|
|
Rauch - áburðardreifari Nr.698

Gerð: Rauch MSD 921. Framleiðandi: Rauch landmachinenfabrik GmbH, Þýskalandi. Innflytjandi: Vélar og Þjónusta hf., Reykjavík
.
YFIRLIT
Rauch MSD 921 áburðardreifarinn var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins vorið 1998 þar sem gerðar voru mælingar á dreifieiginleikum hans.
Rauch MSD 921 er þyrildreifari með tvær dreifiskífur sem knúnar eru frá aflúttaki. Dreifarinn er tengdur á þrítengi dráttarvélar. Hann rúmar um 900 kg af áburði og sjálfur vegur hann 240 kg. Hann rýrir nokkuð framþunga lítilla og meðalstórra dráttarvéla svo að nauðsynlegt getur verið að þyngja þær að framan. Dreifarinn er lágbyggður og með nokkuð víðum áburðargeymi. Hleðsla hans er því tiltölulega auðveld. Dreifarinn getur dreift mjög jafnt við breytilegar vinnslubreiddir, allt að 16-18 m.Dagleg hirðing dreifarans er auðveld. Dreifibúnaðurinn er úr ryðfríu efni. Mikilvægt er að dreifiskífur séu í réttri hæð og sem næst lárétt, og einnig að hraði aflúttaks sé 540 sn/mín. Dreifarinn virðist vera vandaður að allri gerð.
LÝSING
Áburðardreifarinn Rauch MSD 921 er þyrildreifari ætlaður til dreifingar á tilbúnum áburði. Hann er tengdur á þrítengi dráttarvélar og hefur tvær dreifiskífur sem eru drifnar frá aflúttaki dráttarvélarinnar um lokuð vinkildrif. Áburðargeymirinn er trektlaga úr 2 mm þykku plötujárni. Burðargrind er úr 110x110 mm prófíl og 110x50 prófíl. Hvor dreifiskífa hefur áfesta tvo dreifiugga, allt úr ryðfríu stáli. Hægt er að breyta lengd uggana á fimm vegu og einnig er stefna þeirra á skífunni stillanleg á fjóra vegu. Því er í raun hægt að stilla hvern ugga á 28 mismunandi vegu. Miðað er við að hægri og vinstri skífa séu alltaf eins stilltar en hægt er að stilla ytri skífu sérstaklega þegar dreift er á spildujaðra. Stillibúnaður fyrir dreifimagn er fyrir hvora skífu og hefur hann 58 deilistöður. Til að ákvarða dreifimagn er tiltekin staða á kvarðanum valin og hann festur með vængjaró. Opnað og lokað er fyrir útrennslisop hvorrar skífu með aðstoð einvirkra vökvastimpla sem knúnir eru af vökvaúttaki dráttarvélarinnar. Hún þarf því að hafa tvö slík úttök. Lokar eru á hvorri slöngu þannig að skrúfa má fyrir vökvarennsli til að tryggja að útrennslisopin opnist ekki. Tengsli vegna ofálags er ekki á drifskafti.
Framleiðslunúmer
Mesta lengd / breidd / hæð 1270/1900/1020 mm
Hæð að tengitöppum frá fótstykki 45/185 mm
Hæð að dreifiskífu frá fótstykki 195 mm
Þvermál dreifiskífu, mesta / minnsta 320/400 mm
