Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Um háskólann
Nám
Hagnýtar uppl.
Nemendur
Uppl. Stefanía
Rannsóknir
Bókasafn
Útgáfa
Tölvumál
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
In English
 
Póstur á vefstjóra

Landbúnaðarháskóli Íslands | 11/08/2007
Silungastofnar Mývatns. Saga veiðinýtingar síðustu árin og núverandi ástand stofnanna
Næsta málstofa LbhÍ verður mánudaginn 12. nóvember 2007 kl.15:00 í fundarsal á 3. hæð á Keldnaholti, Reykjavík. Fyrirlesari verður Guðni Guðbergsson og nefnir hann erindi sitt Silungastofnar Mývatns. Saga veiðinýtingar síðustu árin og núverandi ástand stofnanna.

Mývatn er eitt af frjósömustu vötnum landsins. Silungurinn í Mývatni hefur um aldir verið mikilvæg matarkista þeirra sem við vatnið búa og óvíða hérlendis er veiðihefð eins samofin landbúnaði og búsetu. Við stofnun Veiðifélags Mývatns árið 1905 var helsta markmið félagsins að vinna gegn minnkandi veiði í vatninu. Rakin verður saga veiðanna síðustu 100 árin en miklar sveiflur hafa komið fram í veiðinni og nær stöðugur samdráttur í veiði frá því um 1970.
Árlegar rannsóknir hafa farið fram á silungastofnum Mývatns í rúmlega 20 ár. Þar hafa meðal annars fengist upplýsingar um holdafar, fæðu, aldurs- og stærðarsamsetningu ásamt vísitölum fyrir stofnstærð silungs í vatninu á þeim tíma. Greint verður frá niðurstöðum þessara rannsókna og leitast verður við að tengja saman niðurstöður vöktunarrannsókna á silungastofnunum við framvindu í veiði bænda.

Guðni Guðbergsson er deildarstjóri rannsóknadeildar Veiðimálastofnunar. Hann lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1976. B.Sc. prófi í líffræði frá HÍ 1983 og Cand. Scient prófi í vatnavistfræði með ferskvatnsfiska sem sérgrein frá Óslóarháskóla 1985. Guðni hefur starfað á Veiðimálastofnun frá árinu 1979 fyrst sem rannsóknarmaður en síðar sem sérfræðingur og deildarstjóri. Hann hefur stundað rannsóknir á laxfiskum hér á landi og m.a. tekið þátt í norrænum og alþjóðlegum verkefnum á því sviði.

Beina útsendingu á erindinu er að finna hér.



Til baka