Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

Vinnudagbækur garðyrkjubrauta

Dagbókin samanstendur af tveimur skjölum dagbókarformi og vikuformi.

Eftir að búið er að sækja skjölin og vista á heimatölvunni er best að vista þau sem formskjöl (*.dot) og þá er hægt að opna þau í Word með File/New. Þegar búið er að færa inn í þau, eru þau vistuð sem venjuleg Word-skjöl (documents sem eru með sjálfgefnu endinguna ".doc", en formskjalið er óbreytt, svo að hægt er að nota það aftur til að byrja á nýjum samskonar skjölum.

Dagbok?.doc er fjórar blaðsíður. Fyrsta síðan er forsíða á dagbókina. Önnur síðan er lýsing á verknámsstað. Hún er í raun einungis áminning um að þarna eigi að setja inn lýsingu á verknámsstað og dagbókareigandinn hefur frjálsar hendur um uppsetningu á síðunni og getur bætt við síðum eftir þörfum. Þriðja síðan er dagbókaryfirlit og fjórða síðan er form fyrir umsögn. Þriðja og fjórða síðan eru settar aftast í dagbókina.

Vika?.doc er fyrir einstakar vikur. Fyrsta síðan er forsíða, þar skal telja upp þær lýsingar, sem skilað er á verkum viðkomandi viku og vísa í fyrri verklýsingar, tvær næstu síður eru ætlaðar til daglegrar skráningar verka, sem unnið er við, ásamt stundafjölda, sem unninn er við hvert einstakt verk 4. síðan er til að fylla út samandregið yfirlit yfir verk vikunnar og vinnustundafjölda. Vikurnar skal númera í hlaupandi röð. Hverja viku er hægt að vista með sínu númeri. Með því að prenta hverja viku á bæði borð pappírsins kemst hún á tvö A4 blöð.

Blómaskreytingabraut - dagbókarform

Blómaskreytingabraut - vikuform

Garðplöntuframleiðsla - dagbókarform

Garðplöntuframleiðsla - vikuform

Skógur og umhverfi - dagbókarform

Skógur og umhverfi - vikuform

Skrúðgarðyrkjubraut - dagbókarform

Skrúðgarðyrkjubraut - vikuform

Ylræktarbraut - dagbókarform

Ylræktarbraut - vikuform