|
|
Umhverfisdeild
Umhverfisdeild LbhÍ hefur á að skipa fjölþættri þekkingu á sviði náttúru- og umhverfisvísinda, skipulags og landslagsarkitektúrs. Innan deildarinnar er boðið um á fjölbreytt nám á sviði náttúru – og umhverfisvísinda, umhverfisskipulags, skógfræði og endurheimt landgæða. Lögð er áhersla á sveigjanleika og fjölbreytta valkosti í náminu þar sem nemandanum hefur tækifæri til að laga námið að áhugasviðum, jafnframt því sem hann öðlast breiðan bakgrunn fyrir margvísleg störf eða frekari menntun. Framhaldsnám við deildina er einstaklingsmiðað rannsóknanám.
Rannsóknastarf við umhverfisdeild er afar öflugt og fjölbreytt og rennir það styrkum stoðum undir kennslu umhverfisdeildar. LbhÍ hefur sérstöðu á mörgum sviðum rannsókna í umhverfis- og skipulagsmálum, m.a. er tengist náttúrunýtingu og náttúruvernd, vistkerfum Íslands, gróðurhúsalofttegundum, jarðvegi, skógfræði og landgræðslu, og sjálfbærri nýtingu landkosta. Rannsóknir starfsmanna deildarinnar stuðla m.a. að því að þróun landnýtingar sé náttúrulega, félagslega og efnahagslega sjálfbær og vinni með fjölbreytileika mannlífs og náttúru.
Deildarforseti Umhverfisdeildar er Ólafur Arnalds.
Sjá háskólanám
Brautarlýsing - Náttúra og Umhverfi
Brautarlýsing - Skógfræði og landgræðsla
Brautarlýsing - Umhverfisskipulag
Lög um búnaðarfræðslu nr 57-1999
Mastersnám
Námskeið - Náttúra og Umhverfi
Námskeið - Skógfræði og landgræðsla
Námskeið - Umhverfisskipulag
Starfsreglur háskóladeilda LbhÍ
Starfsreglur LbhÍ
Starfsreglur um doktorsnám LbhÍ
|
|
|