Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
- Endurmenntun
    - Almennar upplýsingar
    - Listun samkv. dags.
    - Umhverfi og skipulag
    - Landbún.framleiðsla
    - Garðar og gróður
    - Blómaskreytingar
    - Handverk - nýsköpun
    - Farandnámskeið
    - Hrossarækt

 

 

 
 

Endurmenntunardeild

Einkunnarorð Landbúnaðarháskóla Íslands eru „Háskóli lífs og lands“. Landbúnaðarháskóli Íslands er því háskóli fyrir þig. Markhópur skólans er afar stór og því þarf skólinn að hafa sterk og góð tengsl við atvinnulífið. Hluti af þessum tengslum er að byggja upp sterka og öfluga endurmenntunardeild sem mun þjóna sem flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfis-tengdra mála í samfélaginu. Má þar t.a.m. nefna búfræði-greinar, garðyrkjugreinar, skipulagsgreinar, skógræktargreinar, landgræðslugreinar, líf- og jarðfræði, umhverfismál, tæknigreinar og dýrafræði. Eitt af markmiðum deildarinnar er að koma á formlegu samstarfi við fagfélög í landinu sem og aðra sem tengjast deildinni faglega. Er það álit okkar að samstarf sem þetta sé nauðsynlegt svo námskeiðin verði sífellt betri. Við leggjum okkur því fram um að bjóða upp á hágæða námskeið á víðu sviði sem hafa ávallt á að skipa fremstu fyrirlesurum í sínu fagi.

Starfssvið endurmenntunardeildarinnar er landið allt. Við munum því leggja okkar að mörkum við að koma námskeiðum sem víðast um landið, bæði að senda námskeiðin í heild sinni um landið sem og að nýta fjarfundartækni. Einnig verða námskeið haldin í húsnæði LbhÍ á Hvanneyri og að Reykjum í Ölfusi.

Endurmenntun LbhÍ mun bjóða upp á styttri sem lengri námskeið sem henta munu fólki í fullri vinnu. Við munum bjóða upp á sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir þannig að starfsfólk geti eflt stöðu sína og um leið fyrirtæki sitt. Endurmenntunarstjóri LbhÍ er Guðrún Lárusdóttir. Verkefnastjórar Endurmenntunar LbhÍ eru Ásdís Helga Bjarnadóttir og Björgvin Eggertsson. Netfang deildarinnar er: endurmenntun@lbhi.is og sími: 433 5000.


Námskeiðsflokkar
Búfjárrækt og jarðrækt
Garðar og gróður
Umhverfi- og skipulag
Blómaskreytingar
Bókhald og rekstur
Hugur og hönd
Næstu námskeið