Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Bútækni
- Sértækar greinar
- Rekstur - Stjórnun
- Tölvunotkun við bústörf
- Traktor - gagnasafn
Tilvísanir
Leiðbeiningar
Rannsóknir
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
 
Póstur á vefstjóra

Varmolift - gjafavagn Nr. 699


VARMOLIL.doc

Gerð: Trejon Varmolift model KPP. Framleiðandi: Maaselän Kone OY SF Finnlandi. Innflytjandi: Arnar Bjarni Eiríksson Gunnbjarnarholti, 801 Selfossi.

YFIRLIT

Varmolift fóðurvagn fyrir heyrúllur var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnun landbúnaðarins veturinn 1997-98 og notaður alls við gjafir á um 1400 heyrúllum.

Fóðurvagninn er ætlaður til að mata hey úr heyrúllum allt að 125 cm í þvermál með breytilegu þurrkstigi. Vagninn getur tekið upp heyrúllur af jörðu eða af vörubretti og er ætlaður til mötunar á fóðurgang. Hann er knúinn með þriggja fasa rafmótor og vegur um 1150 kg. Vagninn má einnig fá með bensín- eða gasknúna aflvél. Hraða á mötunarbandi má stjórna þrepalaust. Matarinn sker heyið úr rúllunum og skilar því á þverliggjandi færiband sem má beina hvort sem er til hægri eða vinstri, þannig að myndist nokkuð jafn heystrengur við hlið fóðurvagnsins. Mælingar voru gerðar á afköstum vagnsins og reyndust þau á bilinu 3,2-7,3 rúllubaggar á klst allt háð aðstæðum og þurrkstigi rúllanna. Þau afköst samsvara oft um 3,6-8,6 mín/100 kg þurrefnis. Til að koma mataranum við í gripahúsum þarf breiðan fóðurgang og að auki rúmt pláss þar sem aka þarf fyrir horn. Ætla þarf a.m.k. 2,3 m fóðurgang þar sem gefið er til annarrar handar en a.m.k. 3 m þar sem gefið er til beggja handa. Vegna þess hve tækið er þungt þarf að athug
a hvort burðarþol gólfa er í samræmi við þyngd hans. Þegar unnið er við heygjafir nálægt mataranum þarf að gæta sérstakrar varúðar með tilliti til slysahættu einkum ef börn eru nálægt. Fóðurvagninn er traustlega smíðaður en tengiöxull í vökvamótor sem knýr vagninn áfram gaf sig á reynslutímanum. Gúmmíhlífar sem hylja útmötunaropin voru skemmdar er prófun hófst og rifnuðu aftur á reynslutímanum. Skipta þurfti um þrjá smurkoppa sem gáfu sig þegar hey þvældist um færibandarúllurnar. Vagninn er að öðru leyti traustega smíðaður og er til mikils vinnuléttis miðað við hefðbundnar aðferðir við gjafir úr heyrúllum.

LÝSING

Varmolift fóðurvagninn er ætlaður til að losa hey úr rúlluböggum og dreifa því á fóðurgang. Hann er búinn tveimur vökvastýrðum stáltindum sem renna má undir heyrúllur og lyfta þeim upp í baggahólfið. Stáltindarnir eru festir í braut þannig að þegar bagginn er kominn upp í baggahólfið er honum ýtt með þeim að skurðarhníf. Hnífurinn er 1380 mm breiður, vökvaknúinn og sker sneið í hvert skipti úr bagganum. Afskurðurinn fellur niður á færiband sem er 450 mm breitt og 2965 mm langt. Á keðjuna eru festir 12 vinklar 45x25mm. Færibandið er knúið af vökvamótor sem getur fært heyið hvort sem er til vinstri eða hægri, út um hliðarop á vagninum. Botn vagnsins er þrískiptur og gerður úr 6 mm stálplötu. Vagninn er knúinn af 5,5 kW þriggja fasa rafmótor sem knýr vökvadælu. Vökvadælan gefur olíustraum gegnum spóluloka og síu í vökvatank. Aðstaða er fyrir stjórnanda á þeim enda vagnsins sem færibandið er og stjórnstengur fyrir vökvaflæðið.

Helstu mál:
Framleiðslunúmer 310/-97
Lengd/breidd/hæð 3070/1500/1625 mm
Lengd/breidd/hæð í vinnslustöðu 4035/1500/1625 mm
Fjöldi smurstúta 14 stk.
Rafmótor, 5,5 kW þriggja fasa. 1440 sn/min
Þyngd 1150 kg
Vökvakerfi, þrýstingur 180 bör



NIÐURSTÖÐUR PRÓFUNAR

Varmolift fóðurvagninn fyrir heyrúllur kom til prófunar í nóvembermánuði 1997. Hann var notaður við gjafir á 1400 heyrúllum af ólíkum gerðum og breytilegt þurrkstig.

