídaga áður en kemur að prófinu á kennslubúinu, sem er alla jafna ekki fyrr en 60 dagar eru liðnir af námsdvalartímanum.
    NDL 101 Ástundun
    Lýsing: Hér er um að ræða áfanga sem samanstendur af ástundun, hegðun, og áhuga. Ástundun gefur til kynna iðni nemandans við bóklegt nám en hegðun og áhugi er mat bóndans á samstarfinu við hann.
    NDL 112 Námsdvöl 1
    Lýsing: Mat á starfshæfni nemandans og fræðilegri þekking hans á viðkomandi starfi. Munnlegt og verklegt próf.
    NDL 122 Námsdvöl 2
    Lýsing: Mat á starfshæfni nemendans og fræðilegri þekkingu á því starfi sem hann er prófaður í. Munnlegt og verklegt próf.
    NDL 133 Starfshæfni og þekking
    Lýsing: Mat á starfshæfni nemandans og þekkingu hans á rekstri kennslubúsins bæði hvað varðar búfræðileg og hagfræðileg atriði. Munnlegt og verklegt próf.


    Námsdvöl fjarnema

    Almennt um námsdvöl
    Í námsskrá búfræðibrautar Landbúnaðarháskóla Íslands segir svo:
      "Nemanda með mikla starfsreynslu í búskap má veita undanþágu frá venjulegri námsdvöl og þarf hann þá að uppfylla eftirfarandi lágmarkskröfur:
        - Vera orðinn 25 ára.
        - Hafa unnið við landbúnaðarstörf samfellt í 2 ár á síðast­liðnum 5 árum.
        Slíkar undanþágur gilda ekki um bóklega hluta námsdvalarinnar, verkefni og plöntusafn."
    Námsdvöl fjarnema sem fellur undir undanþágureglurnar
    Hvað varðar fjarnema gilda eftirfarandi reglur:
      Bændur, sem uppfylla undanþáguskilyrðin hér að framan, fá undanþágu frá starfsþjálfun og fá hana metna, samtals 8 einingar (NDL 101, 112, 122, 133).
      Hvort bú sé nógu stórt og búskaparleg aðstaða umsækjanda nægjanlega góð til þess að hann geti lagt stund á áfanga námsdvalar heimavið, eins og hér er um rætt, er metið hverju sinni af kennslustjóra og umsjónarmanni námsdvalar.
    Fjarnemar sem taka þennan hluta námsins á eigin búi þurfa að ljúka eftirfarandi áföngum: Dagbók á eigin búi (NDL 202), Verkefni fjarnema (NDL 213), Plöntusafn (NDL 222) og Búrekstrarkönnun (NDL 433). Lýsingar áfanganna er að finna aftan við lýsingar samsvarandi áfanga sem teknir eru á kennslubúi.

    3. ÖNN

    NDL 203 Dagbók Skylduáfangi

    Eftirfarandi gildir ef námsdvöl fer fram á kennslubúi
    Ábyrgð: Sigtryggur Björnsson B.S., sigtryggur@lbhi.is
    Markmið: Að þjálfa nemandann í að gera með skýrum og skipulögðum hætti grein fyrir áreiti hversdagsins og efla með honum hæfni til þess að tjá sig í rituðu máli sér í lagi um málefni þau er snerta íslenskan landbúnað.
    Lýsing: Nemandi skal færa ítarlega dagbók á námsdvalartímanum þar sem fjallað er um búreksturinn á degi hverjum, framgang hans og tilgang, einnig skal geta helstu viðburða líðandi stundar á kennslubúinu og í þjóðfélaginu. Þá eru landbúnaðarmál sjálfsagt viðfangsefni dagbókar.
    Safna á einnig nákvæmum upplýsingum um veðurfar. Þá kynnir nemandinn sér sögu þess héraðs sem hann dvelur í svo og stjórnkerfi sveitarfélaga og viðfangsefni þeirra. Skrásetja skal þann tíma sem varið er til hvers verks. Dagbók á að skila í lok námsdvalar.
    Eftirfarandi gildir ef námsdvöl fer fram á eigin búi sbr. undanþágur þar um

    Dagbók á eigin búi (NDL 202)
    Dagbók þurfa fjarnemar að skrifa mánuðina apríl, maí og júní og heimsækir umsjónarmaður námsdvalarinnar þá, á því tímabili. Dagbók sem skrifuð er á eigin búi, er þó umfangsminni en þegar um hefðbundna námsdvöl er að ræða

    NDL 215 Verkefni, skoli.is Skylduáfangi

    Eftirfarandi gildir ef námsdvöl fer fram á kennslubúi
    Ábyrgð: Kennarar í jarðarækt, búfjárrækt bókhaldi og umhverfisfræði.
    Markmið: Að nemandi öðlist færni í að nýta þekkingu sína í búfræði við úrlausn raunverulegra verkefna.
    Lýsing: Unnin eru verkefni sem tengjast námi á 1. ári og búrekstri á kennslubúinu. Leiðbeiningar fara fram í gegnum kennsluvef skólans. Verkefnin eru fjórþætt og nánar skilgreind við upphaf námsdvalar:
    1. Jarðrækt. 1,5 einingar.
    Hér er um að ræða verkefni, sem tengjast jarðrækt á kennslubúinu.
    2. Búfjárrækt. 2 einingar.
    Hér velur nemandinn búgrein, annað hvort nautgriparækt, sauðfjárrækt, eða báðar. Ef hann hefur tekið Hrossarækt 1 á 1. önn, má hann velja einnar einingar verkefni sem tengist henni og svo hina eininguna annað hvort úr nautgriparækt eða sauðfjárrækt.
    3. Bókhald og skattskil. 1 eining.
    Nemendur nýta þá þekkingu, sem þeir hafa á þessum málum til að kynna sér rekstur kennslubúsins.
    4. Umhverfisfræði. 0,5 einingar.
    Undir þessum lið verða unnin verkefni tengd umhverfis- og skipulagsmálum á búinu og í byggðarlaginu.
      Kennari á Hvanneyri og verknámsbóndinn bera ábyrgð á leiðbeiningum og kennslu varðandi þessi verkefni og kennarinn annast námsmatið.
      Eftirfarandi gildir ef námsdvöl fer fram á eigin búi sbr. undanþágur þar um