Snúningshraði dreifiskífu (aflútt. 540 sn/mín.) 313 sn/mín
Ferilhraði yst á uggum, minnsti/mesti 5,24/6,55 m/s
Rými áburðargeymis 0,9 m³
Fjöldi smurstúta 2 stk
Hámarksþyngd 1800 kg
Áætluð hámarksaflþörf 37 kW (50 hö)
Þyngd 240 kg
NIÐURSTÖÐUR PRÓFUNAR
Áburðardreifarinn Rauch MSD 921 var prófaður vorið 1998, þar sem gerðar voru mælingar á dreifieiginleikum hans.
Dreifieiginleikar. Dreifieiginleikar voru mældir í lygnu veðri. Notaðar voru áburðartegundirnar Græðir 6 frá Áburðarverksmiðju ríkisins og Folda 6 frá Ísafold hf. og ættu niðurstöður að gilda fyrir grófkorna áburð frá þessum aðilum. Mældar eru s.k. dreifikúrfur áburðardreifaranna. Þær sýna hversu mikill áburður fellur á flatareiningu túns þegar ekið er eina ferð með dreifarann eftir því. Hægt er að leggja þessar kúrfur saman og mynda summukúrfur sem sýna það áburðarmagn sem fellur á hverja flatareiningu þegar eknar eru fleiri ferðir með ákveðinni vinnlubreidd (þ.e. bili milli ferða).Sveiflustuðull var reiknaður fyrir áburðar- dreifingu með mismunandi bili milli umferða (vinnslubreidd). Sveiflustuðull er því lægri sem dreifingin er jafnari, sbr töflu 1.
Sv.stuðull | Dreifigæði |
0 - 5 % | Mjög jöfn dreifing |
5 - 10 % | Jöfn dreifing |
10 - 15 % | Viðunandi dreifing |
15 - 20 % | Ójöfn dreifing |
> 20 % | Mjög ójöfn dreifing |
Tafla 1. Eftirfarandi viðmiðun er notuð við mat á dreifigæðum tilbúins áburðar á Norðurlöndunum
Sveiflustuðull áburðardreifara sem notaðir eru til að dreifa á kornakra á helst ekki að vera hærri en 10% og á túnum er oft miðað við að hann verði ekki hærri en 15%. Samt er rétt að undirstrika að ávalt sé stefnt að sem jafnastri dreifingu.Mynd 1 sýnir dreifieiginleika Rauch dreifarans við dreifingu á Græði 6 við tvær mismunandi stillingar á uggum. Efri myndirnar eru dreifikúrfur og summukúrfur en neðri er sveiflustuðull reiknaður sem fall af vinnslubreidd. Eins og sést á myndunum hefur C3-B2 stillingin yfirburði á allra minnstu vinnslubreiddunum (<8m) en D1-D4 hefur yfirburði þar fyrrir ofan. Eins og sést á myndinni næst viðunandi dreifing með vinnslubreidd allt að 16 m á þessari stillingu. Hafi menn áhuga á að nota enn meiri vinnlubreidd er hægt að benda á stillinguna C3-D4 sem gefur jafna dreifingu á bilinu 15-18,5 m. Þá er dreifikúrfan mun flatari að ofan en þær sem fram koma á mynd 1. Því er afar mikilvægt að halda nákvæmlega vinnlubreiddinni því annars er hætta á að veruleg frávik fari að koma fram við dreifinguna.
Mynd 1. Dreifi- og summukúrfur ásamt sveiflustuðlum fyrir Rauch MSD 921 og Græði 6.