Vinnubrögð. Matarinn var eingöngu notaður við heyfóðrun á fóðurgang innanhúss. Við hleðslu tækisins er heppilegast að taka baggana af vörubretti, af gólfi með hörði undirlagi eða viðlíka aðstæðum. Heppilegast er að skera böndin eða netbindinguna á þeirri hlið sem veit að vagninum, niður við brettið og færa plast og bönd aftur fyrir rúlluna áður en hleðslugaffli tækisins er ekið alveg undir brettið. Bagginn er síðan færður upp í baggahólfið. Eru þá böndin laus og fremur auðvelt að fjarlægja þau. Vagninum er síðan ekið á fóðrunarstað sem oftast er fóðurgangur. Útmötun fer þannig fram að skorin er ein sneið úr bagganum í einu, hún látin falla á færibandið. Það færir síðan heyið út um hliðaropið um leið og ekið er áfram á hæfilegum hraða sem ræðst af gjafamagni. Hraða hnífs, færibands, hleðslugaffals og ökuhraða má stjórna þrepalaust með stjórnstöngum sem stjórna hverri aðgerð fyrir sig.

Afköst. Gerðar voru mælingar á vinnubrögðum og afköstum við gjafir með tækinu. Af þeim má ráða að þau eru mjög breytileg eftir baggagerð og öllum aðstæðum í gripahúsunum. Af mælingum sem gerðar voru má ætla að algeng afköst við mötun úr rúlluböggum sé á bilinu 10-15 mín á bagga eða 4 - 6 baggar á klst. Skipting í verkþætti er mjög breytileg en oft þannig að 40-60% tímans fara í sjálfa heydreifinguna um 25-30% í akstur milli staða og 10-20% í að fjarlægja bönd og plasthjúp. Afköstin mæld í þurrefni eru að sjálfsögðu breytileg eftir þurrkstigi rúllanna. Þannig má gera ráð fyrir að nettó afköstin séu á bilinu 800-1200 kg þurrefnis á klst ef um lítið forþurrkað fóður er að ræða en 1400 -2000 kg sé það mikið forþurrkað.Oft er miðað við að um 15% tímans fari í ýmsan undirbúning og snúninga og eru fyrrgreindar afkastatölur á bilinu 700-1700 kg þurrefnis á klst háð þurrkstigi heysins eða 3,6-8,6 mín/100 kg þurrefnis. Til samanburðar má geta þess að losun með talíu úr gryfju og sjálflosandi fóðurvagn tekur samkvæmt v
innumælingum úr búvélaprófunum um 4,2 mín/100 kg votheys eða um 17 mín á 100 kg þurrefnis.

Notkun og hirðing. Rafmótorinn þarf allt að 5,5 kW afl þannig að sérstakar ráðstafanir getur þurft að gera til að tengja hann í útihúsum. Matarinn tekur töluvert mikið rými þannig að hann hentar ekki nema aðstæður gefi nokkuð svigrúm. Varðandi gólfgerðir í útihúsum verður að huga að því að öxulþunginn getur orðið umtalsverður og getur þurft að gera sértækar ráðstafanir í því sambandi. Aka þarf með gát í lausaakstri því vagninn er þá fremur valtur. Brýna þarf skurðarhnífin reglulega en sérstaka aðgát þarf við það verk með tilliti til slysahættu. Tengiöxull í vökvamótor sem knýr vagninn áfram gaf sig á reynslutímanum. Vökvamótorinn getur orðið fyrir miklu álagi og þyrfti að gera ráðstafanir frá hendi framleiðanda til að draga úr hættu á skemmdum af þeim ástæðum. Nokkuð bar á því að hey þvældist um tannhjól í mötunarfæribandi og þurfti að endurnýja þrjá smurkoppa af þeim ástæðum. Skurðarhnífurinn skemmdist nokkuð af aðskotahlutum í heyi svo sem tindum. Gúmmíhlífar sem hylja útmötunaropin voru rifnar er vagni
nn kom til prófunar og þær skemmdir ágerðust er leið á reynslutímann. Vökvaslanga hafði skaðast í flutningi enda hafði leiðbeiningum um notkun lyftara við að lyfta vagninum ekki verið fylgt. Hvasst horn við ökumannsstæði getur skemmt hlífðarfatnað. Annarra bilanna eða óeðlilegs slits varð ekki vart á reynslutímanum. Matarinn er traustlega smíðaður, daglegt viðhald einfalt. Erlendur leiðbeiningabæklingur fylgdi með tækinu.

 

 Leit á vef
 

Búvélaprófanir

Yfirlit búvélaprófana 1968-1979

Yfirlit búvélaprófana 1968-1979

1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2003 2004 2005

 

Flýtikrækjur

landbunadur.is
Rit LbhÍ
Vefpóstur LbhÍ