      Verkefni fjarnema (NDL 213)
      Fjarnemi sem vinnur námsdvalarverkefni á eigin búi, skilar alls 3 einingum í verkefnum. Einingarnar skiptast svo: Jarðrækt 1,0 eining, Búfjárrækt 1,5 einingar, Umhverfisfræði 0,5 einingar. Tvær verkefnaeiningar falla inn í áfangann Búrekstrarkönnun (NDL-423)
      Eftirfarandi gildir ef námsdvöl fer fram á eigin búi sbr. undanþágur þar um

      Búrekstrarkönnun (NDL 423)
      Ábyrgð: Sigtryggur Björnsson B.S., sigtryggur@lbhi.is
      Markmið: Að fjarnemi með búrekstur kynni sér rekstrarlega stöðu síns bús með hliðsjón af sem allra flestum þáttum.
      Í stað hluta af verkefnum námsdvalar og dagbókar gera fjarnemar úttekt á eigin búrekstri og taka afstöðu til úrbóta með aðstoð viðkomandi ráðunauts, þ.e. vinna búrekstrar­greiningu fyrir bú sitt. Fyrir þjónustu búnaðarsambandsins greiða þeir eins og aðrir bændur. Búrekstrarkönnunin er unnin á síðustu námsönn fyrir lok búfræðináms fjarnemans, enda hefur hann þá öðlast grunnþekkingu til að takast á við svo krefjandi verkefni. Búrekstrarkönnuninni ásamt greinargerð skal skila til skólans strax og henni er lokið að mati ráðunauts. Ábyrgðarmaður áfangans og viðkomandi ráðunautur annast námsmat.
      Bændur, sem ekki eru með skýrsluhald, þurfa að taka það upp í þeim búgreinum, sem þyngst vega í tekjum búsins um leið og fjarnám hefst.

      NDL 222 Plöntusafn Skylduáfangi

      Fjarnemar ljúka þessum áfanga með sama hætti og aðrir nemendur
      Kennari: Stefanía Nindel B.S., stefania@lbhi.is
      Markmið: Að nemandi læri að greina plöntur með aðstoð tiltækra hjálpartækja og geti sett upp gagnmerkt safn þurrkaðra plantna.
      Lýsing: Nemandinn á að safna minnst 45 tegundum íslenskra plantna samkvæmt nánari leiðbeiningum í vinnubók. Söfnun, greining og þurrkun fer fram að sumri en frágangur safnsins að hausti. Námsmat er tvíþætt, plöntusafn 75% og munnlegt próf 25%.

      BST 202 Bústjórn 1 Skylduáfangi

      Lokið áður: Bókhald 1 og Bókhald 2
      Kennari: Stefanía Nindel B.S., stefania@lbhi.is
      Kennsluefni: Stefanía Nindel, 2004. Bústjórn I. LBH.
      Markmið: Að gera nemanda færan um að meta afkomu og fjárhagsstöðu fyrirtækis með hliðsjón af ýmsum kennitölum.
      Lýsing: Fjallað um helstu kenningar og hugtök við fjármálastjórnun, svo sem grundvallarhugtök reikningshalds, tekjur/gjöld, innborganir/útborganir og almenn kostnaðarhugtök. Samspil kostnaðar, framleiðslumagns og hagnaðar eru rannsökuð í verðbókhaldi. Farið er í greiningu fyrirtækja með kennitölum. Unnið með niðurstöðum búreikninga.

      LBF 103 Líffæra-, lífeðlis- og fóðurfræði Skylduáfangi

      Lokið áður: Búfjárrækt, Hirðing og aðbúnaður búfjár
      Mæta þarf í verklega hluta áfangans til að ljúka honum
      Kennari: Edda Þorvaldsdóttir, B.S., edda@lbhi.is
      Kennsluefni: Edda Þorvaldsdóttir. 2001. Líffræði búfjár. LBH. Ásamt fleiru
      Markmið: Að nemandi þekki líffærabyggingu og lífsstarfsemi búfjár, kunni skil á æxlunar- og vaxtarlífeðlisfræði spendýra og sé fær um að fóðra búpening af kunnáttu
      Lýsing: Fjallað um gerð og starfsemi meltingarfæra einmaga- og jórturdýra. Gerð grein fyrir niðurbroti, upptöku og nýtingu meginnæringarefna, steinefna og vítamína auk þess sem fjallað er um einstök fóðurefni og varnir gegn ýmsum kvillum sem orsakast af rangri fóðrun. Fóðurmat og fóðurmatskerfi tekin til umfjöllunar og notkun þeirra gerð nokkur skil. Þá er fjallað um gerð og starfsemi vöðva, beina og tanna búfjár. Helstu skynfærum gerð skil hvað varðar gerð og starf. Fjallað er um blóð og blóðrás og loftskipti öndunar. Temprun líkamans og þau líffæri sem henni tengjast tekin til umfjöllunar. Húð, hár, horn og hófar, gerð og starf. Í æxlunar- og vaxtarlífeðlisfræði er fjallað um æxlun, fósturmyndun, vöxt og þroska helstu búfjártegunda.

