|
|
Aðstaða og þjónusta á Reykjum

Starfsstöð LbhÍ að Reykjum tilheyrir Ölfusi en stendur rétt fyrir ofan sundlaugina í Laugaskarði í Hveragerði. Um 3 mínútna gangur er niður brekkuna í miðbæ Hveragerðis. Að Reykjum fer fram starfsmenntanám í blómaskreytingum, garðplöntuframleiðslu, skógrækt, skrúðgarðyrkju, umhverfisfræði og ylrækt. Á flestum brautunum er boðið upp á fjarnám (sjá nánar Starfsmenntanám).
Húsnæði
Flestir nemendur koma af höfuðborgarsvæðinu og aka í skólann daglega. Fyrir þá sem vilja er í boði heimavist við skólann. Þar er um að ræða 6 eins manns herbergi með aðgangi að sameiginlegu eldhúsi og baði.
Í gegnum tíðina hafa nemendur oft leigt húsnæði í Hveragerði á meðan þeir eru í skólanum. Á skrifstofu skólans er oft að finna upplýsingar um húsnæði sem í boði er til leigu. Hafið samband við ritara s. 433 5303 ingibjorg@lbhi.is.
Einnig búa margir í Hveragerði, Þorlákshöfn eða á Árborgarsvæðinu. Þetta svæði er mjög fýsilegur kostur fyrir fólk sem er að huga að búferlaflutningum til frambúðar. Sjá nánar hvergerdi.is, arborg.is og olfus.is.
Tölvumál
Við upphaf náms við skólann fá nemendur úthlutað netfangi og aðgangsorði að tölvukerfi skólans. Í skólabyggingunni er þráðlaust netkerfi svo nemendur geta notað sínar eigin fartölvur. Tölvusérfræðingar skólans aðstoða nemendur við að tengjast netinu. Einnig hafa nemendur aðgang að tölvum í tölvuveri.
Við skólann er notað kennslukerfið Námsskjár þar sem allt efni sem viðkemur kennslunni er lagt fram. Í upplýsingakerfinu Stefaníu geta nemendur fylgst með námsframvindu sinni.
Bókasafn
Bókasafn LbhÍ er starfrækt að Reykjum í Ölfusi, á Hvanneyri í Borgarfirði og á Keldnaholti í Reykjavík. Þar er veitt öll almenn þjónusta s.s. útlán, millisafnalán, upplýsingaþjónusta og aðstoð við heimildaleit. Allir nemendur skólans fá við upphaf náms kynningu á þjónustu bókasafnsins og kennslu í notkun gagnagrunna á netinu og á geisladiskum.
Innritunargjöld
Nemendur þurfa að greiða innritunargjald við upphaf hverrar annar.
Efniskostnaður
Nemendur greiða ýmsan pappírskostnað og annan efniskostnað vegna sameiginlegra verkefna og gagna sem tengjast kennslunni. Þessi kostnaður er innheimtur í lok hverrar annar.
Ferðakostnaður
Nemendur greiða útlagðan kostnað vegna náms- og kynnisferða sem tengjast einstökum námsgreinum. |
|
|