Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Um háskólann
Nám
Hagnýtar uppl.
- Bóksala LBHÍ
- Kennslufyrirkomulag
Nemendur
Rannsóknir
Bókasafn
Útgáfa
Tölvumál
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
 
Póstur á vefstjóra

Aðstaðan á Möðruvöllum í Hörgárdal


Starfsstöð LbhÍ á Möðruvöllum er í mynni Hörgársdals um 14 km norðan við Akureyri. Möðruvellir í Hörgárdal hafa frá öndverðu verið höfuðból og þeir eiga veglegan sess í trúar-, stjórnmála-, mennta- og náttúrfræðisögu Íslands.
Staðurinn liggur á miklum flata undir Staðarhnjúki í Möðruvallafjalli vestan við Hörgá og sést hann vel ef horft er í norðvestur af hringveginum við Ólafsfjarðarafleggjarann.



Starfsaðstaða

Landbúnaðarháskólinn rekur kúabú á Möðruvöllum fyrir rannsóknastarfssemina sem þar fer fram og er framleiðsluréttur búsins um 165.000 l (2006-2007). Einnig er talsverð nautakjötsframleiðsla. Ræktað land er um 150 ha þar af eru 60 ha engjatún sem liggja með bökkum Hörgár. Heimalönd og úthagar eru um 150 ha en jörðinni fylgir einnig mikið afréttaland fremst í Hörgárdal.

Möðruvellir henta afar vel til vistfræðilegra rannsókna til dæmis á næringarefnahringrásum og margskonar umhverfisáhrifum af landbúnaði, en þar er hægt að vakta ýmsar mælingar samfellt yfir lengra tímabil. Aðstaða til jarðræktarrannsókna eru einnig sérlega góð. Styrkur Möðruvalla fyrir margskonar rannsóknir og/eða skipulagsverkefni nemenda og starfsmanna LbhÍ felst í landfræðilegri fjölbreytni og legu og síðast en ekki síst miklu magni upplýsinga sem til er um jörðina. Efni sem til er og hægt er að nefna er;

      Saga Möðruvalla frá landnámi til nútíma (m.a. Torfi K. Stefánsson Hjaltalín)

      Fornleifaskrá og kort (Orri Vésteinsson)

      Örnefnaskrá og kort (Bjarni E. Guðleifsson)

      Jarðfræðilýsing (Halldór Pétursson)

      Lýsingar á jarðvegsgerðum og sniðum (Bjarni E. Guðleifsson, Ólafur Arnalds, Grétar Guðbergsson og Sigfús Ólafsson)

      Lýsingar og skrár á gróðurfari og dýralífi (Þóroddur Sveinsson)

      Lýsingar og skrár á smádýralífi í jarðvegi (Bjarni E. Guðleifsson)

      Veðurfarskrár frá 1992-

      Ræktunarbókhald frá 1992-

      Næringarefnabúskapur kúabús frá 1992-

      Búrekstrarskrár frá 1992-

Sem dæmi um rannsóknir sem unnar hafa verið á Möðruvöllum á undaförnum árum má benda á ritaskrár Bjarna E. Guðleifssonar og Þóroddar Sveinssonar á heimasíðu LbhÍ.

Landbúnaðarháskólinn er einn af stofnendum Amtmannssetursins á Möðruvöllum sem er sjálfseignarstofnun sem var stofnuð 1. mars 2006. Nafn setursins er skírskotun til sögunnar og þeirrar starfsemi sem setrið ætlar að standa að á Möðruvöllum. Það hefur þann megin tilgang að endurreisa merkar byggingar á Möðruvöllum í Hörgárdal og koma á framfæri sögu staðarins á lifandi hátt með því að skapa aðlaðandi og frjótt umhverfi fyrir skóla, námsfólk og ferðamenn sem áhuga hafa á stjórnmála-, menningar- og kirkjusögu, náttúruvísindum og landbúnaði. Með uppbyggingunni vill Amtmannssetrið bæta starfsaðstöðu fyrir stofnendur og renna fleiri stoðum undir atvinnu á Möðruvöllum. Sjá stutta kynningu um Leikhúsið og Stefánsfjós.

Stofnendur Amtmannssetursins eru auk LbhÍ Arnarneshreppur, Möðruvalla­klaust­urs­kirkju­sókn og Prestssetrasjóður.

Um Amtmannssetrið

Skipulagsskrá Amtmannssetursins






Vinnuhúsnæði

Í Eggertsfjósi eru tvær sérhæfðar rannsóknastofur auk vigtunar- og þurrkaðstöðu og geymsluplássi. Í kalstofu er öll aðstaða til rannsókna á vetrarþoli plantna og smádýra (frost og/eða svellþol). Kalstofan er rekin í samstarfi við tilraunastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá. Í fræstofu er öll aðstaða til að gera prófanir á fræi og sáðvöru (fræspírun, frædvala, hreinleika). Til eru öll helstu tæki og vélar sem þarf til hefðbundinna jarðræktarrannsókna. Einnig er aðgangur að öllum vélum og tækjum kúabúsins.

Í sk tilraunafjósi er góð aðstaða til að einstaklingsfóðra kýr og geldneyti.

Í dag er kennsluaðstaða takmörkuð á Möðruvöllum en Amtmannssetrið stefnir að því að opna Leikhúsið vorið 2007 og þar verður góð fundaraðstaða fyrir smærri hópa. Einnig er fyrirhugað að koma upp fundar- og gistiaðstöðu í Eggertsfjósi.

Skrifstofur LbhÍ eru í Búgarði í húsnæði Búnaðarsambands Eyjafjarðar á Akureyri.







 


 Leit á vef

Úr dagbók


Flýtikrækjur

landbunadur.is
Rit LbhÍ
Umsóknir
Stúdentaráð LbhÍ
Vefpóstur LbhÍ