      LBF 202 Erfða- og kynbótafræði Skylduáfangi

      Lokið áður: Búfjárrækt, Hirðing og aðbúnaður búfjár, Líffæra-, lífeðlis- og fóðurfr
      Kennari: Magnús Lárusson, M. Ag. maggilar@lbhi.is
      Kennsluefni: Emma Eyþórsdóttir. 2004. Erfða- og kynbótafræði. LBH.
      Markmið: Að nemandi þekki grundvallaratriði erfða- og kynbótafræðinnar og geti beitt þekkingu sinni í kynbótum í eigin búskap.
      Lýsing: Fjallað um lögmál Mendels, erfðavísa, ríkjandi og víkjandi erfðir svo og flutning erfðaefnis milli kynslóða ásamt jafnaskiptingu og rýriskiptingu fruma. Gerð og verkun erfðavísa, uppbyggingu DNA, röðun erfðavísa, stökkbreytingar og grunnatriði erfðatækni. Fjallað um samstæða og samverkandi erfðavísa. Kynferði og kyntengdar erfðir skýrðar. Gerð grein fyrir erfðabreytileika, magnbundnum erfðum, umhverfisbreytileika og arfgengi.
      Skráning og söfnun upplýsinga, úrvalsaðferðir og kynbótamat tekið til umfjöllunar auk þátta sem hafa áhrif á erfðaframfarir. Þá er fjallað um kynbótaskipulag útfrá mismunandi forsendum, kynbótaeinkunnir og kynbótaspár. Áhersla er lögð á að kynna efnið með dæmum úr íslenskum landbúnaði

      BFR 413 Nautgriparækt 1 Bundið val

      Lokið áður: Búfjárrækt, Hirðing og aðbúnaður búfjár, Líffæra-, lífeðlis- og fóðurfr
      Mæta þarf í verklega hluta áfangans til að ljúka honum
      Kennari: Sverrir Heiðar, B.S., sverrir@lbhi.is
      Kennsluefni: Sveinn Guðmundsson. 1996. Hraustar kýr
      Alfnes, T. og Österås, O. 1997. Mjaltir og mjólkurgæði (BÍ).
      Ýmis ljósrit sem kennari afhendir.
      Markmið: Að nemandi kynnist stöðu nautgriparæktar í heiminum. Verði fær um að sinna hirðingu nautpenings og kunni skil á helstu þáttum er lúta að mjöltum og tækni við þær.
      Lýsing: Kynnt eru helstu kúakyn. Fjallað er um fóðurþarfir, uppeldi, fóðrun og hirðingu mjólkurkúa á mismunandi tímabilum og gerðar fóðuráætlanir. Nemendur gera úttekt á fóðrun í Hvanneyrarfjósi. Farið er í ferli mjólkurmyndunar, mjaltir, efnainnihald mjólkur og kynntir þættir sem þar hafa áhrif. Rætt er um ungkálfa, val á kvígum og uppeldi þeirra. Fjallað um atferli, frjósemi, sjúkdóma og heilbrigði nautgripa. Þá er farið í skýrsluhald í nautgriparækt.

      BFR 423 Sauðfjárrækt 1 Bundið val

      Lokið áður: Búfjárrækt, Hirðing og aðbúnaður búfjár, Líffæra-, lífeðlis- og fóðurfr
      Mæta þarf í verklega hluta áfangans til að ljúka honum
      Kennari: Árni Brynjar Bragason, B.S., arni@lbhi.is
      Kennsluefni: Ljósrit og ýmis gögn sem kennari vísar á eða afhendir
      Markmið: Að nemandinn þekki til íslensks sauðfjárbúskapar og verði fær um að sinna hirðingu sauðfjár.
      Lýsing: Sérkenni íslenska fjárstofnsins og saga íslenskrar sauðfjárræktar. Fjallað um mörk og merkingar. Ítarlega er fjallað um fóðrun og hirðingu sauðfjár á öllum aldri. Fjallað um sjúkdóma í ám og lömbum og hvernig má bregðast við þeim. Kjötgæði og kjötmat ítarlega tekin fyrir. Sumar- og síðslátrun lamba, sveigjanlegur burðar- og sláturtími. Grundvöllur kynbótastarfsins og skipulag þess kynnt. Ull og gærur. Frjósemi, sauðfjár, sæðingar áa og samstilling gangmála. Nemendur vinna ritgerð um sauðfjárrækt á tilteknu býli, sem þeir velja sjálfir. Verkleg þjálfun í sauðfjárdómum, ullarmati, mati á líflömbum og sláturlömbum. Notkun ómsjár kynnt.

      BFR 452 Ullariðn Valáfangi

      Áfanganum er skipt í nokkrar tveggja til þriggja daga tarnir á Hvanneyri
      Kennari: Jóhanna Pálmadóttir
      Markmið: Að nemandi verði fær um að vinna ull frá rúningi í fatnað með nokkrum algengum aðferðum.
      Lýsing: Kynnt er eðli íslensku ullarinnar, sérkenni hennar og möguleikar til nýtingar. Ýmsar úrvinnsluaðferðir verða kynntar. Grófhreinsun reyfis og pökkun. Nemendur læra að nýta íslensku ullina til handiðnar. Farið er í þvott, ofanaftekt, kembingu og spuna. Æfð er ýmis konar bandgerð, tekin fyrir úrvinnsla, t.d. prjón, vefnaður og flókagerð, auk þess sem farið er í grundvallaratriði hönnunar. Stór hluti áfangans er verklegur.

      BFR 462 Kanínurækt Valáfangi

      Lokið áður: Búfjárrækt, Hirðing og aðbúnaður búfjár, Líffæra-, lífeðlis- og fóðurfr
      Mæta þarf í verklega hluta áfangans til að ljúka honum
      Kennari: Sverrir Heiðar, B.S., sverrir@lbhi.is
      Kennsluefni: Ingimar Sveinsson. 1988. Loðkanínurækt.
      Sverrir Heiðar. Drög að kennsluefni í kanínurækt.
      Markmið: Að nemandi kynnist kanínurækt og geti hirt um kanínur til afurðamyndunar.
      Lýsing: Kynntir eru möguleikar á kanínurækt sem búgrein. Fjallað um notagildi og einstök afbrigði með aðaláherslu á feldkanínur og loð­kanínur. Kynnt eru markaðsmál tengd afurðum þeirra. Ítarlega er fjallað um meltingu, fóðrun og hirðingu ásamt kröfum þeim sem kanínur gera um húsvist og aðbúnað. Gerð er grein fyrir helstu fóðurtegundum sem henta í kanínurækt hérlendis. Fjallað um kynbætur og val lífdýra, frjósemi og helstu sjúkdóma.

