Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Um háskólann
Nám
- Háskólanám
    - Meistaranám
- Starfsmenntanám
    - Fjarnám
- Endurmenntun
- Kynningarefni
- Umsóknir
Hagnýtar uppl.
Nemendur
Uppl. Stefanía
Rannsóknir
Bókasafn
Útgáfa
Tölvumál
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
 
Póstur á vefstjóra
Nemendur öðlast þekkingu á almennum blómaskreytingum, fá innsýn í rekstur blómaverslana og kunna skil á helstu tegundum afskorinna blóma.Búfræðinám á Hvanneyri er góður og nauðsynlegur undirbúningur fyrir störf við landbúnað og margskonar hliðargreinar hans. Hingað sækir verðandi forystufólk sveitanna menntun sína og aðrir sem vilja lifa með landinu.Námið veitir góða undirstöðu til starfa við garðyrkjuframleiðslu, einnig við sölu og ráðgjöf á svið ræktunar, við verkstjórn og/eða rekstur garðyrkjustöðva.Námið veitir undirstöðuþekkingu til starfa við skógrækt og umönnun umhverfis.Námið veitir fræðslu um byggingu garða, viðhald þeirra og jafnframt fá nemendur innsýn í rekstur skrúðgarðyrkjufyrirtækja
NánarNánarNánarNánarNánar




Sjá Starfsreglur LbhÍ Starfsmenntadeild

Við LBHÍ er bæði boðið upp á háskólanám og starfsmenntanám. Í starfsmenntanáminu eru fimm námsleiðir og innan nokkurra þeirra geta nemendur valið sér mismunandi áherslur. Inntökuskilyrði eru að umsækjandi hafi lokið 2-4 önnum í framhaldsskóla. Námið er lánshæft hjá LÍN. Kennsla í búfræði fer fram á Hvanneyri en aðrar greinar eru kenndar á Reykjum í Ölfusi.


Námstími á búfræðibraut er tvö ár, þar af eru 3 mánuðir í námsdvöl. Á öðrum brautum tekur námið þrjú ár, þar af eru tvö ár bóklegt og 17 mánuðir verklegt nám. Inntökuskilyrði í skólann eru 2-4 annir í framhaldsskóla. Verknám fer fram á viðurkenndum verknámsstöðum. Skrúðgarðyrkjunemar eru á verknámssamningi hjá starfandi skrúðgarðyrkjumeistara, ylræktarnemar stunda nám á ylræktar- og útimatjurtastöðvum, nemendur á garð- og skógarplöntubraut stunda verknám í garðplöntu- eða skógarplöntustöðvum og skógræktarnemar hjá skógræktarfélögum eða skógarplöntustöðvum.
Umhverfisnemar vinna við landgræðslu, náttúruvernd, skógrækt og útivist.

Nemendur á blómaskreytingarbraut vinna í blómaverslunum. Búfræðinemar fara í námsdvöl á kennslubú, þar sem heimilisfólk er fagmenntað í landbúnaði. Kennsla á búfræðibraut fer fram á Hvanneyri í Borgarfirði en kennsla annarra starfmenntabrauta á Reykjum í Ölfusi.


Aðstaða til náms
Skólinn er vel búinn tækjum og vinnuaðstaða, bókasöfn, rannsóknastofur og tilraunabú eru innan seilingar fyrir nemendur. Hvað húsnæði varðar þá er boðið upp á herbergi á heimavistum bæði á Hvanneyri og á Reykjum og fjölbreyttir kostir í íbúðarhúsnæði bjóðast fyrir þá nemendur sem stunda nám á Hvanneyri þar sem á undanförnum árum hefur risið skólaþorp með allri tilheyrandi aðstöðu og þjónustu. Sjá nánar um aðstöðu fyrir nemendur á
Hvanneyri og á Reykjum.

Félagslíf
Við skólann starfar skólafélag sem stendur fyrir fjölbreyttu félagslífi, sjá www.slbh.is. Alls konar klúbbastarfsemi og skemmtanahald setur svip sinn á lífið í skólanum, þar sem fólk með samskonar lífsviðhorf og áhugamál kynnist og eignast oft vini fyrir lífstíð.