Mynd 2. Dreifi- og summukúrfur ásamt sveiflustuðlum fyrir Rauch MSD 921 og Foldu 6.

Svipaðar stillingar henta fyrir Foldu 6 og Græði 6 eins og sjá má á mynd 2. Það virðist hins vegar vera jafnari dreifing þegar Folda 6 er notuð. Kornastærðardreifingin í Græðinum er líklegasta skýringin á þessu. Mælingar sýna að kornin í honum eru að jafnaði smærri og stærðardreifing þeirra minni.
Stillingin C3-B2 gefur jafnari dreifingu upp í um 12 m en frá 12-18 m gefur D1-D3 betri raun.
Eins og sjá má á myndum eitt og tvö er dreifingin fremur jöfn og og minnkar að magni jafnt og þétt út frá miðjunni. Þetta er mjög heppilegt hvað varðar val á vinnslubreidd því að með þess konar dreifara eru menn ekki eins bundnir af tiltekinni vinnslubreidd án þess að það komi niður á dreifigæðum. Hins vegar fylgir sá annmarki að erfitt er að dreifa út á spildujaðra og skurðbakka. Þennan vanda má milda með því að aka eftir skurðbökkunum og dreifa með annarri skífunni. Mælingar sýndu að skífan hægra megin dreifir ekki nema um 2 m til vinstri og svo öfugt. Hins vegar næst nær fullur áburðarskammtur nær alveg út á skurðbakkann.
Dreifimagn. Rennsli áburðarins úr dreifaranum er stjórnað með breytingum á útrennslisopi, en það er gert með stillistöng sem hefur 58 deilistöður. Áborið magn á flatareiningu ræðst af þessari stillingu, ökuhraða, bili milli umferða, þ.e.a.s. vinnslubreidd og áburðartegund. Töflur 2 og 3 sýna rennsli áburðar úr dreifaranum við mismunandi stillingu og dreifimagn á hektara miðað við 8 til 16 metra vinnslubreidd og ökuhraðann 8 og 10 km/klst. Við mælingu á rennslismagni var bæði notaður Græðir 6 og Folda 6. Þess ber að geta að ýmsar aðstæður hafa áhrif á dreifimagn. Þar má nefna veður og ástand áburðar og dreifara svo og snúningshraða.
Stillingarnar sem gefnar eru upp miðast við hæð dreifarans og stöðu ugganna á skífunum. Mikilvægt er að ganga úr skugga um að dreifarinn sé í réttri hæð í vinnustöðu og þá láréttur. Hæðin sem gefin er upp er mæld frá jörðu í neðanverðan burðarramma dreifarans að framan og aftan. Eins og sést í töflunum er alltaf miðað við að dreifarinn sé hafður láréttur. Uggana er hægt að stilla á tvo vegu. Annars vegar má lengja þá og stytta og er þá farið eftir bókstöfunum, A þýðir stysta stilling og E lengsta. Hins vegar er hægt að skekkja uggana og er hún gefin upp í tölustöfum þ.e. 1 mest afturhallandi og 6 þverast. Skífurnar eru speglaðar þannig að auðvelt er að stilla dreifarann aftan frá. Stilling 1 er þá næst miðju
dreifarans þegar ugginn vísar aftur. Þannig væri efsta stillingin í töflu 2, C3-B2 50/50, lesin: annar uggi lengd C þriðja gat frá miðju hinn lengd B annað gat frá
miðju og hæð undir burðargrind 50 cm bæði að framan og aftan. Stillingarnar miðast við eina skífu báðar skífurnar eiga alltaf að vera eins stilltar
.
Yfirleitt eru gefnar upp tvær stillingar fyrir hverja vinnslubreidd. Báðar stillingarnar gefa viðunandi dreifingu en önnur er betri en hin, túlkað þannig að ágætt er betra en gott.
Tafla 2. Stillingar og dreifimagn Rauch MSD 921 fyrir Græði 6.

Tafla 3. Stillingar og dreifimagn Rauch MSD 921 fyrir Foldu 6.

Notkun. Auðvelt er einum manni að tengja og aftengja dreifarann. Hleðsluhæð er um 1 m og hleðsla því tiltölulega auðveld. Áburðargeymirinn víkkar mikið upp en efst þrengist hann aftur til að hindra að áburðurinn "skvettist" upp úr honum þegar borið á óslétt land. Halli í hliðum geymisins virðist nægilega mikill til þess að áburðurinn renni allur niður að útrennslisopinu jafnvel þegar ekið er á sléttum túnum. Til að loka fyrir útrennslisop dreifarans eru notaðir einvirkir vökvastimplar sem slakað er á til að opna. Dreifingunni er því stjórnað innan úr dráttarvél. Stillibúnaður á dreifimagn er einfaldur að gerð og öruggur. Fullhlaðinn vegur dreifarinn um 1100 kg alls, og rýrir þá framþunga lítilla og meðalstórra dráttarvéla veruleg þannig að nauðsynlegt getur verið að þyngja þær að framan. Dreifarinn virðist vandaður og sterkbyggður að allri gerð. Engar bilanir urðu á reynslutímanum.
SUMMARY
The Rauch MSD 921 fertilizer distributor was tested during the spring of 1998. The machine is mounted on the three point linkage and driven by the p.t.o. shaft. It is fairly easy for one man to attach the machine to the tractor. The weight of the machine is about 230 kg and it can carry 900 kg of fertilizer. For full safety it may be advisable to install front end weights on the tractor if small or medium sized. The spreading abilities of the machine are quite good (coefficient of variance is under 10%) when the working width is set to less than 18 m. The height of the machine is about 1,0 m., so it is not difficult to load the fertilizer into it. The spreading mechanism is made of rustproof steel. The design of the machine makes maintenance and cleaning easy. The durability of the machine seems to be quite good and no functional disturbances occurred. The fertilizer distributor seems to be of solid construction and its overall performance is good.
Hvanneyri, október 1998.
|
|
|