      JRT 412 Lífrænn landbúnaður Valáfangi
      Kennari: Ásdís Helga Bjarnadóttir, M.Sc., asdish@lbhi.is
      Markmið: Að nemandi kynnist vistvænum og lífrænum landbúnaði og geti yfirfært þekkingu sína á hérlendar aðstæður.
      Lýsing: Nemandinn kynnist skilgreiningum innan vistvæns og lífræns land­búnaðar, kynnist hugmyndafræði, reglugerðum og aðferðum í lífrænum land­búnaði, kynnist þróun lífræns landbúnaðar í heiminum og möguleikum og þróun lífræns landbúnaðar á Íslandi.

      4. ÖNN

      BST 213 Bústjórn 2 Skylduáfangi

      Lokið áður: Bókhald 1, Bókhald 2, Bústjórn 1
      Kennari: Stefanía Nindel B.S., stefania@lbhi.is
      Markmið: Að nemandi geti tekið ákvarðanir um fjárfestingar út frá tiltækum upplýsingum, geti aflað sér upplýsinga sem þarf til slíkra ákvarðana og þekki til helstu fjáfestingaleiða. Að nemandi þekki til helstu kenninga markaðsfræðinnar og gæðastjórnunar.
      Lýsing: Nemandinn kunni skil á stöðu bóndans sem framleiðanda og stjórnanda, samspili hans og ýmissa umhverfisþátta. Þá lærir nemandinn að reikna út ýmsa kostnaðarþætti og fjárfestingar af margvíslegum toga (s.s. hús, vélar, ræktun o.fl.), læri að meta arðsemi þeirra og geti aflað sér upplýsinga um hvernig fjárfestingar eru fjármagnaðar. Farið verður lítillega í markaðsfræði og gæðastjórnun.

      BÚT 212 Búvélafræði 2 Skylduáfangi

      Lokið áður: Búvélafræði 1
      Mæta þarf í verklega hluta áfangans til að ljúka honum
      Kennari: Grétar Einarsson, bútæknifræðingur, gretar@lbhi.is
      Kennsluefni: Hvamm, S.A.2002. Markens maskiner. Greinar o.fl. sem bent er á.
      Markmið: Að nemandi þekki til helstu véla sem notaðar eru í landbúnaði og sé fær um að beita þeim af þekkingu og öryggi.
      Lýsing: Fjallað er um vélar til jarðvinnslu, áburðardreifingar, heyskapar og uppskerustarfa. Efnistök beinast einkum að því að fjalla um grunnuppbyggingu véla, vinnsluaðferðir og vinnugæði, stillingaratriði, og tengingar við aflvél. Þá er einnig fjallað um aflþörf, afköst og einstaka vélar sem hluta af í vélakosti búsins. Áhersla er einnig lögð á atriði sem varða áhrif vélanna á umhverfi sitt svo og öryggisatriði varðandi meðferð þeirra. Verklegar æfingar og sýnikennsla eru þáttur í náminu.

      FEL 101 Félags- og stoðkerfi landbúnaðarins Skylduáfangi
      Kennari: Magnús B. Jónsson, Dr. Scient, magnusb@lbhi.is
      Kennsluefni: Löggjöf og samningar um félags og stoðkerfi landbúnaðarins.
      Markmið: Að nemandi kunni skil á félagskerfi landbúnaðarins og þeirri stoðþjónustu sem íslenskum landbúnaði stendur til boða. Að námskeiðinu loknu geti nemandinn tekið virkan þátt í félagsstarfi og viti hvar leita skal aðstoðar og upplýsinga um málefni landbúnaðarins hverju sinni sem stjórnandi (bóndi).
      Lýsing: Fjallað um opinbera stjórnsýslu landbúnaðrins, Fjallað um félagskerfi landbúnaðarins. Fjallað um starfsemi Bændasamtaka Íslands, búnaðarsambanda, hreppabúnaðarfélaga.,búgreinafélaga og annarra fagfélaga bænda. Helstu stofnair landbúnaðarins kynntar svo og starfsemi þeirra.

      LND 202 Beitarfræði og landbætur Skylduáfangi

      Lokið áður: Búfjárrækt, Jarðvegur og nytjajurtir
      Kennari: Árni Brynjar Bragason B.S., arni@lbhi.is
      Kennsluefni: Anna G. Þórhallsdóttir. 1992. Beitarfræði. Borgþór Magnússon o.fl. 1997. Hrossahagar. Ljósrit og greinar sem kennari bendir á.
      Markmið: Að nemandi kunni skil á gróðurþróun á Íslandi og helstu orsökum gróðrufarsbreytinga. Þekki til beitaráhrifa á mismunandi gróður hérlendis og sé fær um að stjórna beit og meta áhrif hennar á mismunandi árstímum. Þekki helstu leiðir í landgræðslu- og landbótastarfi.
      Lýsing: Fjallað um almenna gróðurþróun í heiminum og á Íslandi, orsakir gróður- og jarðvegshnignunar og afleiðingar með sérstakri áherslu á þátt beitar. Áhrif beitar á einstakar plöntur og viðbrögð mismunandi plantna við beit. Helstu gróðurlendi í íslenskum úthaga kynnt og fjallað um beitarþol þeirra. Næringargildi beitargróðurs, beitarnýting mismunandi búfjártegunda og þættir sem hafa áhrif á beitarnýtinguna. Fjallað um beitarálag, beitarþunga og mat á ástandi og þróun beitilands. Rætt um helstu beitarstjórnunaraðferðir. Leiðir til landbóta skoðaðar. Fjallað um helstu tegundir plantna sem notaðar eru til landgræðslu/bóta. Stofnanir, lög og reglugerðir sem varða nýtingu lands til beitar verða kynntar. Landnýtingarþáttur gæðastýringar í sauðfjár- og hrossarækt skoðaður sérstaklega. Nemendur vinna beitarskipulag fyrir eina bújörð.

      LND 332 Nytjaskógrækt Skylduáfangi

      Lokið áður: Jarðvegur og nytjajurtir, Áburðarfræði og plöntuvernd
      Mæta þarf í verklega hluta áfangans til að ljúka honum
      Ábyrgðarmaður: Árni Brynjar Bragason, B.S., arni@lbhi.is
      Kennsluefni: Kynnt síðar.
      Markmið: Að nemendur verði færir um að taka þátt í verkefnum á borð við bændaskóga og kunni skil á helstu atriðum er varðar skógrækt á Íslandi.
      Lýsing: Í áfanganum verður fjallað um skógrækt sem búgrein. Megináhersla verður lögð á ræktun skóga til viðarnytja en einnig minnst á önnur not af skógum og trjám, svo sem jólatré, eldivið, beit, ber og sveppi, skjól og yndi. Fjallað verður um helstu markmið skóg- og trjáræktar, áhrif skógræktarskilyrða á markmið með skógrækt á hverjum stað auk þess að helstu vinnubrögð, trjátegundir, vandamál og skaðvaldar í skógrækt á Íslandi verða kynnt. Notkun skógræktaráætlana verður kennd og fjallað um stofnanaumhverfi skógræktar auk þess sem styrkjakerfi skógræktar verður kynnt.

      BFR 513 Nautgriparækt 2 Bundið val

      Lokið áður: Nautgriparækt 1, Erfða- og kynbótafræði
      Mæta þarf í verklega hluta áfangans til að ljúka honum
      Kennari: Sverrir Heiðar, B.S., sverrir@lbhi.is
      Kennsluefni: Sveinn Guðmundsson. 1996. Hraustar kýr
      Alfnes, T. og Österås, O. 1997. Mjaltir og mjólkurgæði (BÍ).
      Markmið: Að nemandi kunni skil á nautgripakynbótum, þekki til mjólkur- og nautakjötsframleiðslu og öðlist færni og þjálfun í meðferð og hirðingu nautgripa á öllum aldri og við mismunandi aðstæður. Að nemandinn þekki aðferðir til hagræðingar í rekstri kúabús.
      Lýsing: Gerð er grein fyrir uppbyggingu og framkvæmd kynbótastarfs í naut­griparækt. Greint frá markaði með afurðir nautgripa hérlendis og í alþjóðlegu samhengi. Fjallað um kjötframleiðslu, kjötmat og kjötgæði. Áhrif mjalta og mjaltatækja á heilbrigði gripa og gæði mjólkur með tilliti til mjólkurvinnslu eru sérstaklega tekin fyrir m.a. með áherslu á frumutölu.
      Ræddir möguleikar kúabænda til að auka hagkvæmni í búskap sínum við ríkjandi aðstæður. Lífræn og vistvæn mjólkurframleiðsla. Siðfræði mjólkur­framleiðslu. Nemendur fá þjálfun í viðhaldi mjaltabúnaðar, kúadómum og klaufsnyrtingu. Námsferð í mjólkursamlag og fjósskoðun.

      BFR 523 Sauðfjárrækt 2 Bundið val

      Lokið áður: Sauðfjárrækt 1, Erfða- og kynbótafræði
      Mæta þarf í verklega hluta áfangans til að ljúka honum
      Kennari: Árni Brynjar Bragason, B.S., arni@lbhi.is
      Kennsluefni: Ljósrit og ýmis gögn sem kennari vísar á eða afhendir
      Markmið: Að nemandi þekki til sauðfjárræktar í heiminum og kunni skil á atriðum er varða kynbætur sauðfjár. Að nemandi geti aukið hagræðingu sauðfjárbús með viðurkenndum aðferðum bæði vinnulega og afkomulega séð.
      Lýsing: Staða sauðfjárræktar í heiminum. Flokkun fjárkynja. Erfðir séðra og mældra eiginleika og erfðatengsl milli eiginleika skýrð. Starfsemi fjárræktarfélaga gerð ítarleg skil s.s. skýrsluhaldi, einkunnum fyrir ýmsa eiginleika, notkun Blups hjá sauðfé, afkvæmarannsóknum og fleiru. Notkun á skýrsluhaldsforritinu Fjárvís kynnt. Rætt um áhrif frjósemi, fallþunga og flokkunar kjöts á afkomu búsins. Skoðaðir möguleikar sauðfjárbænda til að auka hagkvæmni í búskap sínum við ríkjandi aðstæður. Fjallað um sauðfjársamninginn og gæðastýringuna sem honum tengist. Rætt um fjárhúsbyggingar og vinnuhagræðingu. Möguleikar á framleiðslu afurða úr sauðamjólk kynntir. Notkun fjárhunda kynnt. Verkleg þjálfun í vélrúningi. Farið í heimsóknir á sauðfjárbú.

      BFR 632 Hrossarækt fyrir fjarnema Valáfangi

      Lokið áður: Búfjárrækt, Hirðing og aðbúnaður búfjár,
      Líffæra-, lífeðlis- og fóðurfr., Erfða- og kynbótafr.
      Mæta þarf í verklega hluta áfangans til að ljúka honum
      Kennari: Svanhildur Hall, M. Sc., svanhildur@lbhi.is
      Markmið: Að gefa fjarnemum kost á yfirgripsmikilli kynningu á flestu er lýtur að hrossarækt, án þess að til komi mikil verkleg þáttaka.
      Lýsing: Farið í þróun og sögu íslenska hestsins og helstu hestakyn heimsins kynnt. Ítarlega er fjallað um fóðurþarfir og fóðrun hrossa og sérstök áhersla lögð á framkvæmd fóðrunar, alla hirðingu og umönnun bæði reiðhesta og útigangshrossa allan ársins hring. Æxlunarfræði og umönnun folaldshryssa er gerð góð skil ásamt sæðingum og fósturvísaflutningum. Fjallað um kynbætur, kynbótaskipulag, skýrsluhald í hrossarækt og notkun kynbótagildisspár. Hestaiðnaðurinn á Íslandi kynntur fyrir nemendum þar sem fjallað er um markaðsmál og útflutning hrossaræktarafurða. Meðferð á unghrossum og hófhirða er kynnt .

      BST 522 Búrekstraráætlanir Valáfangi

      Lokið áður: Bókhald 1, Bókhald 2, Bústjórn 1, Bústjórn 2
      Kennari: Stefanía Nindel B.S., stefania@lbhi.is
      Markmið: Að nemandi geti gert búrekstraráætlanir út frá réttum forsendum og aflað sér þeirra gagna sem til þess þarf.
      Lýsing: Nemandinn kunni skil á hagstjórn, hámörkun ágóða og geti lagt mat á arðsemi fyrirtækis. Rætt er um markmiðssetningu, ákvarðanatöku og áætlanagerð. Farið er í fjárhagsáætlanir fyrir fyrirtæki, umhverfi fyrirtækjareksturs og stjórnferli fyrirtækja. Fjallað um hvernig bóndinn geti lesið upplýsingar úr umhverfi sínu til að nýta við búreksturinn.

      JRT 522 Rótarávextir og nýjar fóðurjurtir Valáfangi

      Lokið áður: Jarðvegur og nytjajurtir, Áburðarfræði og plöntuvernd
      Kennari: Edda Þorvaldsdóttir, B.S., edda@lbhi.is
      Kennsluefni: Ýmis rit og greinar tengdar efninu
      Markmið: Að nemandi kynnist ræktun rótarávaxta og verði fær um að stunda slíka ræktun sér til gagns og ánægju. Einnig að kynna nemendum nýjar fóðurjurtir sem til greina kemur að nýta hérlendis.
      Lýsing: Gerð grein fyrir ræktun kartaflna, gulrófna, gulróta og fleiri rótarávaxta og helstu einkennum og nytjum hverrar tegundar. Fjallað er um illgresiseyðingu, sumarhirðingu, upptöku, geymslu og sjúkdóma er snerta fyrrgreindar tegundir. Markaðsaðstæðum og markaðsöflun jarðávaxta gerð skil.
      Leitast er við að kynna fóðurjurtir sem til greina gætu komið í ræktun hérlendis.

      JRT 532 Grænmeti og ber Valáfangi

      Lokið áður: Jarðvegur og nytjajurtir, Áburðarfræði og plöntuvernd
      Kennari: Árni Brynjar Bragason, B.S., arni@lbhi.is
      Kennsluefni: Magnús Óskarsson og Óli V. Hansson. 1983. Grænmeti úr eigin garði. Óli V. Hansson (ritstj.). 1978. Matjurtabókin.
      Markmið: Að nemandi geti komið af stað eigin heimilisgarðrækt, geti þróað eigin ræktunaraðferðir við mismunandi skilyrði og veitt almenn ráð um heimilisgarðrækt og nýtingu íslenskra plantna til matar.
      Lýsing: Fjallað um sögu heimilisgarðræktar á Íslandi. Farið ítarlega í aðferðir við val á garðlandi og veðurfarsbætandi aðgerðir, sáningu, uppeldi, útplöntun, sumarhirðingu og uppskeru. Illgresiseyðingu og vörnum gegn plöntusjúkdómum gerð skil. Kynntar eru helstu tegundir matjurta og berja sem reynast vel í útiræktun á Íslandi. Einnig sagt frá tegundum í íslensku flórunni sem nýttar eru til matar og nýtingarmöguleikum þeirra.

      JRT 542 Endurræktun túna og einærar fóðurjurtir Valáfangi

      Lokið áður: Jarðvegur og nytjajurtir, Áburðarfræði og plöntuvernd
      Kennari: Edda Þorvaldsdóttir, B.S., edda@lbhi.is
      Kennsluefni: Ýmis rit og greinar sem tengjast efninu. Námsefni jarðvegs og áburðarfræði.
      Markmið: Að nemandi hafi þekkingu til að meta endurræktunarþörf og taka ákvörðun um með hvaða hætti endurræktun fari fram. Samfara því þekki hann helstu einærar fóðurjurtir sem nýtanlegar eru hérlendis og kunni skil á notkun og ræktun þeirra.
      Lýsing: Mat á endurræktunarþörf, gróðurfar túna og þættir sem hafa áhrif á hvernig það breytist. Mat á stöðu gróðurfars og framræslu. Hagkvæmni endur­ræktunar. Endurnýjun gróðurfars án jarðvinnslu. Viðhald og endurnýjun fram­ræslukerfa. Jarðvinnslutækni við endurvinnslu, plöntuval, sáning og frágangur flags. Áburðarnotkun og varnir gegn illgresi. Rekstraráætlun.
      Fjallað er um ræktun einærra fóðurjurta sem rækta má hérlendis sem grænfóður og til þroska. Farið í kröfur tegundanna til jarðvegs og veðurfars, vaxtarferla, uppskeru og efnainnihald þeirra ásamt nýtingarmöguleikum. Sérstök áhersla er lögð á ræktun byggs til þroska.

      LND 512 Landnýting og náttúruvernd Valáfangi
      Kennari: Ragnhildur Sigurðardóttir, M.Sc., ragnhildurs@lbhi.is
      Markmið: Að nemandi kynnist landnýtingu og náttúruvernd hérlendis á sem víðustum grunni og samspili þessara þátta við landbúnaðinn.
      Lýsing: Í áfanganum er gefið yfirlit yfir landnýtingu á Íslandi. Fjallað um loftmyndir og notkun þeirra. Nemendur læra kortagerð og vinnu með kort t.d. gróður- og jarðvegskort. Helstu lög og reglugerðir sem varða umhverfis- og skipulagsmál eru kynnt. Nemendur vinna landnýtingaráætlun. Siðfræði og saga náttúruverndar. Líffræðilegur fjölbreytileiki og ógnun við lífverur. Búsvæði, innflutningur og nýting tegunda. Áhrif mengunar. Saga og skipulag náttúruverndar á Íslandi. Lög sem varða náttúruvernd. Náttúruvernd og landbúnaður, friðun og nýting.






        4. Fjarnám í garðyrkjugreinum

        1. Inngangur
        Hér verður kynnt fyrirkomulag fjarnáms í garðyrkjugreinum við Landbúnaðarháskóla Íslands. Gerð verður stuttlega grein fyrir skipulagi námsins, vali námsáfanga, framkvæmd verklegra hluta námsins, fyrirkomulagi prófa, kostnaði og öðru sem máli skiptir.

        Fjarnám í garðyrkju skiptist í blómaskreytingar, garðyrkjuframleiðslu (garð- og skógarplöntuframleiðslu), skrúðgarðyrkju og skóg og umhverfi. Kennsla á þessum brautum fer fram á Reykjum í Ölfusi. Nemendur þurfa að hafa umtalsverða starfsreynslu þegar þeir hefja nám. Einnig eru nemendur í verknámi meðan á námi stendur. Skólinn verður að viðurkenna verknámsstaði nemenda. Nemendur í skrúðgarðyrkju þurfa að vera á formlegum námssamningi hjá skrúðgarðyrkjumeistara til að komast inn á brautina.

        Allir sem nema á garðyrkjubrautum, geta komist í fjarnám. Vissulega er þessi kostur þó aðallega ætlaður fólki sem býr fjarri skólastaðnum og alls ekki kemst í staðbundið nám.


        2. Skipulag fjarnáms í garðyrkjugreinum
        Fjarnámið býður upp á nokkra valkosti en miðar fyrst og fremst við þá sem stefna að útskrift af viðkomandi brautum.

        Fjarnámið er nánast alveg eins upp byggt og staðarnám – með þeim undantekningum að minni mætingar er krafist og fjarnemar fá kennslubréf í stað þess að sitja hefðbundnar kennslustundir.

        Fjarnemum er heimilt að mæta í hefðbundnar kennslustundir, skulu þeir þá mæta tímanlega og haga viðveru sinni á sama hátt og staðarnemar.

        Nemendur innritast á sama hátt í skólann en velja sjálfir umfang námsins, í samráði við starfsfólk skólans.

        Eftirfarandi kostir eru í boði fyrir fjarnema í garðyrkju:

        Ø Skipuleggja fjarnámið til lokaprófs á jafn löngum tíma og staðarnemi (2 ára nám – fullt nám)
        Ø Skipuleggja fjarnámið til lokaprófs á hálfum hraða (4 ára nám – áfangar sem teknir eru hverju sinni eru ákveðnir af skólanum)
        Ø Taka eingöngu bóklega hluta námsins – slíkt leiðir ekki til lokaprófs, nemandi er þá undanþeginn skyldumætingu í verklega hluta námsins.

        Mikilvægt er að allt mat á fyrra námi, skipulag og áætlun um námsframvindu sé gert þegar í upphafi. Betra er að breyta áætlunum eftir því sem á námið líður en að fara af stað með óljós markmið og fyrirætlanir.

        Samskipti nemenda og skóla eru í megindráttum um Internetið (veraldarvefinn). Því er mikilvægt að allir séu vel kunnugir slíkum samskiptum.

        Verklegir hlutar garðyrkjunámsins eru kenndir á námskeiðum, sem haldin eru með jöfnu millibili yfir skólatímann. Nánara skipulag þessara þátta námsins er kynnt við upphaf hvers skólaárs (sjá aftar í þessum bækling).

        Skyldumæting er í verklega þætti og námslotur hvers áfanga.

        2.1 Skipulag verknáms
        Verknám fer fram á verknámsstöðum sem skólinn viðurkennir. Verknámsstaðir eru mismunandi eftir því hvaða braut nemandi velur, þannig starfa nemendur blómaskreytingabrautar einkum í blómaverslunum, nemendur garðyrkjuframleiðslu starfa við framleiðslu garðplantna, skógarplantna eða ylræktarafurða, nemendur skrúðgarðyrkju eru á samningi hjá skrúðgarðyrkjumeisturum og nemendur í skógi og umhverfi starfa hjá skógræktarfélögum, sveitarfélögum, Landgræðslu eða sambærilegum fyrirtækjum. Nemandinn þarf sjálfur að útvega sér verknámsstað og sækja svo um að skólinn samþykki verknámsstaðinn.

        Verknámið tekur alls 72 vikur. Þar af eru 12 vikur svokallaður reynslutími og 60 vikur eru svo dagbókarskyldur hluti verknáms. Nemendur þurfa að halda dagbók yfir verk og verkþætti í þessar 60 vikur og gera ítarlegar verklýsingar fyrir hvern verkþátt. Dagbók er skilað við komuna í skólann að hausti og námsbrautarstjóri fer yfir dagbókina og gefur einkunn fyrir hana.

        Við upphaf bóklegs náms þurfa nemendur að hafa lokið að minnsta kosti 12 vikum í dagbókarskrifum. Námsbrautarstjóri heimsækir nemendur í verknámi á verknámsstað einu sinni á sumri. Einungis þeir nemendur sem hafa lokið verknámi útskrifast sem fullgildir garðyrkjufræðingar frá skólanum. Hafi nemandi ekki lokið við að skrifa dagbók þegar bóklegu námi lýkur er mikilvægt að hann ljúki því sem allra fyrst og skili dagbók inn til skólans, þegar námsbrautarstjóri hefur farið yfir lokaáfanga dagbókar fær nemandinn formlega útskrift frá skólanum og getur kallað sig garðyrkjufræðing.

        2.2 Próf
        Próf eru að öllu leyti sambærileg í fjarnámi og hefðbundnu námi (sjá kennsluskrá LBHÍ). Fjarnemar eiga þess oftast kost að taka lokapróf í heimahéraði, þeir standa sjálfir straum af kostnaði sem prófunum fylgja og finna sér próftökustað í samráði við fjarnámsstjóra. Öllum fjarnemum býðst að taka próf á Reykjum/Hvanneyri, án próftökugjalds. Fjarnemar eru beðnir að kynna sér kafla um próf og próftöku í starfsnámi (sjá www.lbhi.is).

        2.2 Kröfur um tölvukost
        Til að taka þátt í fjarnáminu verður nemandinn að hafa aðgang að tölvu með tengingu við Internetið. Nauðsynlegt er að eftirfarandi búnaður sé til staðar.

            Vélbúnaður:
            Tölva minnst Pentium-300MHz með 64 Mb (stýrikerfi: Win98/ME/2000/XP) eða sambærileg Machintosh tölva með uppsettann Firefox vefskoðara
            Tengibúnaður við Internet, minnsti hraði 28.8 Kbps
            Mjög æskilegt að hafa aðgang að prentara.

            Hugbúnaður:
            Windows XP (lágmark 2000)
            Ritvinnsluforrit og Töflureiknir (ekki eldra en Word/Excel 2000)
            Internet Explorer 6,0 (ekki eldra)
            Tölvupóstforrit. Nemendur eru hvattir til að nota örugga póstþjóna, ekki gjaldfrjálsan aðgang að ótryggum þjónum, slíkt býður upp á vandamál svo sem vírussmitun.
            Vírusvarnarforrit er nauðsynlegt að hafa

        3. Undirbúningskröfur
        Fjarnemar í garðyrkju þurfa að uppfylla sömu undirbúningsskilyrði og þeir sem eru í reglubundnu námi.

        Gert er ráð fyrir að nemendur hafi nokkra þjálfun í tölvunotkun og séu m.a. kunnugir ritvinnslu- og töflureikniforritum og vanir að nota tölvupóst og vafra.


        4. Kostnaður
        Við innritun greiðist grunngjald og síðan fast gjald fyrir hverja einingu í námi þannig (tölur frá 2006/2007):

        ¨ Innritunargjald kr. 27.000,- greiðist fyrir skólaárið
        ¨ Fyrir hverja einingu sem tekin er í fjarnámi greiðast kr. 2.700,-
        ¨ Útskrifaðir garðyrkjufræðingar frá Reykjum (Garðyrkjuskóla og LbhÍ) geta tekið áfanga í fjarnámi og greiða þá bara einingagjald (2.700 kr fyrir hverja einingu)

        Auk þessa kemur til námsgagna- og dvalarkostnaður sem er ákaflega mismunandi eftir því hvaða áfanga nemendi tekur hverju sinni. Prófkostnað greiðir fjarnemi sem ekki tekur sín próf á Reykjum/Hvanneyri.


        5. - Innritun - Upphaf náms
        Nýnemar á garðyrkjubrautum eru teknir inn annað hvert ár. Nýnemar eru nú (haust 2006) að hefja nám, svo næst verður tekið inn í þessar brautir haustið 2008.

        Eyðublöð til umsóknar um þátttöku í fjarnámi fást hjá skólanum. Umsóknir skal senda til skólans. Utanáskriftin er:

        Kennsluskrifstofa LbhÍ, Hvanneyri, 311 BORGARNES

        Haft verður samband við þá sem innritast í fjárnámið, svo unnt sé að ganga frá skipulagi fyrir hvern og einn.

        Fjarnemar verða að mæta að Reykjum í byrjun fyrstu annar til kynningar á skipulagi námsins. Einnig er skyldumæting í verklega þætti og námslotur (sjá yfirlit hér aftar).

        Það er von okkar að meðfylgjandi gögn veiti væntanlegum fjarnemum nauðsynlegar upplýsingar.


        5. Áfangalýsingar garðyrkjubrauta

        Áfangalýsingar má finna á heimasíðu skólans: www.lbhi.is

        Vinstra megin á síðunni er valið “Nám” og þar undir “Starfsmenntanám”. Inn á síðunni sem þá opnast er síðan smellt á viðkomandi braut – þá birtist texti og neðst í honum er: “Sjá ... – braut...” smellið á þann tengimöguleika og þá er komið inn í skipulag námsins á viðkomandi braut.
        Fyrst verður fyrir listi yfir áfanga annarinnar – smella má á áfangaskammstöfunina og þá birtist áfangalýsing viðkomandi áfanga.


        6 Skipulag garðyrkjubrauta í fjarnámi

        Hér á eftir eru upplýsingar um námsfyrirkomulag hverrar brautar (.pdf skjöl) – þar eru allir áfangar hverrar annar taldir upp í röð. Sjá má einnig í hvaða röð fjarnemar á hálfum hraða munu taka sína áfanga (þá er áfanginn merktur inn á ákveðið námsár). Athugið að blómaskreytingar er ekki hægt að taka á hálfum hraða. Skipulag þeirra, er því það sama og staðarnema.

        Þeir sem eru í fullu námi taka þannig allar einingar annarinnar nú á haustönn 2006. Þeir sem taka námið á hálfum hraða, byrja á að taka þær einingar sem merktar eru haust 2006 og ljúka síðan fyrstu önninni haustið 2008 með þeim einingum sem þar eru skráðar sem 1. annar einingar.
        Sama fyrirkomulag er varðandi framhald námsins.


        Blómaskreytingar
        Garðyrkjuframleiðsla
        Skrúðgarðyrkja
        Skógur og umhverfi




      Viljir þú fræðast frekar um málið, væri okkur ánægja ef þú hefðir samband,

      Edda Þorvaldsdóttir, umsjónarm. fjarnáms
      rafpóstur: edda@lbhi.is
      sími: 433 5000
      Til baka - efst á síðu

       

      •